Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bláskel í stuttu máli

Bláskel er einnig þekkt undir heit­unum kráku­skel eða kræk­lingur. Vitað er að mað­ur­inn hefur borðað blá­skel í þús­undir ára.

Bláskel í stuttu máli

Bláskel er sælin­dýr í fal­legri svar­blárri sam­loku­skel sem festir sig oft með spuna­þráðum við steina og reipi. Elsta aðferðin við ræktun á blá­skel eru staurar sem festir voru í grunnu sjáv­ar­vatni og þar óx kræk­ling­ur­inn en víða er hann rækt­aður á reipum sem hanga niður úr stórum flekum. Kræk­lingur er hluti af stórri ætt sælin­dýra og fyr­ir­finn­ast bæði í ferskvatni og sjáv­ar­vatni en þó er kræk­lingur sem kemur úr sjáv­ar­vatni not­aður til mann­eldis þar sem hinn þykir ekki lyst­ugur.

Belgar, Hol­lend­ingar og Frakkar borða mikið af blá­skel og þar er hún oft borin fram elduð í soði með frönskum kart­öflum og þekk­ist sem rétt­ur­inn moules frites. Einnig er blá­skelin borin fram með góðu brauði sem notað er til að klára allt soðið. Hol­lend­ingar eru einnig þekktir fyrir að djúp­steikja blá­skel­ina og selja sem skyndi­bita.

Margir veigra sér við að elda blá­skel en sé ákveðnum reglum fylgt eftir við verkun og eldun þá er hún leikur einn. Bláskel er léttur og skemmti­legur sum­ar­matur og afar mik­il­vægt er að nostra svo­lítið við soðið sem skel­fisk­ur­inn er eld­aður upp úr. Oft er hvítvín eða bjór notað í soðið og því betra að vera með gæða­vín og bjór til að tryggja að soðið verði sem allra best.

Margar fisk­búðir selja ferska blá­skel sem ræktuð er á Íslandi. Gott er að vera í sam­bandi við sína fisk­búð til að athuga hvenær blá­skelin er keyrð út því best er að fá hana sem fers­kasta og svo selst hún yfir­leitt mjög hratt og því betra að vera und­ir­bú­inn frekar en að koma að tómu borð­inu.

Áður en blá­skelin er elduð þarf að verka hana. Gott er að nota lít­inn bursta og skrúbba kræk­ling­ana undir renn­andi köldu vatni til að losa þá við hreistur og önnur óhrein­indi sem setj­ast utan á skelj­arnar. Stundum finn­ast lítil skegg á skelj­unum sem hægt er að tosa af með fingr­unum eða skrapa af með litlum hníf.
Brotnum skeljum skal henda og ef blá­skelin er opin skal banka henni ákveðið við eld­hús­bekk­inn og sjá hvort hún loki sér. Loki hún sér ekki er kræk­ling­ur­inn lík­leg­ast dáinn og því best að fleygja skel­inni.
Mjög mik­il­vægt er að láta blá­skel­ina ekki liggja í bleyti þar sem þeir lifa í salt­vatni og kafna í hreinu krana­vatn­inu.

Þegar blá­skelin er elduð þarf að nota góðan pott með loki því hún þarf að gufu­sjóða í soð­inu í nokkrar mín. Gott er að taka pott­inn og hrista hann til einu sinni til tvisvar í eld­un­ar­ferl­inu til að hann eld­ist jafnt. Ef pott­ur­inn er þungur er líka hægt að taka lokið af og hræra með tré­sleif í stað­inn.
Kræk­ling­ur­inn er til­bú­inn þegar lang­flestar skelj­arnar hafa opn­ast. Þær skeljar sem enn eru harð­lok­aðar er best að henda.

Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni