Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hlýlegur retro – stíll í Seljahverfi

Hlýlegur retro – stíll í Seljahverfi

Blaða­maður og ljós­mynd­ari Húsa og híbýla fengu að kíkja til Unu og Björns sem búa ásamt börnum sínum tveimur og kett­inum Eldi­brandi í fal­legu ein­býl­is­húsi í Selja­hverf­inu. Una er versl­un­ar­rýmis- og útstill­inga­hönn­uður hjá IKEA og Björn er bygg­inga­tækni­fræð­ingur hjá Þjóðskrá Íslands.

Stofan seldi húsið

„Húsið er teiknað af teikni­stofu Hauks Vikt­ors­sonar árið 1980 en byggt 1981. Við keyptum húsið síð­asta sumar,“ segir Björn. Aðdrag­and­inn að kaup­unum var skemmti­legur. „Við Bjössi vorum úti að skokka og hann bendir mér á húsið og seg­ist hafa verið að pæla í þessu húsi fyrir nokkrum árum. Svo var það aug­lýst aftur til sölu og við fórum og kíktum á það,“ segir Una aðspurð að því hvernig þau komu auga á húsið.

Tölu­verður hæð­ar­munur er á hæsta og lægsta punkti lóð­ar­innar sem er afar vel leystur af hönn­uði en stofan sem snýr í norð­austur er tekin niður og stendur á súlum. „Þegar við komum inn fyrir for­stof­una og ég sá stof­una þá var þetta selt. Mig hefur alltaf dreymt um stofu sem er nið­ur­tekin,“ segir Una en þau eru bæði sam­mála um að stofan hafi heillað þau mest auk loft­hæð­ar­innar og bætir Björn við að skipu­lagið í hús­inu sé gott og síð­ast en ekki síst hafi útsýnið úr stof­unni að Esjunni heillað mjög.

Nauðsynlegt að bera virðingu fyrir arkitektúrnum

Þar sem Una starfar sem útstill­inga­hönn­uður er ekki úr vegi að spyrja hvort þeirra ráði meiru á heim­il­inu þegar kemur að vali á inn­an­stokks­munum, litum og útliti heim­il­is­ins almennt.

„Það er klár­lega útstill­inga­hönn­uð­ur­inn, ég er samt yfir­leitt spurður álits til að gæta jafn­ræðis,“ segir Björn. Una er sam­mála því en segir jafn­framt að ef Björn sé í ein­hverjum vafa þá tak­ist henni yfir­leitt að sann­færa hann en þau séu sam­stíga í þeim fram­kvæmdum sem gerðar séu á heim­il­inu.

Loftin í hús­inu eru pan­el­klædd og veggirnir í stof­unni einnig og er það mjög ein­kenn­andi fyrir húsið. „Fólkið sem byggði húsið dreymdi um að eign­ast sum­ar­bú­stað en höfðu ekki tök á að eign­ast hvoru tveggja, hús og sum­ar­bú­stað, þess vegna er svona mik­ill pan­ell í hús­inu,“ segir Una en þau ákváðu að halda öllum viðnum í upp­runa­legu horfi. „Það er geggjað að sitja í stof­unni á sumrin, þegar trén eru laufguð og græn, þá er eins og maður sé í tré­húsi og mér líður eins og ég sé úti í skógi. Það veitir ákveðna hlýju og þetta lætur mér líða vel. Húsið er svo­lítið ein­kenn­andi fyrir okkar stíl og það er líka nauð­syn­legt að bera virð­ingu fyrir arki­tekt­úrnum, þess vegna ákváðum við að halda viðnum á veggjum og í loftum í upp­runa­legu horfi,“ segir Una.

Mikilvægt að finna ræturnar og vera trúr þeim

Ég rosa­lega höll undir „mid-century modern“, það heillar mig og app­el­sínugulir, grænir og brúnir tónar gera það líka. Ég er lítið fyrir hvítt. „Mid-century modern“ er hreyf­ing sem spratt upp eftir seinna stríð en ein­kenn­andi fyrir hana er meðal ann­ars teng­ing við nátt­úr­una og stórir gluggar þar sem sam­tal á milli þess sem er úti og inni er mjög mik­il­vægt. Við­ar­klæðn­ingar og nátt­úru­legir tónar í bland við skarpa, bjarta liti, nátt­úru­leg efni og plöntur sem hafðar eru inni við til að skapa nátt­úru­lega stemn­ingu er einn­ing ein­kenn­andi fyrir stefn­una.

Meira um þetta skemmti­lega hús í 3. tölu­blaði Húsa og híbýla sem er fáan­legt á sölu­stöðum til 28. mars þegar nýtt og ferskt Hús og híbýli kemur út!

Texti / Stefanía Alberts­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni