Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fagurfræðilega fullkomin samsuða í 100 ára timburhúsi

Fagurfræðilega fullkomin samsuða í 100 ára timburhúsi

Inga Elín myndlistarmaður og Þórarinn gítarleikari heimsótt.

Það eru ansi mörg ár síðan því var fyrst hvíslað að blaða­konu Húsa og híbýla að hönn­uð­ur­inn og mynd­lista­mað­ur­inn Inga Elín Krist­ins­dóttir hefði ein­stak­lega næmt auga fyrir fal­legri hönnun og sér­stakt lag á að hnjóta um heims­þekktar hönn­un­arperlur á nytja­mörk­uðum hér heima sem og erlendis. Heimili Ingu Elínar og eig­in­manns hennar, Þórarins Sig­ur­bergs­sonar gít­ar­leik­ara og leið­sögu­manns, við Lauf­ás­veg­inn í Reykja­vík, er sann­kall­aður ævin­týra­heimur og ein­stak­lega vel heppnað dæmi um hvernig heim­ili sem nostrað er við af ástúð getur fangað full­komn­lega per­sónu­leika þeirra sem þar búa.

Hannar verð­launa­gripi
Inga Elín lagði stund á mynd­list við Mynd­lista­skóla Reykja­víkur og var aðeins tví­tug farin að kenna mynd­list að loknu kenn­ara­námi frá Mynd­lista- og hand­íða­skóla Íslands. Þremur árum síðar lá leið hennar í fram­halds­nám til Kaup­manna­hafnar í Skolen for Brugskunst (í dag Danmarks Designskole), þaðan sem hún útskrif­að­ist fimm árum síðar frá tveimur deildum skól­ans, keramík- og gler­l­ista­deild. Inga Elín hefur verið áber­andi í íslensku lista­lífi allar götur síðan og skipað sér sess meðal okkar fremstu lista­manna. Í um ára­tug rak hún á Skóla­vörðu­stíg 5

09. tbl. 2018, HH1808082010, Inga Elín Krist­ins­dóttir, Innlit, Lauf­ás­vegur 43

sitt eigið gall­erí en er í dag í hópi átta lista­kvenna sem sam­an­standa að keramíkgall­er­í­inu Kaolín sem er til húsa á sama stað. Fyrir utan fjöl­margar einka­sýn­ingar innan lands og utan hefur Inga Elín tekið þátt í ótal sam­sýn­ingum víða um heim, meðal ann­ars í Bret­landi og Skand­in­avíu og hlotið hinar ýmsu við­ur­kenn­ingar í gegnum tíð­ina. Inga Elín hefur hannað ýmsa muni fyrir Kokka­lands­lið Íslands og allt frá árinu 2001 Ístóninn, verð­launa­grip Íslensku tón­list­ar­verð­laun­anna. Þá er borð­búnað úr hennar smiðju að finna á nokkrum af róm­uð­ustu veit­inga­húsum lands­ins og athygli vakti á sínum tíma þegar breski glys­rokk­ar­inn og lista­verka­safn­ar­inn Elton John festi kaup á tveimur verkum hennar í frægri heim­sókn til lands­ins árið 2007.

„Ég daðr­aði eitt­hvað við naum­hyggj­una á tíma­bili en var fljót að finna að hún var ekki alveg minn tebolli.“

Smávinir í postu­líni og stein­steypu
Líkt og margir aðrir íslenskir hönn­uðir og lista­menn í gegnum tíð­ina, hefur Inga Elín sótt sinn helsta inn­blástur til íslenskrar nátt­úru. Í verkum sínum hefur hún stundum fléttað saman ólíkum og óvæntu hrá­efni en gott dæmi um það er sería skúlp­t­úr­verka sem hún kallar Smávinir fagrir en þar mæt­ast fín­gert og brot­hætt postu­línið og gróf stein­steypan. Þessi styrk­leiki Ingu Elínar sem lista­manns skín ein­stak­lega vel í gegn á heim­il­inu.

Eltist ekki við tísku­bylgjur
Dásam­lega lit­rík kaó­tík ein­kennir heim­ili þeirra Ingu Elínar og Þórarins, hér sér varla í auðan blett og enda­laust eitt­hvað áhuga­vert sem fangar augað. Inga Elín byrj­aði að safna list og hönnun mark­visst strax sem ung­lingur og var þá þegar búin að móta sér þann per­sónu­lega stíl sem fylgt hefur henni allar götur síðan. „Ég hef alltaf verið safn­ari í mér og hef í gegnum tíð­ina safnað mál­verkum, gler­l­ist, keramíki og skúlp­t­úrum og þá iðu­lega verkum íslenskra lista­manna,“ segir Inga Elín þar sem hún lóðsar okkur um lit­ríkt heim­ilið.

„Ég hef alltaf leit­ast við að fjár­festa í góðri og vand­aðri hönnun og eiga þá hluti ævina út í stað þess að elta ein­hverjar tíma­bundnar tísku­bylgur. Dönsk og ítölsk hönnun frá tíma­bil­inu 1950-´70 hefur alltaf höfðað sér­stak­lega til mín. Ég daðr­aði eitt­hvað við naum­hyggj­una á tíma­bili en var fljót að finna að hún var ekki alveg minn tebolli. Ég hef alltaf haft ein­stak­lega gaman af því að fara á nytja­mark­aði, meðal ann­ars í Kaup­manna­höfn og Berlín en þar eru margir góðir antík­mark­aðir og hægt að finna mikið úrval fal­legra og áhuga­verðra muna fyrir heim­ilið,“ segir Inga Elín sem er einmitt ein þeirra sem standa á bak við Portið, eina áhuga­verð­ustu verslun lands­ins en þar er jafnan að finna mýgrút af sér­völdum antík- og vin­tage-munum, hús­gögnum og fatn­aði.

Fleiri myndir af þessu fal­lega heim­ili má sjá í sept­em­ber­blaði Húsa og híbýla sem fæst á sölu­stöðum til 20. sept­em­ber.

Texti / Gerður Harð­ar­dóttir
Ljós­mynd­ari / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni