Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Innlit á veitingastaðinn Flatey Pizza úti á Granda

Á hvössum og köldum haust­degi kíktu blaða­maður og ljós­mynd­ari inn í hlýj­una á nýjum veit­inga­stað úti á Granda.

Innlit á veitingastaðinn Flatey Pizza úti á Granda

Vinirnir Haukur Már Gestsson, Brynjar Guð­jóns­son, Sindri Snær Jensson og Jón Davíð Dav­íðs­son standa að staðnum en Sindri Snær og Jón Davíð eru þekktir í tísku­heimi Reykja­víkur. Þeir eru eig­endur versl­un­ar­innar Húrra Reykja­vík sem er starf­rækt á tveimur stöðum á Hverf­is­göt­unni og hefur átt góðu gengi að fagna.

Hvað kom til að þeir ákváðu að opna saman pítsu­stað? „Við erum æsku­vinir úr Laug­ar­dalnum og þetta byrj­aði á því að við Binni fórum að þróa með okkur þrá­hyggju fyrir ákveð­inni pít­su­gerð­ar­hefð eftir að hafa upp­lifað hana erlendis,“ segir Haukur. „Svo fórum við að spjalla við Sindra og Jón sem urðu strax mjög heill­aðir, en þeir höfðu þá verið að láta sig dreyma um að opna veit­inga­hús í nokkurn tíma. Eitt leiddi af öðru og á end­anum fórum við saman í vís­inda­ferð til London, borð­uðum á tíu Napo­let­ana-pítsu­stöðum á þremur dögum og í kjöl­farið ákváðum við að kýla á þetta.“

„Það þarf mikla þjálfun til að gera svona pít­sur, sér­stak­lega ef maður ætlar að gera það almenni­lega.“

Haukur hefur lengi haft áhuga á pít­su­gerð. „Ég hafði verið að fikta við súr­deigs­bakstur í nokkur ár og svo smakk­aði ég þessa teg­und af pítsu í New York árið 2009. Síðan þá hef ég verið að leika mér að þessu heima hjá mér.“

Greini­legt er að pít­su­gerð er mikil ástríða hjá vin­unum. Eftir að hafa afráðið að opna veit­inga­stað­inn, ákváðu Brynjar og Haukur að ferð­ast til Napólí til að ná betri tökum á þeirri list að baka Napólíp­ít­sur. „Það þarf mikla þjálfun til að gera svona pít­sur,“ segir Haukur, „sér­stak­lega ef maður ætlar að gera það almenni­lega. Við vörðum tveimur vikum í Napólí og hittum alla þá sem vildu fræða okkur um þessa pít­su­hefð, m.a. AVPN-sam­tökin um verndun Napólíp­ít­su­hefðar. Svo eyddum við auð­vitað drjúgum tíma á mörgum af þekkt­ustu pítsu­stöð­unum í Napólí, en í heild­ina eru um fjögur þús­und pítsu­staðir í borg­inni.“

Viðtalið í heild má lesa í köku­blaði Gest­gjafans.

Umsjón / Nanna Teits­dóttir
Myndir / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni