Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óhræddur við að vera hræddur

Það kom þjóð­inni heldur betur á óvart þegar íslenski bar­daga­mað­ur­inn Gunnar Nelson var sleg­inn rot­höggi í síð­asta bar­daga sínum. Flestir bjugg­ust við að hann myndi sigra.

Óhræddur við að vera hræddur
||||

Gunnar er ekki að svekkja sig á tap­inu heldur sér bæði sigra og ósigra sem tæki­færi til að bæta sig. Hann segir mann­legt að finna fyrir ótta en hug­rekki felist í því að sigr­ast á honum. Nú bíður hann því spenntur eftir fregnum um næsta bar­daga og hver and­stæð­ing­ur­inn verður en hver svo sem það verður stefnir Gunnar á sigur.

„Ég hélt að eini vand­inn væri að ég sæi tvö­falt og þá væru alla­vega 50/50 líkur á að ég hitti á réttan gaur.“

„Þetta fór eins og það fór – ég get ekk­ert breytt því núna. Ponzinibbio nátt­úru­lega bara svindl­aði,“ segir Gunnar ákveð­inn. Hann seg­ist muna skýrt eftir bar­dag­anum auk þess sem hann hafi horft á hann aftur til að stað­festa upp­lifun sína. „Þetta var hel­víti hraður bar­dagi og hreint út sagt ömur­legur fyrir mig. Við komum báðir út úr horn­unum í byrjun og þó að hann pressi aðeins næ ég strax nokkuð góðu „uppercut-höggi“ á hann. Þá kemur hann hins vegar út með útrétta hönd og potar djúpt í bæði augun á mér. Eftir það sé ég tvö­falt, sé bók­staf­lega tvo gæja fyrir framan mig. Ég reyni samt að hrista þetta af mér og fela það fyrst dóm­ar­inn gerði ekki neitt. Ég næ inn sparki og kannski höggi en svo kemur högg frá honum sem rétt fer fram hjá mér og þá átta ég mig á því að ég skynja ekki fjar­lægð­ina á milli okkar rétt. Ég hélt að eini vand­inn væri að ég sæi tvö­falt og þá væru alla­vega 50/50 líkur á að ég hitti á réttan gaur. Hann nær höggi á mig, grípur í bux­urnar mínar og dregur mig til sín, svo þegar ég er kom­inn upp við búrið og er að reyna að verja mig potar hann aftur í augun á mér. Þannig að ég er með lokuð augun þegar hann nær rot­högg­inu.“

Gunnar datt ekki lengi út en þetta var svo­kallað „flash-knockout“ sem þýðir að bar­daga­kapp­inn rot­ast aðeins í nokkrar sek­úndur og þegar hann rankar við sér er hann hvorki vank­aður né ringlaður. „Þetta er svona „best case scenario-rot­högg“. Ég vissi alveg hvar ég var og hvað væri í gangi.“

„Upp­runa­lega eru þetta samt sjálfs­varnar­í­þróttir og til þess að þú lærir að verja þig þarf auð­vitað ein­hver að ráð­ast á þig. Þetta snýst því um að yfir­buga and­stæð­ing­inn, ekki ráð­ast á hann.“

Í við­tölum strax eftir bar­dag­ann tók Gunnar stóran hlut ábyrgð­ar­innar á sig og sagði að hann hefði átt að stoppa bar­dag­ann strax. Þessu voru hins vegar faðir hans, Haraldur Dean Nelson, og þjálf­ari, John Kavannagh, ekki sam­mála og sam­kvæmt reglum getur aðeins dóm­ari stöðvað bar­daga, ekki bar­daga­kappi. „Ég hefði kannski getað reynt að gera dóm­ar­anum við­vart að það væri ekki í lagi með mig. Það getur samt verið áhættu­samt fyrir mig að taka um augun eða ná til dóm­ar­ans því and­stæð­ing­ur­inn getur þá nýtt tæki­færið og slegið til manns.“

Vildi setja fordæmi

Gunnar fór fremur sig­ur­viss inn í bar­dag­ann við Ponzinibbio, eins og flesta aðra bar­daga. Ef ekki hefði verið fyrir meint svindl and­stæð­ings­ins hefði hann að öllum lík­indum staðið uppi sem sig­ur­veg­ari, eins og svo margir bjugg­ust við. Gunnar og teymið hans ákváðu því að kæra útkom­una til UFC. „Til að byrja með var ég ekki viss um að ég vildi standa í því, ég nennti ekki að eyða meiri tíma og púðri í þetta. Það er mjög erfitt að fá útkomu bar­daga breytt eða hnekkt, jafn­vel þó að maður geti sýnt fram á svindl og manni finn­ist það vera borð­leggj­andi.“

Ein af upp­haf­legu grunn­reglum UFC segir að það megi ekki pota í augu and­stæð­ings­ins og í árs­byrjun var nýrri reglu bætt inn til að styðja þá grunn­reglu sem bannar bar­daga­mönnum að slá í átt að and­liti með ókrepptan hnefa. Gunnar kærði því úrslitin fyrst og fremst til að vekja athygli á þessu broti og setja for­dæmi. „Ef ég hugs­aði um íþrótt­ina í heild og ekki bara um sjálfan mig þá var rétt­ast að kæra. Þetta mun ábyggi­lega ger­ast aftur og von­andi verður það minna mál fyrir næsta sem lendir í þessu.“

UFC hafn­aði loks kærunni í sept­em­ber svo úrslitin standa. Þó að sú ákvörðun hafi ekki komið Gunnari og teymi hans á óvart var hún engu að síður mikil von­brigði. „Ég var kom­inn á skrið þarna og þetta sló mig aftur,“ segir Gunnar en hann féll niður um tvö sæti á styrk­leika­lista UFC við tapið. „Þetta er auð­vitað fúlt en það eina sem ég get gert er að læra af þessu. Ég lít á þetta sem reynslu og vega­nesti fyrir fram­tíð­ina. Þótt það sé erfitt að reyna að stoppa svindl­ara veit ég alla­vega að ef ég lendi í ein­hverju álíka aftur mun ég reyna að láta dóm­ar­ann vita svo hann geti stöðvað bar­dag­ann – og reyna að vera ekki sleg­inn niður áður. Maður þarf að fá tæki­færi til að jafna sig eftir svona árás, því það er frekar áríð­andi að sjá almenni­lega í bar­daga,“ segir Gunnar og hlær.

Hingað til hefur Gunnar kom­ist hjá því að fá á sig þung höf­uð­högg eða rot­högg. Hann seg­ist þó alltaf verið und­ir­bú­inn undir það og þetta muni því ekki breyta neinu hvað varðar þjálfun. „Við pössum okkur mikið á höf­uð­höggum. Við æfum aðeins með létt­ari höggum, menn bera virð­ingu fyrir og vita hvenær þeir fá á sig högg, án þess að við þurfum alltaf að vera að slá í gegn. Þetta er samt fín lína því auð­vitað þurfa menn að upp­lifa ork­una sem þeir munu finna í alvöru bar­daga án þess að verða fyrir óþarfa skaða á æfingu. Þá er hætta á að menn veðrist of mikið á að æfa.“

„Það er eðli­legt að upp­lifa alls kyns til­finn­ingar, bæði jákvæðar og nei­kvæðar, en það sem skiptir máli er hvernig maður tekst á við þær.“

MMA er lífsstíll

Gunnar var mjög orku­mik­ill sem barn – það þurfti mikið að hafa fyrir honum og hafa ofan af fyrir honum. For­eldrum hans var því strax ljóst að hann hefði gott af því að stunda íþróttir. Gunnar fékk snemma áhuga á á bar­daga­í­þróttum. Faðir hans, Haraldur Dean Nelson, var mik­ill áhuga­maður og hafði bæði æft karate og kick-box á sínum tíma. Þeir feðgar horfðu oft saman á Bruce Lee-myndir og Gunnar vildi strax fara að æfa karate. Haraldur hvatti hann hins vegar til að æfa íshokkí því honum fannst hann þurfa íþrótt sem byði upp á meiri hasar og hreyf­ingu, en karate ein­kenn­ist fyrst og fremst af miklum sjálf­saga og ein­beit­ingu. Algengt er að börn missi áhug­ann og flosni upp úr karate á ung­lings­ár­unum og Haraldur vildi síður að það kæmi fyrir Gunnar.

Hann var því þrettán ára þegar hann hóf loks að æfa karate og náði strax miklum árangri. Hann vann Íslands­meist­ara­tit­il­inn í sínum flokki rúmu ári síðar og hélt þeim titli næstu tvö árin. Árið 2005, þegar hann var aðeins sextán ára, var Gunnar val­inn efni­leg­asti karate-maður lands­ins en skömmu síðar hætti hann og sneri sér alfarið að MMA.

Í dag lítur hann á MMA sem lífs­stíl og segir íþrótt­ina hafa gefið sér mikið. „Maður lærir svo mikið um sjálfan sig. Ég er til að mynda skap­stór, og hef alltaf verið, en í gegnum MMA hef ég lært að hafa stjórn á til­finn­ingum mínum. Í búr­inu koma ýmsar til­finn­ingar upp á yfir­borðið og þær geta hlaupið með mann í gönur. Maður þarf því að beisla þær, nýta ork­una úr þeim og tækla and­stæð­ing­inn og bar­dag­ann með rök­festu og skyn­semi.

„Ég held að ég hafi alltaf verið með dálít­inn athygl­is­brest. En ég á mjög auð­velt með að ein­beita mér svo lengi sem það er ein­hver hreyf­ing og hraði á hlut­unum.“

Þetta hefur líka hjálpað mér í aðstæðum í líf­inu utan íþrótt­ar­innar. Það er eðli­legt að upp­lifa alls kyns til­finn­ingar, bæði jákvæðar og nei­kvæðar, en það sem skiptir máli er hvernig maður tekst á við þær. Þú ert ekki verri mann­eskja þótt þú verðir reiður eða afbrýð­is­samur, eða hvað sem það er, heldur er það hvað þú gerir við þessar til­finn­ingar sem skil­greinir þig og per­sónu þína.“

Gunnar seg­ist líka geta verið mjög óþol­in­móður og afar ör í hugsun. „Ég er oft far­inn að hugsa um tutt­ugu hluti í einu. Ég held að ég hafi alltaf verið með dálít­inn athygl­is­brest. En ég á mjög auð­velt með að ein­beita mér svo lengi sem það er ein­hver hreyf­ing og hraði á hlut­unum.“

Það er stundum talað um að hug­ur­inn skipti jafn­miklu máli og lík­ams­formið í bar­daga­listum. Tap getur óneit­an­lega haft meiri og verri áhrif á hug­ann en Gunnar vill meina að það skipti máli hvernig menn líti á og vinni úr tap­inu. „Þú ákveður hvaða áhrif það hefur; ætlarðu að nota það, læra af því og láta það gera þig hungr­að­ari eða ætlarðu að koðna niður? Sumir bar­daga­menn eru mjög háðir sviðs­ljós­inu og kok­hraustir út á við. Ég gæti alveg trúað því að það fari illa með þá að tapa. Jú, jú, það er alltaf skemmti­legra að vinna en ég lít á allt sem tæki­færi til að bæta mig. Ég horfi til baka og tek það sem ég þarf úr upp­lifun­inni en held svo áfram.“

Harkaleg íþrótt, ekki ofbeldi

Tíu ár eru liðin síðan Gunnar fór út í atvinnu­mennsku í MMA og á þeim tíma hefur hann barist í tutt­ugu bar­dögum; það gerir sextán sigra, þrjú töp og eitt jafn­tefli. Í ár átti hann einnig fimm ára UFC-afmæli. Aðspurður hvaða bar­dagi hafi verið erf­ið­astur segir Gunnar það tví­mæla­laust hafa verið við Demian Maia. Gunnar var ekki heill heilsu skömmu fyrir þann bar­daga. „Ég átti ein­fald­lega mjög slæmt kvöld og veit ekki nákvæm­lega hvers vegna. Ég var sprækur í koll­inum en mér fannst orku­birgðir mínar klár­ast alltof hratt og lík­am­inn þreyt­ast við litla áreynslu. Ég hef aðeins reynt að stúd­era þetta en eina nið­ur­staðan sem ég hef kom­ist að er að það er bara daga­munur á mönnum og þetta var ekki minn dagur.“

Á þessum árum hefur hann lært eitt og annað. „Af Maia-bar­dag­anum lærði ég gef­ast ekki upp þrátt fyrir þreytu. Ég var gjör­sam­lega búinn á því og hefði oft getað fundið leið út en gerði það ekki heldur hélt áfram að berj­ast. Það er jákvæð lexía sem ég gat tekið úr þeim bar­daga.“

Bar­daga­stíll Gunnars er sagður óhefð­bund­inn og hann tekur alveg undir það. „Ég byrj­aði í karate og er því með hraða fóta­vinnu, þennan inn og út stíl sem tíðkast þar, en síðan hef ég líka varið mjög miklum tíma á gólf­inu í glímu. Þessi sam­setn­ing sést ekki oft og er fremur sjald­gæf – menn eru yfir­leitt góðir í öðru hvoru. Annars er kannski erfitt fyrir mig að lýsa stílnum. Ég reyni samt stöðugt að bæta hann. Mér finnst gott að hafa eitt­hvað að vinna í, eitt­hvað til að bæta. Ég er ekki beint með stór, ákveðin mark­mið sem ég stefni að heldur þykir mér gaman að dunda við eitt­hvað og æfa mig. Ég er dálít­ill „craftsman“ og vil vinna að ein­hverjum hæfi­leika, bæta og þróa hann.

„Ég veit það sjálfur að mér finnst oft miklu óþægi­legra þegar ein­hver náinn mér er að fara að berj­ast heldur en þegar ég sjálfur geri það. Það getur verið mjög stressandi.“

MMA hefur iðu­lega verið gagn­rýnt fyrir að vera ofbeld­is­full íþrótt en Gunnar bendir á að það sé ekki hægt að tala um ofbeldi þegar tveir þraut­þjálfaðir ein­stak­lingar tak­ist á í bar­daga sem þeir hafi báðir sam­þykkt. „Það eru fjöl­margar íþróttir hættu­legar og MMA er alls ekki hættu­leg­asta íþróttin, það er bara stað­reynd. Þetta er samt mjög harka­leg íþrótt og það getur stuðað fólk sem finnst kannski að eini til­gang­ur­inn með íþrótt­inni sé að meiða ein­hvern. Upp­runa­lega eru þetta samt sjálfs­varnar­í­þróttir og til þess að þú lærir að verja þig þarf auð­vitað ein­hver að ráð­ast á þig. Þetta snýst því um að yfir­buga and­stæð­ing­inn, ekki ráð­ast á hann. Regl­urnar eru eins góðar og hægt er án þess að gera bar­dag­ann óraun­hæfan. Auk þess eru læknar á staðnum ef eitt­hvað skyldi fara úrskeiðis. Það er mjög góð umgjörð utan um þetta.“

Gunnari er yfir­leitt lýst sem yfir­veg­uðum og rólegum gaur, innan og utan búrs­ins. Það virð­ist lítið fá á hann en það er ekki þar með sagt að hann hræð­ist ekk­ert. „Auðvitað verð ég smeykur. Það er allt í lagi að verða hræddur, bara mann­legt, en ætlarðu að leyfa ótt­anum að stjórna þér eða ætlar þú að horfast í augu við hann? Hugrekki er að mínu mati afar góður eig­in­leiki en það þýðir ekki að þú verðir ekki hræddur heldur nærðu að sigr­ast á hræðsl­unni – þú ert óhræddur við að vera hræddur,“ segir hann.

„Ég geri ráð fyrir að berj­ast í nokkur ár í við­bót en er ekki með neinn ákveð­inn tíma í huga. Ég er voða­lega lítið að hugsa langt fram í tím­ann, tek frekar einn dag í einu.“

Einstök stöð

Hefð­bundnum degi í lífi Gunnars er mest­megnis varið í Mjölni þar sem hann bæði æfir og kennir. Hann er einn tíu stofn­með­lima íþrótta­fé­lags­ins sem var sett á lagg­irnar árið 2005. Í febr­úar á þessu ári tóku þeir í gagnið nýja aðstöðu í Öskju­hlíð þar sem Keilu­höllin og Rúbín voru einu sinni til húsa. Þar er að finna sex æfinga­sali, lyft­inga- og teygju­að­stöðu, þrek­tæki, MMA-búr, box­hring, barna­horn og margt fleira.

„Mjölnir er ein­stakt batt­erí. Ég hef ferð­ast víða, nán­ast um allan heim, og farið í stöðvar en það jafn­ast ekk­ert á við Mjölni. Það er frá­bær andi þar inn­an­dyra og það segja það líka allir sem koma hingað. Þótt þetta sé bar­daga­klúbbur er ábyggi­lega minni tudda­skapur hér en í margri annarri lík­ams­rækt.

Við leyfum ekki dæmdum og þekktum afbrota­mönnum að æfa í Mjölni, svo ég tali nú ekki um þá sem hafa verið dæmdir fyrir lík­ams­árásir, við viljum ekki sjá þá. Þetta er íþrótt og við viljum bara hafa fólk sem hefur gaman af því að taka á því, svitna, læra eitt­hvað og vera í góðum félags­skap. Það er það sem við stöndum fyrir,“ segir hann.

Gunnar fer ýmist á eina eða tvær æfingar á dag og æfing­arnar eru mis­erf­iðar. „Á mánu­dögum, til dæmis, kenni ég í hádeg­inu, klukkan eitt fer ég á æfingu þar sem ég tek mjög vel á því í einn og hálfan tíma. Eftir slíkar æfingar geri ég yfir­leitt lítið um kvöldið, ef eitt­hvað, kannski helst ein­hverja tækni­lega æfingu.“
Hann æfir jafnt og þétt yfir árið og tekur sér sjaldan hlé frá æfingum. Fyrir bar­daga tekur hann svo­kallað „camp“ þar sem hann trappar upp æfing­arnar og tekur fleiri spretti en vana­lega. „Maður verður samt að passa sig og halda lík­am­anum góðum, það er ekki gott að lenda í ofþjálfun. Það skiptir miklu máli að skipu­leggja campið vel og hafa góða blöndu af þungum og léttum æfingum svo maður nái hvíld. Eftir bar­dag­ann er svo líka mik­il­vægt að taka smá­pásu frá æfingum til að halda geð­heils­unni – þetta snýst um jafn­vægi.“

Glímir við soninn

Þegar Gunnar er ekki í Mjölni lifir hann ósköp venju­legu lífi. Aðra hverja viku er hann með son sinn, Stíg Tý Nelson, og vaknar fyrr þá daga til að koma honum af stað í leik­skól­ann. Þar fyrir utan ver hann tíma með kær­ustu, vinum og fjöl­skyldu, horfir á sjón­varpið og spilar Playstation.

Gunnar er í sam­bandi með Fransisku Björk Hin­riks­dóttur en þau kynnt­ust fyrir um ári. Hún er að hans sögn orðin nokkuð vön að horfa á hann berj­ast.

„Ég er skap­stór, og hef alltaf verið, en í gegnum MMA hef ég lært að hafa stjórn á til­finn­ingum mínum.“

„Það er auð­vitað ekk­ert sér­stak­lega þægi­legt fyrir hana, eða almennt þá sem standa mér næst, að horfa á mig í búr­inu. Ég veit það sjálfur að mér finnst oft miklu óþægi­legra þegar ein­hver náinn mér er að fara að berj­ast heldur en þegar ég sjálfur geri það. Það getur verið mjög stressandi. Hún tekur því samt bara mjög vel.“

Stígur Týr er orð­inn þriggja og hálfs árs og far­inn að átta sig á hvað faðir hans gerir. „Honum finnst gaman að skugga­boxa, glíma og þess háttar – hann er aðal­lega í því að glíma við mig. Hann er rosa­lega orku­mik­ill og algjör gaur. Mamma vill meina að ég hafi átt hann full­kom­lega skilið miðað við hvernig ég var sem barn.

Ég mun klár­lega leyfa honum að prófa barna­starfið hérna í Mjölni þegar hann verður eldri, sjá hvort hann hafi gaman af því. Það er frá­bær­lega vel staðið að barna­starf­inu og það er bara gott fyrir krakka að bæta almenna hreyfi­getu og fá aðeins að takast á á vina­legan hátt. Það er hollt og þrosk­andi. Það eru dæmi um krakka sem hafa komið og átt eitt­hvað erfitt með sig en hér hafa þau byggt upp sjálfs­traust og róast í sjálfum sér. Fyrir suma þá er þessi íþrótt bara algjör­lega málið.“

Aðspurður um hvernig faðir hann sé segir Gunnar að það verði bara að spyrja Stíg að því. „Ég hef alla­vega ákveðnar skoð­anir á hvernig ég vil ala hann upp. Mér finnst gott að leyfa honum að finna út úr hlut­unum sjálfur en læt hann jafn­framt ekki kom­ast upp með bull og frekju. Maður þarf að láta þau vita hvað sé í lagi og hvað ekki. Krakkar þurfa að fá að takast á við sín vanda­mál og taka út pirr­ing eða óánægju en svo er það bara búið. Það er í raun mjög ein­falt að halda honum glöðum svo lengi sem maður er dug­legur að finna upp á ein­hverju nýju að gera. Krakkar vilja enda­laust læra eitt­hvað nýtt þannig að stundum er nóg að breyta um umhverfi eða stemn­ingu.“

Kallar eftir bardaga

Í mörgum íþróttum ná menn hátindi sínum milli tví­tugs og þrí­tugs en það er ekki óal­gengt að bar­daga­kappar í MMA séu að toppa sig seinna. Gunnar er til dæmis tutt­ugu og níu ára og enn að bæta sig. „Ég geri ráð fyrir að berj­ast í nokkur ár í við­bót en er ekki með neinn ákveð­inn tíma í huga. Ég er voða­lega lítið að hugsa langt fram í tím­ann, tek frekar einn dag í einu. Ég mun samt alltaf vera í þessu sporti með einum eða öðrum hætti. MMA er svo hrika­lega stór hluti af mér og ég elska íþrótt­ina af öllu hjarta. Þótt ég hætti að berj­ast þá er það bara partur af ferða­lag­inu, vissu­lega stór partur, en ég mun halda áfram að kenna og þróa þessa íþrótt.

Eftir Ponzinibbio-bar­dag­ann tók Gunnar sér hlé til að jafna sig almenni­lega. Reglur UFC kveða á um að bar­daga­kappar séu settir í fjöru­tíu og fimm daga keppn­is­bann eftir rot­högg en teym­inu fannst það vera of lítið. „Ég er til­tölu­lega nýfar­inn að æfa aftur að ráði, kannski rúm vika síðan ég byrj­aði af kappi. Síðustu æfingar hafa gengið mjög vel og ég er bara að koma mér aftur í topp­form. En ég er búinn að jafna mig og til­bú­inn í næsta bar­daga.“

„Mjölnir er ein­stakt batt­erí. Ég hef ferð­ast víða, nán­ast um allan heim, og farið í stöðvar en það jafn­ast ekk­ert á við Mjölni. Það er frá­bær andi þar inn­an­dyra og það segja það líka allir sem koma hingað.“

Það vakti athygli nýverið þegar Gunnar virt­ist kalla eftir bar­daga við Darren Till í athuga­semd á Instagram. Till kom inn í UFC nýverið með hvelli og sagði að allir væru of hræddir við að berj­ast við hann. Gunnar svar­aði þess­ari stað­hæf­ingu með orð­unum: „Ég er til stóri strákur.“ „Það urðu ein­hveru upp­þot í kringum þessi ummæli mín á Netinu. En ég er til í bar­daga og Darren tók líka vel í þennan mögu­leika. Þetta kemur bara í ljós en mér finnst lík­legt að á næstu vikum til­kynni UFC hvenær ég muni berj­ast næst og við hvern það verður,“ segir Gunnar að lokum og það er greini­legt að hann er hvergi bang­inn.

Höfundur / Hildur Frið­riks­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi