Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Í hólf og á gólf

Hug­myndir fyrir heim­ilið.

Í hólf og á gólf

Þegar her­bergi er skipu­lagt hugsa menn oft­ast fyrst um lit­inn á veggj­unum, hús­gögnin og skraut­mun­ina. Gólfið er auka­at­riði og sjaldn­ast er heild­ar­svip­ur­inn hugs­aður út frá því efni sem valið er á það. Þessari hugsun þarf að breyta. Það sem er undir fótum okkar getur nefni­lega gert úts­lagið um hvort her­bergi er fal­legt eða ljótt.

Í gömlum húsum voru gólf­borðin einnig oft máluð í alls konar litum og að und­an­förnu hefur verið í tísku parket sem er litað með ýmist ljósum eða dökkum litum. Áferðin fer alveg frá að vera nán­ast hvít eða ljós­grá yfir í brúna eða svarta.

Ljós gólf veita birt­unni upp og skapa hlý­leika. Ef gluggar eru litlir og lítil dags­birta berst inn í rýmið er hægt að breyta miklu með hvítt­uðu par­k­eti eða hrein­lega að mála í ljósum litum. Flotuð gólf gefa þann mögu­leika að setja lit út í lakkið áður en það er borið á gólfið og gefa þannig steyp­unni nýja áferð. Þetta er sterkt og end­ing­ar­gott gól­f­efni og auð­velt að þrífa. Þetta efni á sér­lega vel við í for­stofu, eld­húsi og barna­her­bergjum. Þegar það er notað í dimmum, litlum for­stofum gefur það færi á að lýsa rýmið eða gefa því fjör­legan blæ með því að kjósa líf­legan lit.

Í barna­her­bergi á vel við að leyfa gólf­inu að kall­ast á við lit­ina á veggj­unum eða veggskreyt­ingar. Auðvelt er að bæta við skreyt­ingum og vin­sælt er að hafa stjörnur, doppur eða annað mynstur á gólf­inu. Flot á gólf getur bæði verið matt og glans­andi en gæta verður þess að mikil speglun getur mynd­ast af glans­andi gólfum og í björtum opnum rýmum verður hún óþægi­leg.

Þegar valin eru gól­f­efni þarf ávallt að hafa í huga að þau end­ast lengst allra inn­rétt­inga. Þess vegna kjósa flestir hlut­laust, klass­ískt efni.

Í gömlum húsum voru gólf­borðin einnig oft máluð í alls konar litum og að und­an­förnu hefur verið í tísku parket sem er litað með ýmist ljósum eða dökkum litum. Áferðin fer alveg frá að vera nán­ast hvít eða ljós­grá yfir í brúna eða svarta.

Þegar gólf eru máluð

Þegar gólf eru máluð er und­ir­bún­ing­ur­inn und­ir­staða þess að vel tak­ist til. Þá skiptir engu hvort verið er að flota steypu eða mála gólf­borð. Pússa þarf und­ir­lagið alveg slétt og hreinsa það vel og sjá til þess að hvergi leyn­ist mis­fellur eða óhrein­indi. Sandkorn geta breytt áferð­inni og skemmt útlitið.

Ef verið er að mála tré­gólf eða yfir gólf­dúk þarf að velja ein­stak­lega góðan grunn. Hann er bor­inn á og stundum þarf tvær umferðir til að ná bestu áferð­inni og síðan er málað eða lakkað yfir. Til að flota gólf er best að leita til fag­manna nema menn hafi til að bera þekk­ingu í þessum efnum.

Notið eingöngu bestu fáanleg efni

Ef ein­göngu eru notuð bestu fáan­leg efni er hægt að tryggja end­ing­una. Þeir sem kjósa að mála sjálfir ættu að leita álits fag­manna og fá þeirra ráð við efn­isvalið.

Leiktu þér

Einn hlut­laus litur er ekki alltaf bestur. Svartur, hvítur, brúnn og grár virka alltaf en það er ekk­ert að því að bæta í þessa liti marm­ara­á­ferð, mynstri eða köflum. Einn af stærstu kostum mál­aðra gólfa og flot­aðra er hversu auð­velt er að breyta þeim ef fólk verður leitt á því sem fyrir er.

Ekki auðvelt að skipta út

Þegar valin eru gól­f­efni þarf ávallt að hafa í huga að þau end­ast lengst allra inn­rétt­inga. Þess vegna kjósa flestir hlut­laust, klass­ískt efni. Stað­reyndin er sú að flísar í djörfum litum end­ast ekki sér­stak­lega vel og hið sama á við um gólf­teppi. Linoleum-dúkar hafa notið vax­andi vin­sælda að und­an­förnu en þeir eru skemmti­legir og gefa færi á að skapa fal­lega áferð og mynstur. Um þá gildir hins vegar það sama og önnur gól­f­efni sem límd eru niður. Það kostar mikla fyr­ir­höfn og er dýrt að skipta þeim út þegar þeir fara úr tísku eða skipt er um hús­gögn og liti á veggj­unum. Þess vegna er mik­il­vægt að fara var­lega þegar valin eru gól­f­efni af þessu tagi og hugsa fram í tím­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni