Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Stór­söngv­ari selur í Laug­ar­dalnum

Fólk

Eitt eft­ir­minn­an­leg­asta hús lands­ins sett á sölu

Fólk

Heitustu jóla­gjaf­irnar 2026

Fólk

Katla stofnar fyr­ir­tæki með móður sinni

Innlent

Séra Hjördís stóð með for­eldrum Bryn­dísar Klöru á þeirra erf­ið­ustu stundum

Pólitík

Inga Sæland hjólar í borg­ar­stjórn

Innlent

Gunnar Smári segir frá sárs­auka­fullum dögum og svefn­lausum nóttum

Minning

Borgþór Vest­fjörð Kjærne­sted er fall­inn frá

Heimur

Gam­an­leik­ar­inn Anthony Clark lát­inn

Innlent

Eft­ir­litið fór fram þrátt fyrir meint veik­indi hús­ráð­anda

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

„Kannski hefur núver­andi for­maður flokks­ins ekki skilið afstöðu Banda­ríkj­anna“

Guðrún og félagar í Washington
Guðrún og félagar í Washington Sveinn Andri þykir lítið til hug­mynda Sjálf­stæð­is­flokks­ins koma Mynd: Facebook

Lög­mað­ur­inn Sveinn Andri Sveins­son gagn­rýnir Sjálf­stæð­is­flokk­inn harð­lega fyrir að leggja til að Ísland stefni að frí­versl­un­ar­samn­ingi við Banda­ríkin. Hann segir flokk­inn ann­að­hvort lifa í „hlið­ar­veru­leika“ eða vera að blekkja kjós­endur sem þekki ekki stöð­una.

Sveinn Andri skrifar færsl­una í kjöl­far þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn greindi frá ferð for­manns og vara­for­manns flokks­ins, Guðrúnar Haf­steins­dóttur og Jens Garðars Helga­sonar, til Washington.

Í færslu sinni segir Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn að Ísland eigi að stefna að frí­versl­un­ar­samn­ingi við Banda­ríkin. Á fundum þeirra í Washington hafi orðið vart við mik­inn áhuga á nán­ara sam­starfi ríkj­anna og telji flokk­ur­inn tíma­bært að sýna sam­bæri­legan metnað í við­skiptum og í varnar- og örygg­is­sam­starfi.

Flokk­ur­inn segir betri aðgang að banda­rískum mark­aði geta skapað ný tæki­færi fyrir íslenskan sjáv­ar­út­veg, nýsköpun og þjón­ustu­fyr­ir­tæki, aukið útflutn­ing og stutt við fjár­fest­ingu og störf hér á landi.

Sveinn Andri segir hins vegar að hug­myndir um frí­versl­un­ar­samn­ing Íslands og Banda­ríkj­anna hafi áður komið upp en jafnan fallið fljótt niður.

Segir ýmsar hindranir í vegi samnings

Hann bendir meðal ann­ars á að Banda­ríkin hafi að hans sögn gert kröfu um nið­ur­fell­ingu tolla á land­bún­að­ar­af­urðum auk þess að vilja aflétta höftum á inn­flutn­ingi erfða­breyttra banda­rískra land­bún­að­ar­af­urða.

Þá sé Ísland aðili að bæði EFTA og Evrópska efna­hags­svæð­inu. Sveinn Andri segir það setja sjálf­stæðum frí­versl­un­ar­samn­ingum Íslands við Banda­ríkin veru­legar skorður.

EES-samn­ing­ur­inn tengir Ísland við innri markað Evr­ópu­sam­bands­ins og Ísland er jafn­framt aðili að EFTA ásamt Noregi, Liechtenstein og Sviss.

Sveinn Andri segir jafn­framt að áhugi Banda­ríkj­anna á sér­stökum við­skipta­samn­ingi við Ísland hafi hingað til verið tak­mark­aður, meðal ann­ars vegna þess hve við­skipti ríkj­anna séu umfangs­lítil og íslenski mark­að­ur­inn lít­ill.

„Kannski hefur núver­andi for­maður flokks­ins ekki skilið afstöðu Banda­ríkj­anna,“ skrifar Sveinn Andri að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

1
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Stefan Holm ákærður fyrir lík­ams­árás eftir árás á Emil Persson

Heimur

Móðir RJ Mitte minn­ist hans mán­uði eftir and­látið

Heimur

„Ég var ekki full­klæddur og fólk úti gat horft beint inn um svefn­her­berg­is­glugg­ann minn!“

Heimur

Rabbíni ferð­ast um Vest­ur­bakk­ann til að kynna sér ofbeldið

Pólitík

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Björn Þorláksson segir málflutning fyrrverandi ráðherra geta skaðað bæði Morgunblaðið og Sjálfstæðisflokkinn.
  • Pólitík

    Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

  • Pólitík

    Jódís segir Sverri snúa út úr orðum sínum

  • Pólitík

    Daði Már segir svar um fundi án for­stjóra hafa verið óná­kvæmt

  • Pólitík

    Vill stofna sann­girn­is­bóta­sjóð vegna illrar með­ferðar á börnum í vistun

  • Pólitík

    „Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“