InnlentSegir ríkisstjórnina gefa þjóðinni fingurinn:„Löglegt en algjörlega siðlaust sagði maðurinn forðum“7. október 2024 Björn Birgisson segir ástandið á ríkisstjórnarheimilinu vera fáránlegt. Samfélagsrýnirinn frá Grindavík, Björn Birgisson skrifaði færslu eftir að landsfundi Vinstri grænna lauk í gær en hann segir VG hafa fallið á prófinu. Segist hann stöðuna hjá ríkisstjórninni nú vera fáránlega. „VG féll á prófinu og fylgistapið heldur bara áfram. Þingmenn stjórnarflokkanna þriggja eru sammála um tvennt: Annars vegar að ekki komi...
InnlentJódís sér ekki eftir framboðinu: „Ég hef líklega fellt 40 ára gamalt met í gönuhlaupi“7. október 2024 Jódís Skúladóttir sér ekki eftir að hafa boðið sig fram sem varaformaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs á landsfundi flokksins um helgina og segist styðja nýkjörna forystu. „Ég hef líklega fellt 40 ára gamalt met í gönuhlaupi í dag en ég sé ekki eftir neinu!“ Þannig hefst Facebook-færsla Jódísar Skúladóttur þingkonu Vinstri grænna sem hún birti í gær, eftir að í...
InnlentVinstri græn vilja kosningar í vor6. október 2024 Vinstri Græn hyggjast slíta ríkisstjórnarsamstarfinu og vilja ganga til kosninga í vor en ályktun þess efnis var samþykkt á landsfundi þeirra nú fyrir skömmu. Tillögunni var breytt í samráði við flutningsfólk hennar áður en hún var samþykkt en nákvæmt orðalag á breytingum liggur ekki fyrir að svo stöddu. Á landsfundinum var Svandís Svavarsdóttir kjörin formaður flokksins og Guðmundur Ingi Guðmundsson...
InnlentSvandís nýr formaður Vinstri grænna – Jódís átti ekki möguleika gegn Guðmundi5. október 2024 Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur verið kjöin nýr formaður Vinstri Grænna á landsfundi flokksins sem stendur nú yfir en hún var ein í framboði til formanns. Hún hlaut 169 atkvæði af 175 greiddum og er því fjórði formaður flokksins sem var stofnaður árið 1999. Guðmundur Ingi Guðmundsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Jódís Skúladóttir þingmaður buðu sig bæði fram sem varaformaður flokksins...
InnlentGuðmundur og Jódís lofa stjórnarslitum vilji flokksmenn það: „Við erum vön því að taka samtalið“5. október 2024 Guðmundur Ingi Guðmundsson og Jódís Skúladóttir sem bjóða sig fram til varaformanns hjá Vinstri Grænum lofa stjórnarslitum verði tillaga um slíkt samþykkt á landsfundi. Margir í grasrót flokksins eru orðnir langþreyttir á ríkisstjórnarsamstarfinu í núverandi mynd og telja að flokkurinn hafi fórnað of miklu af gildum sínum á altari Sjálfstæðisflokksins og hefur flokkurinn verið ásakaður að vera hvorki til vinstri...
InnlentJódís segir VG eina raunhæfa valkostinn fyrir vinstrið: „Við erum á tímamótum“4. október 2024 Jódís Skúladóttir segir að Vinstri grænir eigi „mikið erindi í íslenskum stjórnmálum“ en landsfundur flokksins hefst í dag og stendur yfir alla helgina. Fellbæski þingmaðurinn Jódís Skúladóttir skrifaði stutta Facebook-færslu fyrir stundu þar sem hún segir flokkinn vera á tímamótum, nú þegar landsfundur Vinstri grænna hefst í dag. Þar verður meðal annars kosið um nýja forystu í flokknum en Jódís...
InnlentVG kýs um örlög ríkisstjórnar4. október 2024 Á sunnudaginn verður kosið um framtíð ríkisstjórnarinnar á landsfundi Vinstri-grænna sem hefst síðdegis í dag. Svandís Svavarsdóttir er ein í framboði til formanns og verður væntanlega sjálfskjörin. Tillaga liggur fyrir fundinum um að slíta þegar í stað stjórnarsamstarfi við Framsóknarflokk og Sjálfstæðisflokk. Svandís vildi ekki svara því beint í morgun á Rás 1 hver hún teldi að yrðu örlög tillögunnar....
InnlentEinar hæðist að Hildi Sverrisdóttur: „Mottó Flokksins er jú „ríkiskassinn er handa okkur“.“3. október 2024 Einar Steingrímsson hæðist að Hildi Sverrisdóttur í nýrri Facebook-færslu. Stærðfræðingurinn og samfélagsrýnirinn Einar Steingrímsson hæðist að þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, Hildi Sverrisdóttur í færslu á Facebook. Við færsluna hlekkjar hann frétt Vísis þar sem rætt er við Hildi um vilja hennar til þess að ríkissjóður hætti að niðurgreiða ófrjósemisaðgerðir. „Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins er svo ábyrg í ríkisfjármálum að þegar hún leggur til að...
InnlentJón Gnarr vill taka upp aðildarviðræður við ESB: „Svo var þjóðin svikin um kosningaréttinn“2. október 2024 Jón Gnarr segir ekki hafa verið mikill sómi að því hvernig yfirvöld á Íslandi luku aðilarviðræðum við Evrópusambandið árið 2015. Grínistinn, fyrrverandi borgarstjórinn og núverandi Viðreisnarmaðurinn Jón Gnarr skrifaði færslu á Facebook þar sem hann talar um að hann vilji taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Segir hann í sömu færslu að yfirvöld hafi árið 2015 endað viðræðurnar „með...
InnlentNiðurlæging og afhroð Sjálfstæðisflokksins heldur áfram – Flokkurinn minni en Miðflokkurinn2. október 2024 Fylgishrun Sjálfstæðisflokksins heldur áfram ef litið er til nýrrar skoðanakönnunar Gallup. Flokkurinn er nú sá þriðji stærsti með einungis 14 prósenta fylgi. Samfylking er sem fyrr stærst með 26 prósent fylgi og hefur dalað. Hástökkvarinn í könnuninni er Miðflokkurinn sem mælist með 19 prósenta fylgi og hefur þannig lagt Sjálfstæðisflokkinn að baki sér. Ríkisstjórnin mælist með minna fylgi en nokkur...
InnlentHalldór um ástæðuna fyrir afsögninni: „Það á að vera gaman að starfa í flokknum sem maður er í“30. september 2024 Halldór Auðar Svansson segir ástæðuna fyrir því að hann hafi nú sagt af sér formennsku í framkvæmdarstjórn Pírata, eftir aðeins þriggja vikna setu, sé sú að það hafi ekki verið gaman að vera formaður þeirrar stjórnar. Sagt var frá því fyrr í dag að Halldór Auðar Svansson, varaþingmaður Pírata hafi hætt sem formaður framkvæmdarstjórnar en aðeins er tæpur mánuður síðan...
InnlentHalldór Auðar hættur sem formaður framkvæmdarstjóra Pírata – Kosinn í embættið fyrir þremur vikum30. september 2024 Varaþingmaður Pírata, Halldór Auðar Svansson hefur lokið störfum sem formaður framkvæmdarstjórnar Pírata en aðeins er tæpur mánuður síðan kosið var í embættið á aðalfundi flokksins. Í tilkynningu frá framkvæmdarstjórn flokksins kemur fram að Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir hafi nú tekið við formennsku. Samkvæmt heimildum RÚV ætlar Halldór hins vegar að sitja áfram í framkvæmdarstjórninni. Þann 7. september var ný framkvæmdarstjórn kjörin...