Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gamli Vesturbærinn heillar

Þau Helga Gvuðrún Frið­riks­dóttir og Orri Finn­boga­son taka vel á móti okkur á lif­andi heim­ili sínu í gamla Vest­ur­bænum. Saman reka þau skart­gripa­verk­stæðið og versl­un­ina Orrifinn skart­gripir í sjar­mer­andi hús­næði við Skóla­vörðu­stíg 17a.

Gamli Vesturbærinn heillar
Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Tign­ar­legt 90 ára gam­alt húsið stendur við kyrr­látan göngu­stíg sem þau segja kunn­uga kalla Borg­ar­stíg­inn. Íbúðin er tæp­lega 150 fm að stærð og búa þau á fyrstu hæð og í kjall­ara húss­ins. „Við höfum búið hér í rúm tvö ár og það er mjög frið­sæl og barn­væn fjöl­skyldu­stemn­ing hérna, en við fluttum nán­ast úr næsta húsi svo ísskáp­ur­inn fór bara yfir á hjóla­bretti!“ segir Orri og hlær. „Við elskum að vera hérna, stað­setn­ingin er nátt­úru­lega æðis­leg og þetta er svo nálægt mið­bænum.“
Aðspurð um hvort þau hafi farið í ein­hverjar end­ur­bætur segj­ast þau ekki miklu hafa breytt öðru en farið í smá­vægi­legar breyt­ingar á eld­hús­inu, pússað og lakkað par­k­etið og málað. „Fyrri eig­andi sagði okkur að par­k­etið á gólf­inu væri íslenskt og kæmi frá Húsavík. Skemmti­legt er að segja frá því að í einni fjöl­inni sem liggur við stig­ann er föst byssu­kúla eða hagl, en hún hefur lík­lega verið í trénu sem var notað í gólfið.“

Mál­verkið við píanóið er eftir Orra sjálfan, en hann málar í frí­tíma sínum. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

KAÓTÍSKUR OG LITRÍKUR STÍLL
Greini­legt er að heim­il­is­fólk er ekki hrætt við að nota sterka liti og seg­ist Helga hafa rosa­lega sterkar skoð­anir á þeim. „Ég var alveg með á heil­anum að vera með eggald­in­fjólu­bláan ein­hvers staðar, en fjólu­blái lit­ur­inn hefur verið partur af lífi mínu síðan ég var barn og ég tók ein­hverju ást­fóstri við hann. Við höfum ferð­ast mikið um Suður-Ameríku og urðum mjög heilluð af lita­notk­un­inni þar og hverju þau þora! Í eld­hús­inu reyndum við að ná fram Karí­ba­hafs­stemn­ingu með þessum bláa lit, sem minnir okkur á þegar flogið er yfir eyju og maður sér grynn­ingar í sjónum. Þessi skand­in­av­íski grái stíll er alls ekki okkar.“
Hvaðan koma hlut­irnir ykkar? „Við kaupum rosa­lega sjaldan hús­gögn, en höfum fengið margt gef­ins frá vinum og fjöl­skyldu – við erum mjög hrifin af því að nýta. Svo söfnum líka við upp­stopp­uðum fuglum, en það er áhuga­mál sem fæstir skilja.“

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Veggina prýða fjöl­mörg eft­ir­tekt­ar­verð lista­verk. „Við erum með tölu­vert af verkum eftir Gabríelu Friðriks, systur mína, og að auki er Ragna Róberts móð­ur­systir hans Orra en við erum mjög heppin að hafa tvo svona æðis­lega lista­menn í fjöl­skyld­unni,“ segir Helga.
Hvaða lista­menn eða hönn­uðir eru í upp­á­haldi, aðrir en systir og móð­ur­systir? „Við erum mjög hrifin af hús­gögnum eftir Daníel Magn­ús­son, en þau eru ótrú­lega vel gerð og end­ast!“ Þau bæta við að upp­á­halds­lista­maður Helgu sé Frida Khalo og Orra sé aust­ur­ríski málar­inn Egon Schiele. Aðspurð um upp­á­halds­versl­un­ina nefna þau The Evolution Store í New York, en þar má kaupa skeljar, stein­gerv­inga, upp­stoppuð dýr, skinn, beina­grindur og fleira í þeim dúr en Helga segir þau Orra hafa smekk fyrir þjóð­legum munum víðs­vegar að úr heim­inum.

Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Við göngum niður lit­ríkan stig­ann og rekum strax augun í einkar skemmti­legt gólfið. „Þetta eru steinar úr Djúpa­lóns­sandi, en fyrri eig­endur dúll­uðu við þetta ásamt bað­her­berg­inu.“ Bað­her­bergið minnir svo­lítið á að vera inni í helli, en loft og veggir liggja saman sem heild og hornin eru öll rúnuð, á veggnum við baðið er svo vönduð mósaík af haf­öldum. Það er allt öðru­vísi stemn­ing í þessu bað­her­bergi.
Okkur lék for­vitni á að vita hvernig starfs­fer­ill í skart­gripa­smíði varð fyrir val­inu. „Ég starf­aði á gull­smíða­verk­stæði í New York og lærði dem­antsí­setn­ingar þegar ég var búsettur þar, en ég lauk svo nám­inu hér heima árið 2000,“ segir Orri. „Systir mín bjó úti og ég ætl­aði í heim­sókn yfir jólin 1995 og svo bara ílengd­ist ég, seinna sótti ég um græna kortið og í fram­haldi af því var ég í fimm ár úti og er nú banda­rískur rík­is­borg­ari.“

Mynd / Hákon Davíð Björns­son
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni