Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nýjasta tónlistarmyndband Justin Timberlake tekið í einu skoti

Nýjasta tónlistarmyndband Justin Timberlake tekið í einu skoti
|

Tón­list­ar­mað­ur­inn Justin Tim­berlake frum­sýndi mynd­band við nýjasta lag sitt, Say Somet­hing, fyrir helgi. Það væri svo sem ekki í frá­sögur fær­andi nema fyrir þær sakir að mynd­bandið var allt tekið í einu skoti, svo­kallað single shot video. Lagið er á vænt­an­legri plötu Justins, Man of the Woods, sem kemur út 2. febr­úar næst­kom­andi.

Justin leit­aði til La Blogothèque til verks­ins, en það er sam­vinnu­verk­efni ýmissa kvik­mynda­gerð­ar­manna með bæki­stöðvar í París. Fyrr­nefndir kvik­mynda­gerð­ar­menn eru þekkt­astir fyrir tón­list­ar­mynd­bönd sem tekin eru í einu skoti, til að mynda Start a War með The National og Marry Me með St. Vincent. Hingað til hafði fyr­ir­tækið tekið upp mynd­bönd fyrir lista­menn á barmi heims­frægðar en mynd­bandið við Say Somet­hing er dýrasta og metn­að­ar­fyllsta verk­efni La Blogothèque frá stofnun þess fyrir um ára­tug.

„Þetta hefði getað orðið algjör hörmung“

Í við­tali við tíma­ritið Esquire segir Arturo Perez Jr., leik­stjóri Say Somet­hing, að margar vikur hafi farið í skipu­lagn­ingu verk­efn­is­ins.

„Þetta hefði getað orðið algjör hörm­ung,“ segir hann og bætir við að Justin hafi lagt mikla áherslu á að vera ein­lægur í mynd­band­inu.

„Það er svo mikið í húfi oft þegar unnið er með svona vin­sælum lista­mönnum. Og ég verð að hrósa honum fyrir það að hann vildi vera ber­skjald­aður.“

Gekk um eins og brjáluð manneskja

Arturo valdi að taka mynd­bandið upp í hinni frægu Bradbury-bygg­ingu í Los Angeles, sem er hvað þekkt­ust fyrir að leika stórt hlut­verk í kvik­mynd­inni Blade Runner. Arturo stúd­er­aði lagið Say Somet­hing og fannst bygg­ingin passa við texta lags­ins, eins konar völ­und­ar­hús heil­ans. Und­ir­bún­ingur fyrir tökur á mynd­band­inu tók tvær vikur.

„Ég gekk um Bradbury-bygg­ing­una í tvo og hálfan dag – ég bara gekk um eins og brjáluð mann­eskja. Við gengum og gengum og töl­uðum um þetta,“ segir Arturo í við­tali við Esquire og bætir við að hann og teymið hans hafi ekki viljað að mynd­bandið yrði kynn­ing­ar­brella fyrir tón­list­ar­mann­inn.

„Við fáum ekk­ert út úr því að skjóta mynd­band í einni töku. Við fáum eitt­hvað út úr því að búa til ljóð.“

Justin Tim­berlake og Chris Stap­leton.

Tónlistin tekin upp um leið

Á töku­degi unnu tvö hund­ruð manns við mynd­bandið, þar á meðal sautján tón­list­ar­menn og sex­tíu manna kór. Tón­listin var nefni­lega tekin upp á staðnum þannig að þetta er í raun meira en bara mynd­band sem tekið er í einni töku. Þetta er líka lag sem hljóð­ritað er í einni töku. Æfingar hófust klukkan ell­efu um morg­un­inn en tökuliðið hafði aðeins tíu mín­útur til að taka upp mynd­bandið til að ná djúp­bláum lit næt­ur­him­ins­ins í gegnum glugga Bradbury-bygg­ing­ar­innar. Og það tókst.

„Ég er ekki að grín­ast þegar ég segi að þetta er fyrsta og eina takan okkar að kvöldi til. Þetta er Justin Tim­berlake, fjanda­kornið. Gaurinn er fag­maður. Og Chris Stap­leton var svo góður. Ég veit ekki hvort hann vissi nákvæm­lega hvað var á seyði en hann er lista­maður og bara gerði þetta,“ segir Arturo og vísar í banda­ríska tón­list­ar­mann­inn Chris Stap­leton sem flytur lagið með Justin.

Útkoman er væg­ast sagt áhrifa­mikil en það er oft sagt að tón­list­ar­mynd­bönd, atriði, stutt­myndir eða myndir í fullri lengd séu eins konar mann­dóms­vígsla fyrir kvik­mynda­gerð­ar­menn. Það er mikil kúnst að taka upp á þennan hátt og er það viss gæða­stimp­ill fyrir kvik­mynda­gerð­ar­mann­inn ef vel tekst til.

Nokkrar myndir í fullri lengd hafa verið teknar í einni töku, til dæmis Timecode frá árinu 2000, Russian Ark frá árinu 2002, PVC-1 frá árinu 2007 og Victoria frá árinu 2015. Þá vildi goð­sagna­kenndi leik­stjór­inn Alfred Hitchcock láta virð­ast sem kvik­myndin Rope frá árinu 1948 væri tekin í einni töku. Hins vegar voru mynda­vélar á þeim tíma ekki nógu full­komnar til að taka upp í svo langan tíma. Hver mynda­vél gat ein­ungis tekið upp 1000 fet á 35 milli­metra filmu í einu, eða í um það bil tíu mín­útur. Öll myndin var því tekin upp í ell­efu skotum.

Texti / Lilja Katrín
[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta