Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Minn stíll: Forfallinn Asos-aðdáandi

Krist­jana Arn­ars­dóttir hóf störf á íþrótta­deild­inni RÚV síð­ast­lið­inn vetur og kann vel við sig enda hafa íþróttir alltaf verið hennar áhuga­svið.

Minn stíll: Forfallinn Asos-aðdáandi
Aldís Páls­dóttir
„Mig hafði lengi langað í góðan anorakk og fann einn slíkan, einmitt á Asos. App­el­sínu­rauður Adidas-anorakkur sem er flott og góð við­bót í fata­skáp­inn,“ segir Krist­jana.

Hún er með BA-gráðu í mann­fræði og fjöl­miðla­fræði og meistara­gráðu í mark­aðs­fræði. Hún hefur alla tíð búið í vest­urbæ Kópavogs og getur hvergi ann­ars staðar hugsað sér að vera.

„Minn stíll er ofboðs­lega afslapp­aður og kannski frekar hlut­laus,“ segir Krist­jana sem klæðir sig yfir­leitt eftir skapi.

„Fata­skáp­ur­inn minn ein­kenn­ist af svörtu eða rönd­óttu og ég setti því sjálfa mig í smá­vegis bann hvað varðar kaup á slíkum flíkum. Annars er ég algjör kulda­skræfa svo ég er oftar en ekki vel dúðuð.“

„Fata­skáp­ur­inn minn ein­kenn­ist af svörtu eða rönd­óttu og ég setti því sjálfa mig í smá­vegis bann hvað varðar kaup á slíkum flíkum.

Annars er ég algjör kulda­skræfa svo ég er oftar en ekki vel dúðuð. Keypti mér gráar ull­ar­buxur í fyrra í kanadískri verslun sem heitir Aritizia sem eru í miklu upp­á­haldi. Þær hafa komið sér ein­stak­lega vel.

Efst á óska­list­anum er þykk og hlý peysa fyrir haustið og svo sá ég sjúk­lega fal­legan hlé­barða­hlýra­bol og buxur í stíl frá Ganni sem ég er búin að vera með á heil­anum í nokkra daga núna.

Ég er alveg for­fall­inn Asos-aðdá­andi og á það til að leyfa mér aðeins þar.

„Ég er ein af þeim sem get með engu móti notað skart­gripi svo mínir upp­á­halds­fylgi­hlutir eru sól­gler­augun mín.“

Annars elskaði ég að versla þegar ég bjó í Köben, þar eru COS og Weekday í mjög miklu upp­á­haldi.

Svo ættu allir að eiga góðan sam­fest­ing sem auð­velt er að henda sér í þegar fyr­ir­var­inn er skammur.“

Hvaða þekktu ein­stak­lingar veita þér inn­blástur? „Ég fylgi nokkrum skemmti­legum tísku­blogg­urum á Instagram en ann­ars sæki ég bara inn­blást­ur­inn til vin­kvenna minna.“

Áttu þá upp­á­halds­flík? „Mér þykir mjög vænt um camel-lit­uðu kápuna sem ég keypti í COS í Kaup­manna­höfn í fyrra. Mér þykir eig­in­lega meira vænt um hana eftir að ég fékk hana tand­ur­hreina til baka úr hreinsun en dag­inn sem ég keypti hana sprakk ind­verskur tandoori-réttur yfir mig og ég hélt að hún yrði dæmd ónýt sam­stundis. Svo var þó ekki en ég hef vissu­lega ekki þorað að snerta tandoori-rétti síðan.

Svo þegar ég hugsa út í hvaða flík hefur mesta til­finn­inga­lega gildið verð ég eig­in­lega að nefna lopa­peys­una sem mamma prjón­aði á mig fyrir Þjóð­há­tíð eitt árið. Henni fannst ómögu­legt að ég ætti ekki almenni­lega lopa­peysu og hún skellti því í eina á þremur dögum.“

„Ég er mikil kulda­skræfa og féll fyrir þess­ari kápu á Asos.com.“

Rammi:
Fullt nafn: Krist­jana Arn­ars­dóttir.
Aldur: 27 ára.
Starfs­heiti: Íþrótta­f­rétta­kona á RÚV.
Stjörnu­merki: Ljón.
Áhugamál: Íþróttir, tón­list, lík­ams­rækt, ferða­lög, fjall­göngur og bara almennt öll úti­vist.
Á döf­inni: Næst á dag­skrá hjá mér er að skreppa í mjög lang­þráð frí til Spánar. Þetta er í fyrsta sinn á ævinni sem ég er að leyfa mér þann munað að fara í sum­ar­frí og nú ætla ég að skella mér, alveg í heila viku.

Höfundur / Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi