Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hressandi litafegurð hjá eiganda Akkúrat

Kíkt í morg­un­kaffi til Sigrúnar Guðnýjar Mark­ús­dóttir á Kvist­hag­anum.

Hressandi litafegurð hjá eiganda Akkúrat

Hönn­un­ar­versl­unin Akkúrat opn­aði nú í sumar í Aðal­stræti og hefur verið tekið fagn­andi af fag­ur­kerum, Sigrún Guðný Mark­ús­dóttir er eig­andi Akkúrat en hún hefur verið við­loð­andi versl­un­ar­brans­ann í mörg herr­ans ár. Við heyrðum í Sigrúnu og fengum að kíkja til hennar í morg­un­kaffi á Kvist­hag­ann þar sem hún býr í skemmti­legri ris­í­búð ásamt dætrum sínum tveimur; Aniku og Salvöru.

Jólatré komið út í glugga.

Sigrún var með jóla­lög á fón­inum þegar við mættum og litla jólakúlur lágu á borð­stofu­borð­inu til­búnar á jóla­tréð, sem stóð nett og pent í stof­unni; örugg­lega minnsta jóla­hrísla sem við höfum myndað fyrir Hús og híbýli en samt svo ógur­lega sjar­mer­andi.

Sigrún hlær þegar við játum að hafa aldrei séð svona smátt, skreytt jóla­tré og seg­ist bara vera mjög nægju­söm í líf­inu. Hún játar að vera svo­lít­ill hippi í sér og kaupir sér sjaldan eitt­hvað nýtt nema það heilli hana alveg upp úr skónum. Hún á því hluti og hús­gögn sem hafa fylgt henni lengi.

,,Ég er til dæmis alltaf á leið­inni að fá mér nýtt sófa­borð en svo þykir mér svo ógur­lega vænt um þetta að ég læt ekki verða af því. Þetta borð er frá Fil­ipps­eyjum og allt ein­hvern vegin snúið og skakkt en það er bara svo mikil sál í því.“

En hvar kaupir hún þá helst hús­gögn og annað fyrir heim­ilið?
,,Ég keypti mikið af því sem ég á á flóa­mörk­uðum í Danmörku. Við bjuggum fyrst á Nørrebro í Kaup­manna­höfn og þar í kring er svo mikið af alls konar mörk­uðum og við gátum bara labbað heim með hús­gögnin.

,,Ég keypti mikið af því sem ég á á flóa­mörk­uðum í Danmörku. Við bjuggum fyrst á Nørrebro í Kaup­manna­höfn og þar í kring er svo mikið af alls konar mörk­uðum og við gátum bara labbað heim með hús­gögnin. Einu sinni keyptum við meira að segja sófa og rog­uð­umst heim með hann fót­gang­andi.“

Einu sinni keyptum við meira að segja sófa og rog­uð­umst heim með hann fót­gang­andi,“ svarar hún hlæj­andi.

Vesturbærinn að verða nafli alheimsins

Sigrún á hús­gögn sem hafa fylgt henni lengi.

,,Ég er úr Mosó en ég fór til­tölu­lega ung að heiman og fór þá að leigja í Berg­stað­ar­stræti og svo á Lokastíg og bjó alltaf í mið­bænum á þessum árum. Svo fluttum við, ég og minn fyrr­ver­andi, til Dan­merkur í nokkur ár og þegar við vorum að flytja heim til Íslands aftur þurftum við að taka ákvörðun um hvar við vildum búa. Þar sem mikið af okkar fólki bjó hér í Vest­ur­bænum lá bein­ast við að flytja hingað. For­eldrar mínir búa að vísu ennþá í Mosó og mér finnst æðis­legt að koma þangað; dal­ur­inn er ynd­is­legur og bær­inn líka. Okkur lang­aði samt meira að búa hérna.“

Hvað finnst þér best við Vest­ur­bæ­inn? „Þetta er svo­lítið eins og lít­ill bær inni í borg, eins og til dæmis Fred­riks­berg í Danmörku, þar sem ég bjó en þar er sér borg­ar­stjóri og bær­inn svo­lítið bara eins og komm­úna inni í borg­inni. Hér er allt sem ég þarfn­ast; ég fer mjög mikið í sund í Vest­ur­bæj­ar­laug­ina og rækt­ina út á Nesi, stelp­urnar mínar eru í KR í íþróttum og svo er örstutt að labba í mið­bæ­inn. Brauð og co er svo að fara að opna við hlið­ina á Kaffi Vest þannig að Vest­ur­bær­inn er bara að verða nafli alheims­ins“, segir hún og hlær.

Sigrún hefur verið í hönn­unar- og versl­un­ar­brans­anum í mörg ár en hvað varð til þess að hún ákvað að opna eigin verslun? „Ég átti fyrir mörgum árum versl­un­ina Flauel á Lauga­vegi með Báru í Aftur og það blund­aði í mér að fara út í eitt­hvað sjálf aftur. Svo kom tæki­færið þegar Hönn­un­ar­mið­stöð bauð út plássið í Aðal­stræti 2, þá ákvað ég að hella mér út í þetta, búa til „concept“ og fá strák­ana í hönn­un­ar­stúd­íó­inu Döðlum til liðs við mig og úr þeirri sam­vinnu og hug­mynda­vinnu varð hönn­un­ar­versl­unin Akkúrat til. Hug­myndin er að bjóða uppá rjóman af íslenskri hönnun og íslenskri list.“

Viðtalið í heild sinni má sjá í Hátíð­ar­blaði Húsa og híbýla sem fæst á öllum sölu­stöðum.

Texti / Sigríður Elín Ásmunds­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni