Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Skoðaði fanga með margmilljóna Rolex

Heima­varna­ráð­herra Banda­ríkj­anna hneykslar með glingri í skelfi­legu fang­elsi.

Heimavarnaráðherrann í fangelsinu
Heima­varna­ráð­herr­ann í fang­els­inu „Ekki koma ólög­lega“ sagði Kristi Noem við vænt­an­lega inn­flytj­endur, með gullúrið um úln­lið­inn. Mynd: AFP

Kristi Noem, ráð­herra Heima­varna­ráðu­neytis Banda­ríkj­anna, vakti mikla athygli þegar hún kynnti sér fang­elsi í El Salvador á dög­unum. Þar eru frels­is­sviptir inn­flytj­endur sem sagðir eru hafa ferð­ast ólög­lega til Banda­ríkj­anna. Svo vill til að 250 þeirra voru einnig fluttir ólög­lega úr landi, af Trump-stjórn­inni í and­stöðu við úrskurð alrík­is­dóm­ara.

Það sem vakti athygli í fátæk­legu umhverf­inu í hinu alræmda Cecot-fang­elsi í El Salvador var gullúr um úln­lið banda­ríska emb­ætt­is­manns­ins. Um er að ræða sér­út­gáfu lúxusúra­fram­leið­and­ans Rolex, sem heitir Rolex Cosmograph Daytona og selst á 50 þús­und doll­ara, eða rúm­lega 6,6 millj­ónir króna.

Kristi Noem hefur verið harð­lega gagn­rýnd á sam­fé­lags­miðlum fyrir smekklausan íburð í heim­sókn þar sem fólk lifir við grimmi­legar aðstæður.

Tals­maður heima­varna­ráð­herr­ans sagði að Noem hefði notað höf­unda­tekjur sínar vegna bókar „til að kaupa hlut sem hún gæti gengið með og einn dag­inn arf­leitt börnin sín að“.

Hin 53 ára gamla Noem var áður rík­is­stjóri Suður-Dakóta og kom til greina sem vara­for­seta­efni Donalds Trump áður en hún var skipuð heima­varna­ráð­herra. Hún skrif­aði bók­ina Not my First Rodeo, um upp­lifun sína af því að alast upp á búgarði. Þar lýsti hún því meðal ann­ars þegar hún skaut árás­ar­gjarnan fugla­veiði­hund - og „and­styggi­lega“ geit.

Kristi Noem er langt því frá eini stjórn­mála­mað­ur­inn til að ganga með Rolex. Það gerði líka Joe Biden, Donald Trump, Ronald Reagan og Gerald Ford. Útgáfa Noem er hins vegar ein sú fágætasta og mest eft­ir­sótta af öllum. Hún er til þess fallin að gefa merkja­boð um ríki­dæmi.

Mann­rétt­inda­sam­tök og fleiri hafa varað við því að fólk sé flutt án dóms og laga úr landi inn í hörmu­legar aðstæður. Fang­elsið var byggt árið 2023 og var því ætlað að hýsa 40 þús­und fanga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl en slapp með minniháttar meiðsli
Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Heimur

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Eftirlitsmyndir sýna Holm grípa í Persson á veitingastað í Gautaborg. Sá síðarnefndi hlaut áverka á hálsi og rispur á baki.
Heimur

Einka­dóttir leikkon­unnar Lisu Maxwell látin, 27 ára að aldri

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Heimur

Dán­ar­or­sök leik­ar­ans Anthony Clark komin fram