Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Læknir í sauðagæru: „Lygar hans virkuðu“

Læknir í sauðagæru: „Lygar hans virkuðu“
|

Það brut­ust út mikil fagn­að­ar­læti á mið­viku­dag­inn síð­asta þegar Larry Nassar, fyrr­ver­andi læknir fim­leika­lands­liðs Banda­ríkj­anna, var dæmdur í 40 til 175 ára fang­elsi fyrir að mis­nota tugi fim­leika­kvenna kyn­ferð­is­lega. Fórn­ar­lömb hans og fjöl­skyldur þeirra féllust í faðma og felldu tár en það má með sanni segja að hug­rekki og sam­staða þeirra 156 kvenna sem stigu fram og sögðu frá ofbeld­inu hafi ekki aðeins komið lækn­inum á bak við lás og slá það sem eftir er af ævi hans, heldur einnig veitt fjölda kvenna inn­blástur um allan heim til að opna sig um sína reynslu af kyn­ferð­is­legu ofbeldi og áreitni.

„Þú átt ekki skilið að ganga út úr fangelsi nokkurn tímann aftur“

And­rúms­loftið var spennu­þrungið þegar dóm­ar­inn Ros­emarie Aquilina las upp sínar hug­leið­ingar um málið og síðan loks dóm­inn sjálfan.

„Ég hef sagt það sem ég þurfti að segja við fórn­ar­lömbin. Ég hef samt aðeins meira að segja: Þið eruð ekki lengur fórn­ar­lömb, þið eruð mann­eskjur sem lifðu af. Þið eruð mjög sterkar og ég hef talað við ykkur allar í ein­rúmi,“ sagði Ros­emarie áður en hún sagð­ist hafa skrifað undir dauða­dóm Larry Nassar.

„Þú átt ekki skilið að ganga út úr fang­elsi nokkurn tím­ann aftur,“ sagði dóm­ar­inn og bætti við.

„Hvert sem þú myndir fara, myndir þú eyði­leggja þá sem liggja best við höggi.“

Hægt er að lesa alla ræðu Ros­emarie Aquilina þegar hún kvað upp dóm yfir lækn­inum með því að smella hér. En einnig er hægt að horfa á dóm­inn hér fyrir neðan:

Fyrsta fórnarlambið sem steig fram átti lokaorðið

Upp­haf­lega áttu 88 stúlkur og konur að bera vitni gegn Larry Nassar í þessu máli sem talið er vera það stærsta sinnar teg­undar innan banda­ríska íþrótta­heims­ins, og þó víðar væri leitað. Þessi fjöldi vitna hins vegar næstum því tvö­fald­að­ist þegar yfir­heyrslur hófust. Ein af annarri færðu þær rétt­ar­salnum, og í raun öllum heim­inum, vitn­is­burð sinn. Þær stóðu fyrir framan kval­ara sinn og ávörp­uðu mann­inn sem braut traust svo margra ungra íþrótta­kvenna og fjöl­skyldna þeirra.

Síðasta fórn­ar­lambið sem tal­aði við rétt­ar­höldin var fyrr­ver­andi fim­leika­stjarnan Rachael Den­hollander. Má segja að það hafi verið tákn­rænt að hún hafi átt loka­orðið þar sem hún var sú fyrsta sem kom opin­ber­lega fram og sak­aði lækn­inn um kyn­ferð­is­legt ofbeldi, nánar til­tekið í við­tali við frétta­mið­il­inn Indi­ana­polis Star í sept­em­ber árið 2016.

„Síðustu sextán árin hef ég gert mér grein fyrir því að ég ber ábyrgð, og hvort ég eigi að tala opin­ber­lega eða ekki snýst ekki um hvað sé auð­velt fyrir mig að gera. Þetta er ekki eitt­hvað sem mig langar að gera,“ sagði Rachael í við­tal­inu á sínum tíma, en rann­sókn­ar­vinna Indi­ana­polis Star var það sem sann­færði hana um að stíga fram.

Rachael kærði Larry Nassar vegna með­ferðar sem hún fékk við mjó­baks­verkjum þegar hún var fimmtán ára árið 2000. Hún sótti fimm tíma hjá lækn­inum og sagði að í hverjum tíma hefði hann orðið aðgangs­harð­ari en þeim fyrri. Hún sagði hann hafa nuddað kyn­færi sín, stungið tveimur fingrum upp í leggöng sín og enda­þarm og tekið sig úr brjósta­hald­ara og nuddað brjóst sín. Í við­tali við Indi­ana­polis Star sagði Rachael að móðir hennar hefði komið með henni í alla tíma en að lækn­ir­inn hafi snúið henni þannig að móðir hennar sá aðeins höfuð hennar og bak.

„Ég var log­andi hrædd. Ég skamm­að­ist mín. Ég fór svo mikið hjá mér. Og ég var mjög ringluð þegar ég reyndi að skilja það sem var að ger­ast í ljósi þess hvaða mann­eskja hann átti að vera. Hann var frægur læknir. Vinir mínir treystu honum. Aðrar fim­leika­konur treystu honum. Hvernig gat hann verið í þess­ari stöðu innan lækna­stétt­ar­innar, hvernig gat hann náð til slíkra met­orða ef þetta var sá sem hann var?“ sagði Racheal.

Þöggun innan fimleikastéttarinnar

Þetta við­tal og rann­sókn­ar­vinna Indi­ana­polis Star afhjúp­uðu Larry Nassar sem kyn­ferð­is­a­brota­mann sem hafði fengið að brjóta ítrekað á fim­leika­konum um ára­bil. Það sann­færði einnig fleiri konur að stíga fram, sem kom Rachael á óvart.

„Ég vissi hve margar konur Larry hafði brotið á. Hvort ein­hver af þeim myndi þora að stíga fram var alltaf óvissa,“ sagði Rachael.

Í þessu viða­mikla máli hefur ekki aðeins óeðli lækn­is­ins verið afhjúpað heldur einnig þöggun innan fim­leika­stétt­ar­innar um hegðun hans. Eftir að Larry var dæmdur í fang­elsi létu þrír stjórn­ar­menn banda­ríska fim­leika­sam­bands­ins af störfum, þau Paul Parilla, for­maður fim­leika­sam­bands­ins, Jay Binder, vara­for­mað­ur­inn og Bitsy Kelley, gjald­ker­inn. Þá hefur John Geddert, þjálf­ara fim­leika­lands­liðs­ins á Ólymp­íu­leik­unum í Lundúnum 2012 og nánum sam­starfs­manni lækn­is­ins, verið vikið frá störfum á meðan hann er rann­sak­aður. Svo var það Lou Anna Simon, rektor Michigan State-háskól­ans sem sagði af sér nokkrum klukku­tímum eftir að lækn­ir­inn var dæmdur í fang­elsi, en Larry starf­aði við háskól­ann frá 1997 til 2016. Lou Anna hefur alfarið neitað því að hafa vitað af mis­notk­un­inni.

Ljóst er að þetta mál er hvergi nærri búið þó að lækn­ir­inn sé kom­inn á bak við lás og slá. Rachael er meðal fjöl­margra íþrótta­manna sem hafa kært Michigan State-háskól­ann, fim­leika­sam­bandið og Twistars, æfinga­stöð sem beindi íþrótta­mönnum til Larry í með­ferð. Íþrótta­fólkið heldur því fram að þjálf­arar, lög­reglu­yf­ir­völd, þjálf­arar ráðnir af háskól­anum og ráð­gjafar hafi ekki rann­sakað mál sem komu á borð til þeirra almenni­lega er varð­aði hegðun lækn­is­ins. Þá hafa íþrótta­konur á borð við Larissa Boyce og Tiffany Thomas-Lopez haldið því fram að þær hafi talað við þjálf­ara hjá Michigan State-háskól­anum um Larry en að ekki hafi verið tekið mark á kvört­un­unum.

Larry Nassar þungt hugsi í rétt­ar­salnum.

Fékk kraft í hvert sinn sem hann slapp

„Það gerð­ist ekk­ert þegar ásak­anir höfðu verið settar fram,“ sagði sak­sókn­ar­inn Angela Povilaitis í loka­ræðu sinni áður en Larry var dæmdur í fang­elsi. „Lygar hans virk­uðu. Í hvert sinn sem hann slapp fékk hann kraft til að halda áfram, til að full­komna aðferðir sínar og mis­nota fleiri.“

Hún þakk­aði einnig rann­sókn­ar­blaða­mönnum Indi­ana­polis Star fyrir að hrinda þessu máli af stað.

„Án þess­arar fyrstu greinar í Indi­ana­polis Star í ágúst árið 2016, án grein­ar­innar þar sem Rachael steig fram opin­ber­lega, þá væri hann enn að starfa sem læknir, að með­höndla íþrótta­menn og mis­nota börn,“ sagði hún og bætti við:

„Aðgerð­ar­leysi er aðgerð. Þögn er skeyt­ing­ar­leysi. Réttlæti þarf aðgerð og rödd. Og það er það sem gerð­ist hér í rétt­ar­salnum.“

Litlar stelpur verða sterkar konur sem eyðileggja heiminn þinn

Það verður for­vitni­legt að sjá hvaða dilk þessi fang­els­is­dómur dregur á eftir sér, en við skulum líta á nokkrar af þeim tugi frá­sagna sem komu fram við rétt­ar­höldin.

„Ég bar vitni til að láta heim­inn vita að þú ert við­bjóðs­legur lyg­ari og að „með­ferðir“ þínar voru dul­búið kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Þú hefur kannski áttað þig á því núna, en litlar stelpur eru ekki litlar að eilífu. Þær vaxa úr grasi og verðar sterkar konur sem snúa aftur til að eyði­leggja heim­inn þinn,“ sagði Kyle Stephens, fyrsta fórn­ar­lambið sem tal­aði við rétt­ar­höldin. Hún sagði að Larry hefði mis­not­aði sig frá 6 ára aldri og þar til hún varð 12 ára.

„Hann var lækn­ir­inn. Ég var barnið. Ég hafði ekki hug­mynd um hvað mér ætti að finn­ast um þetta. Í langan tíma tókstu frá mér ham­ingj­una. Í hvert sinn sem ein­hver kallar mig „Kiddo“ hugsa ég um and­litið þitt þegar þú varst að mis­nota mig,“ sagði Maddie Johnson.

„Ég veit sann­leik­ann. Ég man, alveg sama hvort hann man hvað hann gerði mér eða ekki. Það er það sem skiptir máli. Þú vissir að það sem þú varst að gera var rangt. Það var ekki fyrr en þú varst gómaður að þú grát­baðst um fyr­ir­gefn­ingu,“ sagði Christine Harrison sem sagði Larry hafa mis­notað sig þegar hún var 15 og 16 ára.

„Hann snerti sak­laus­ustu lík­ams­parta mína. Ég gat ekki verið venju­leg stelpa lengur og ég glat­aði stórum parti af barn­æsku minni að eilífu vegna mis­notk­unar hans,“ sagði Jessica Thomashaw sem sagði lækn­inn hafa mis­notað sig frá 9 til 12 ára ald­urs.

Gina Nichols, móðir fim­leika­kon­unnar Maggie Nichols, las frá­sögn dóttur sinnar í rétt­ar­salnum. Hún sagði að það væri of sárs­auka­fullt fyrir dóttur sína að gera það sjálf, en Maggie leit­aði til lækn­is­ins þegar hún var 15 ára:

„Ég man að hann fór með mig inn í æfinga­her­bergi, lok­aði hurð­inni og dró fyrir glugga. Ég hugs­aði þá að þetta væri pínu­lítið skrýtið en hélt að þetta hlyti að vera í lagi. Ég treysti því sem hann var að gera í fyrstu en síðan byrj­aði hann að snerta mig á stöðum sem mér fannst ekki rétt af honum að snerta mig á. Hann var ekki með hanska og hann sagði mér ekki það sem hann var að gera. Það var eng­inn annar í her­berg­inu og ég sam­þykkti það sem hann gerði því full­orðna fólkið sagði mér að hann væri besti lækn­ir­inn og gæti hjálpað við að lina sárs­auka minn.“

Texti / Lilja Katrín
[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife