SkoðunReynir TraustasonSólargeisli á Ströndum19. júní 2020 Byggð í Árneshreppi á Ströndum hangir bókstaflega á hálmstrái. Aðeins er rúmlega tugur manns með vetursetu í hreppnum. Fleiri búa þar á sumrin þegar vegir eru færir og sólin hátt á lofti. Byggðinni hefur stöðugt hnignað frá þeim tíma á síðustu öld þegar hundruð manna lifðu þar af sjósókn, fiskvinnslu og landbúnaði. Seinustu árin hafa ráðamenn hreppsins einblínt á virkjun...
InnlentFjárfestar áhugasamir um skyrútrás í Bretlandi19. júní 2020 Íslenskir fagfjárfestar hafa brennandi áhuga á að komast að í framleiðslu- og söluverkefni íslenska skyrsins á Bretlandseyjum. Þreifingar þess efnis hafa farið fram við MS án þess að gengið hafi verið frá formlegum samningum. Samkvæmt heimildum Mannlífs hafa ýmsir þekktir íslenskir fagfjárfestar rætt skyrsöluna í Bretlandi við Mjólkursamsöluna. Allir eru þeir öllum hnútum kunnugir og vel tengdir þegar kemur að...
InnlentLætur ekkert stöðva björgun Icelandair19. júní 2020 Takist ekki að finna samningsflöt milli Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands á samningafundi í dag er tilgangslaust að halda viðræðunum áfram. Þá verða aðrar leiðir farnar. Þetta er mat Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair, sem segist ekki ætla að að láta neitt koma í veg fyrir björgun félagsins. Icelandair stefnir á að hafa náð samkomulagi við alla hagsmunaaðila fyrir 29. júní...
InnlentHildur Lilliendahl auglýsir einkaflug frá Kanarí18. júní 2020 Hildur Lilliendahl Viggósdóttir, verkefnisstjóri hjá Reykjavíkurborg, auglýsir einkaflug frá Kanarí næsta mánudag. Það gerir hún í hópi Íslendinga sem búsettir eru á eyjunum en einkavélin fer frá Gran Canaria eyjunni þar sem Hildur var föst í útgöngubanni í vor. Hildur segir fjögur sæti laus í vélinni fyrir örvæntingarfulla landa hennar og að þeir fyrstu sem hafi samband fái sæti. Hún...
InnlentOrðinn þreyttur á að fólk tali miðbæinn niður – „Þetta er svo mikil vitleysa“18. júní 2020 Ólafur Örn Ólafsson, einn eigenda Vínstúkunnar Tíu sopar, er orðinn þreyttur á háværum gagnrýnisröddum þeirra sem tala miðbæ Reykjavíkur niður. „Fjölmiðlaumfjöllun um skipulagsbreytingar í miðbænum gefur oft til kynna að það séu allir rekstraraðilar í bænum sammála um að það sé allt glatað hérna í bænum. En það er ekkert svoleiðis. Miðbærinn hefur aldrei verið eins líflegur og núna. Ég...
HeimurLangar raðir þegar tískuvöruverslanir í Englandi voru opnaðar aftur15. júní 2020 Í morgun voru tískuvöruverslanir víða um England opnaðar aftur eftir þriggja mánaða lokun vegna kórnuveirufaraldursins. Frekari tilslakanir á takmörkunum tóku gildi í Englandi í dag og mega nú allar verslanir opna aftur, þó með ákveðnum skilyrðum. Verslunareigendum er gert að sjá til þess að sóttvarnarreglum sé framfylgt, sem dæmi þarf að setja upp plastskilrúm við alla afgreiðslukassa og merkingar á...
InnlentFjöldatakmörk úr 200 í 50015. júní 2020 Á miðnætti tóku breytingar á samkomubanni gildi hér á landi í samræmi við minnisblað Þórólfs Guðnasonar sóttvarnarlæknis varðandi afléttingu takmarkana vegna kórónuveirufaraldursins. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra samþykkti tillögur Þórólfs um afléttingu takmarkana sem fela meðal annars í sér að fjöldatakmörk þeirra sem koma saman fari úr 200 í 500. Í minnisblaði Þórólfs til Svandísar er einnig lagt til að nú verði...
InnlentPétur Jóhann biðst afsökunar: „Það var ekki ætlun mín að særa“13. júní 2020 Myndband af Pétri Jóhanni Sigfússyni uppistandara, sem Björn Bragi Arnarsson uppistandari tók upp í afmæli Egils Einarssonar einkaþjálfara síðustu helgi hefur farið sem eldur um samfélagsmiðla eftir að Sema Erla Serdar stjórnmála- og Evrópufræðingur og baráttukona fyrir mannréttindum vakti athygli á því á Facebook-síðu sinni. Sjá einnig: Sema Erla sakar Pétur Jóhann, Björn Braga og Egil um rasisma og kvenfyrirlitningu...
InnlentÓráðið hvort ferjur fái viðbótarstyrki vegna COVID-1912. júní 2020 Enn er með öllu óljóst hvort Vegagerðin styrki rekstur íslenskra ferja aukalega í sumar vegna COVID-19 faraldursins. Þetta kemur fram í svari Bergþóru Kristinsdóttur, framkvæmdastjóra þjónustusviðs Vegagerðarinnar. Eini styrkurinn sem hefur verið staðfestur er við Sæferðir á Stykkishólmi vegna ferjusiglingar um Breiðafjörð, líkt og Mannlíf greindi nýverið frá. Sæferðir eru með vetrarsamning við Vegagerðina og þurfti á sumarstyrk að halda...
SkoðunReynir TraustasonRáðherrann og blóraböggullinn12. júní 2020 Þorvaldur Gylfason prófessor nýtur virðingar og trausts langt út fyrir landsteinana. Af þeirri ástæðu bauðst honum staða ritstjóra við norræna tímaritið Nordic Economic Policy Review. Ráðningin var frágengin þegar það kom babb í bátinn. Fjölþjóðleg stjórn útgáfunnar reyndist ekki einhuga. Íslenska fjármálaráðuneytið mótmælti ráðningunni á þeim röngu forsendum að Þorvaldur hefði pólitíska vigt sem fyrrverandi formaður stjórnmálahreyfingar. Fjármálaráðuneytið svaraði fyrirspurn...
InnlentRólegur yfir rannsókninni12. júní 2020 „Ég er mjög rólegur með þetta allt,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um upplifun sína af ásökunum og rannsókn á meintum mútum fyrirtækisins til afrískra ráðamanna og venslamanna þeirra. Héraðssaksóknara hefur verið send réttarbeiðni frá Namibíumönnum vegna málsins. Í samtali við Mannlíf segist hann jafnframt hafa undir höndum töluvert gagnamagn sem verið sé að fara yfir. Samherji er sakaður...
InnlentLofaði skilaboðum frá látnum föður11. júní 2020 Gísli Már Helgason var 12 ára gamall þegar faðir hans lést af slysförum. Bugaður af sorg fullorðnaðist hann hratt, og fimm árum seinna þegar miðill sagðist vera með skilaboð frá föður hans að handan ákvað unglingurinn að treysta því. Í stað þess að bera skilaboð frá látnum föður segir Gísli miðilinn hafa brotið á sér, og það hafi markað líf...