InnlentBragi Valdimar lætur auglýsendur heyra það: „Þið megið gjarnan hysja upp um ykkur ígerð nærhöldin“28. nóvember 2024 Bragi Valdimar Skúlason lætur auglýsendur heyra það í nýrri Facebook-færslu. Baggalúturinn, sjónvarpsmaðurinn og íslenskusjéníið Bragi Valdimar Skúlason lætur aldeilis gamminn geisa í nýrri Facebook færslu þar sem hann agnúast út í enskuslettur í auglýsingum fyrir komandi biksvartan föstudag og þakkagjörðarhátíðina. Fyrr í mánuðinum hafði hann einnig gagnrýnt „singles day“ markaðssetninguna harðlega. Sjá einnig: Bragi Valdimar ósáttur: „Megið troða „singles day“...
InnlentSláandi samanburður á höfuðborgum Norðurlandanna: „Kostnaðurinn við að vera Íslendingur er svo hár“28. nóvember 2024 Kostnaður Reykvíkinga við að leigja og lifa er miklu hærri en gerist í öðrum höfuðborgum Norðurlandanna. Þórður Víkingur Friðgeirsson, verkfræðingur og kennari við Háskólann í Reykjavík birti samanburð á leigu og kaupmætti í Reykjavík og svo í höfuðborgum Norðurlandanna á Facebook og er óhætt að segja að niðurstaðan sé sláandi. Færsla Þórðar Víkings hefur vakið mikla athygli en þegar þessi...
HeimurStrætisvagn sprakk upp í loft í Brasilíu – MYNDBAND27. nóvember 2024 Betur fór á horfðist í Sao Paulo í Brasilíu á mánudaginn þegar kviknaði í strætisvagni á götum borgarinnar. Talið er að kviknað í vagninum vegna bilunar í rafmagnsvírum en bílstjórinn náði að forða sér og farþegum vagnsins úr honum áður en einhver slasaðist. Eftir að allir voru komnir úr vagninum rann hann niður brekku í ljósum logum og stoppaði ekki... Myndband
InnlentEva skýtur fast á lögregluna í tengslum við Diego: „Það er bara svo brjálað að gera hjá löggunni“27. nóvember 2024 Eva Hauksdóttir skýtur á lögregluna í nýrri Facebook-færslu. Lögmaðurinn Eva Hauksdóttir skrifar í morgun um þátt lögreglunnar í leitinni að kettinum Diego en hún hefur fullan skilning á að fólk hafi haft áhyggjur af kisa. Hins vegar setur hún spurningamerki við það að lögreglan hafi fundið tíma til að leita að ketti á sama tíma og hún hafi ekki tíma...
LandiðGuðrún Dóra tekur við Heilbrigðisstofnun Norðurlands: „Fögnum við því að fá þann öfluga fagmann“26. nóvember 2024 Guðrún Dóra Clarke hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Áætlað er að Guðrún muni hefjast störf fljótlega og vinna samhliða með Erni Ragnarssyni, fráfarandi framkvæmdastjóra, þar til hann lætur af störfum þann 1. febrúar næstkomandi en greint er frá þessu í tilkynningu frá HSN. Guðrún Dóra lauk námi í læknisfræði frá Háskóla Íslands árið 2004 og hlaut...
MenningLungA lifir – Býður upp á nýja námsbraut í gegnum útvarp26. nóvember 2024 LungA-skólinn opnar nýja námsbraut, LungA útvarpsskólinn, sem fer alfarið fram í útvarpi. Opið er fyrir umsóknir til 15. desember 2024 fyrir fyrsta skólaárið, sem stendur frá febrúar til desember 2025. LungA útvarpsskólinn er ekki skóli um útvarp, samkvæmt tilkynningu frá skólanum en hann er skóli í/á/gegnum útvarp. Þetta er tímabundið samfélag þar sem skólastarfið spannar 10 mánuði og samanstendur af...
HeimurHIV-tengdum dauðsföllum fækkar í heiminum – Hækkar í Rússlandi26. nóvember 2024 Alheimstíðni HIV sjúkdóma og dánartíðni lækkaði frá 2010 til 2021, þar sem nýjum tilfellum fækkaði um tæp 22 prósent og dauðsföllum fækkaði um tæp 40 prósent, samkvæmt The Lancet. Á þessu 12 ára tímabili dró úr útbreiðslu HIV í löndum Afríku og Suður-Asíu, og lækkaði meðaltalið á heimsvísu. Ástandið versnaði hins vegar í Mið- og Austur-Evrópu sem og Mið-Asíu. Rússland,...
InnlentDiego er fundinn26. nóvember 2024 Frægasti köttur Íslands, Diego er fundinn og á leið í faðm fjölskyldu sinnar. Kötturinn Diego, sem stolið var í fyrradag úr versluninni A4 í Skeifunni en Diego hefur vanið komur sínar þangað og í Hagkaup í Skeifunni en þar á hann sitt eigið bæli. Sást til manneskju taka Diego og fara með hann í strætisvagn og svo aftur úr honum...
InnlentDiego enn ófundinn þrátt fyrir dauðaleit – „Trúi ekki að þessi vitleysingur komist upp með þetta“26. nóvember 2024 Ekkert bólar á kettinum Diego sem hvarf í fyrradag. Kötturinn hefur gjarnan haldið sig í verslunum í Skeifunni þar sem hann á sín bæli. Hann hvarf eftir að hafa sést í verslun A-4. Talið er að einstaklingur hafi tekið hann á brott með sér og farið með köttinn í strætisvagni. Myndir úr öryggismyndavélum eru taldar hafa þýðingu með að upplýsa...
InnlentLeitin að Diego hefur engan árangur borið: „Skoða allar ábendingar og myndefni sem er til staðar“25. nóvember 2024 Enn hefur leitin að frægasta ketti landsins, Diego, engan árangur borið. Einstaklingur sást fara með hann í strætisvagn í gærkvöldi og úr honum aftur við Bíó Paradís. Hjálparsamtökin Dýrfinna, sem sérhæfir sig í að finna týnd dýr, birtu tilkynningu fyrir stundu á Facebook þar sem lýst var eftir Diego og var orðum sérstaklega beint að þeim aðila sem tók köttinn....
InnlentFertug íslensk kona handtekin eftir blóðuga árás á fjölskyldu sína25. nóvember 2024 Fertug íslensk kona er í gæsluvarðhaldi á Tenerife á Spáni grunuð um að hafa ráðist á mágkonu sína og tengdamóður í síðustu viku en Vísir greinir frá. Málið hefur ekki komið á borð borgaraþjónustunnar. Konan á að hafa ráðist á konurnar seint á föstudagskvöldi eftir að hafa farið í uppnám að sonur hennar væri ennþá vakandi. Konan hafi ráðist fyrirvaralaust...
HeimurKarlmaður fékk flog eftir rán um hábjartan dag í Beverly Hills – MYNDBAND25. nóvember 2024 Vegfarendur í Beverly Hills urðu vitni að ótrúlega bíræfnum glæpi í síðustu viku en þar rændu fjórir vopnaðir menn par sem voru að labba á Rodeo Drive. Samkvæmt vitnum streittist parið á móti til að byrja með en þjófarnir náðu á endanum tveimur verðmætum veskjum sem innihéldu síma og seðla. Greinilegt að þessi lífsreynsla fékk mikið á manninn sem var...