8 Heimur „Ég var ekki fullklæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefnherbergisgluggann minn!“
InnlentKemur trúarbrögðum ekkert við19. maí 2019 Nazima Kristín Tamimi er íslenskur múslimi sem hefur alist upp við það að fjölskylda hennar verði fyrir barðinu á hatursumræðu. Spurð hvað henni finnist um þessa umræðu sem hefur verið í gangi í sambandi við Eurovision í Ísrael, þar sem málinu er stillt upp sem átökum milli allra múslima og allra gyðinga, segir Nazima að það sé auðvitað ekkert vit í þeirri umræðu.
InnlentHélt hún yrði fyrir aðkasti vegna bænaboxins18. maí 2019 Jessica LoMonaco er frá New York og hefur búið á Íslandi undanfarin fimm ár ásamt íslenskum eiginmanni og tveimur börnum þeirra. Móðir Jessicu er gyðingur og faðir hennar kaþólskur og hún segist skilgreina sig menningarlega sem gyðing, þótt hún sé ekki virk í trúnni.
InnlentFærri greinast með krabbamein af völdum reykinga18. maí 2019 Í ársskýrslu Krabbameinsfélagsins kemur m.a. fram að íslenskt heilbrigðiskerfi standi frammi fyrir miklum áskorunum næsta áratuginn enda er áætlað að nýgreind krabbameinstilfellum fjölgi um fjórðung til ársins 2030. Ástæðan er breytt aldurssamsetning þjóðarinnar en hlutfall aldraðra fer hratt hækkandi. Árið 2017 greindust um 1600 Íslendingar með krabbamein, en 2030 er áætlað að fjöldinn verði 2000.
MenningÓskar þess stundum að vera í þægilegri innivinnu17. maí 2019 Tónlistarmaðurinn og frumkvöðullinn Svavar Pétur Eysteinsson eða Prins Póló hefur alltaf nóg fyrir stafni. Sumar í Havarí er á næsta leiti ásamt tveimur ólíkum safnplötum. Svo er bók í bígerð og nýtt brakandi snakk. Albumm hitti á Svavar og byrjaði á því að spyrja hvernig ferillinn hefði farið af stað.
InnlentÁgengir Tinder-notendur bjóða greiðslur fyrir kynlíf17. maí 2019 Kvenkynsnotendur á Tinder lenda ítrekað í því að þeim sé boðin greiðsla fyrir kynlíf þrátt fyrir að hafa frábeðið sér frekari samskipti. Teymisstjóri Bjarkarhlíðar segir hættu á að svona tilboð auki hættuna á því að viðkvæmir hópar leiðist út í vændi. Tinder er vinsælasta stefnumótaforrit heims og er notkun þess útbreidd hér á landi. Ekki er of djúpt tekið í...
InnlentÓttast ofsóknir17. maí 2019 Í umræðum um þátttöku Íslands í Eurovision í Ísrael hafa ýmsir haft tilhneigingu til að setja málið fram eins og átök Ísraela og Palestínumanna séu á ábyrgð allra gyðinga og allra múslima og ekki dregið af sér í fordæmingum á hvorum hópnum fyrir sig. Hvernig finnst almennum gyðingum og múslimum á Íslandi að sitja undir þessum málflutningi?
InnlentÁföll má ekki grafa í þögn11. maí 2019 Í Íslendingasögunum endurspeglast það viðhorf að best sé að bíta á jaxlinn og bölva í hljóði þegar sorgir og áföll dynja yfir. Hetjurnar okkar beygðu ekki af, þeim í mesta lagi súrnaði í augun á reyknum áður en þær létu lífið. Lengi var þetta lífsspeki Íslendinga og erfiðir hlutir voru helst ekki ræddir.
InnlentÞörf fyrir fleiri hjúkrunarfræðinga11. maí 2019 Kannanir hafa sýnt fram á stöðugan skort á hjúkrunarfræðingum á Íslandi. Aðeins 69% þeirra eru félagsmenn í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og um það bil þúsund hjúkrunarfræðingar starfa við annað en hjúkrun.
InnlentBrexit skilur sendiherra eftir í lausu lofti11. maí 2019 Síðustu vikur og mánuðir hafa verið snúnir hjá sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi. Lengi vel stóð til að hann myndi yfirgefa Ísland á sama tíma og Bretland yfirgæfi ESB en ítrekaðar frestanir á Brexit hafa framlengt dvöl hans á Íslandi. Í millitíðinni hefur hann svo fengið þýskan ríkisborgararétt sem gæti orðið til þess að hann verði áfram á Íslandi.
KynningSamstarf við MIT DesignX um sprett í upphafi Snjallræðis11. maí 2019 Svafa Grönfeldt og samstarfsfélagar hennar frá MIT DesignX munu sjá um sprett í upphafi nýja samfélagshraðalsins Snjallræðis, viðskiptahraðals fyrir samfélagslega nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi, sem hóf göngu sína síðastliðið haust og haldinn var á vegum Höfða friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands, Reykjavíkurborgar, Háskóla Íslands og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
SkoðunÓmar ValdimarssonRafvæðum dómstólana8. maí 2019 Í laganámi var grínast með það, að dómsmál væru munaður sem venjulegir Íslendingar gætu hugsanlega leyft sér einu sinni eða tvisvar á lífsleiðinni. Ástæðan er að sjálfsögðu sú, að dómsmálum fylgir alla jafna gríðarlegur kostnaður, sem ekki er á færi venjulegs launafólks að bera sjálft. Af þeim sökum ratar venjulegt fólk ekki inn í réttarsali Íslands, nema eitt af tvennu...
InnlentFlóttinn ekki svo mikill5. maí 2019 Á fyrstu árum eftir bankahrunið var mikið fjallað um brottflutning Íslendinga og þá sér í lagi til Noregs. Var þeirri skoðun haldið mjög á lofti að brostinn væri á landflótti sem myndi hafa alvarlegar félagslegar og efnahagslegar afleiðingar í för með sér.