Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fyllir Ásmundarsal af líffærum

Sigga Heimis hönn­uður stendur í stór­ræðum þessa dag­ana. Auk þess að þeyt­ast milli landa í vinnu sinni með ungum hönn­uðum fyrir IKEA og vera ein­stæð móðir með þrjú börn, sem hún við­ur­kennir að útheimti gríð­ar­lega skipu­lagn­ingu, vinnur hún með fleiri fyr­ir­tækjum og er ofan á allt saman að und­ir­búa sýn­ingu á líf­færum úr gleri sem hún mun halda í sam­starfi við stærsta gler­fram­leið­anda í heimi.

Fyllir Ásmundarsal af líffærum
Hönn­uð­ur­inn Sigga Heimis hefur í nógu að snú­ast þessa dag­ana. Mynd / Unnur Magna

„Já, ert þetta þú?“ segir Sigga sem er stödd á Íslandi þegar hún svarar í sím­ann klukkan 10.30. „Síminn hefur hringt stans­laust síðan hálf­fjögur í nótt og ég var bara alls ekki viss um hver gæti nú verið að hringja. Það er eitt af því sem fylgir því að þrjóskast við að búa á Íslandi þótt ég sé að vinna út um allar trissur að fólk áttar sig ekki alltaf á tíma­mis­mun­inum og hringir á öllum tímum sól­ar­hrings­ins. En það er allt í góðu, svona er þetta bara.“

Eitt af þeim verk­efnum sem Sigga fæst við erlendis er að skipu­leggja og vinna með hönn­un­ar­skólum og -stofn­unum og vinna með ungum hönn­uðum fyrir IKEA. Um hvað snýst það?

„Ég þekki þá til­finn­ingu mjög vel að koma úr námi og þurfa að byrja á algjörum núll­punkti,“ útskýrir hún. „Ég þekki það sjálf að þekkja engan í þessum geira og þurfa sjálf að finna mér atvinnu­tæki­færi og ég fæ alveg jafn­mikið út úr því og þau að hjálpa þeim að kom­ast inn í þetta svo að þegar þáver­andi yfir­maður minn hjá IKEA spurði hvernig mér lit­ist á að sjá um sam­starf fyr­ir­tæk­is­ins við hönn­un­ar­skóla var ég fljót að segja já. Síðan eru liðin mörg ár og umhverfið hefur breyst mikið. Á þeim tíma var aðal­lega verið að teikna ein­hverjar ákveðnar vörur sem IKEA var að bæta við hjá sér en nú höfum við víkkað þetta miklu meira. Nú vinnum við í raun­inni bara með nýjar hug­myndir og vænt­ingar nýrra kyn­slóða til sterkra vöru­merkja. Heim­ur­inn er að breyt­ast svo hratt og maður verður að vera miklu meira á tánum. Fyrir tíu til fimmtán árum gat IKEA mælt miklu betur hvað mark­að­ur­inn vildi en það er ekki hægt lengur. Unga fólkið í dag hefur allt aðrar vænt­ingar og vill ekk­ert endi­lega eiga fullt af hlutum. Það eru mörg stór fyr­ir­tæki að takast á við þetta, hvort sem það eru bíla­fram­leið­endur, bygg­inga­fyr­ir­tæki eða hús­gagna­fyr­ir­tæki. Þannig að nú er ég með það verk­efni að skipu­leggja og sjá um sam­vinnu IKEA við hönn­un­ar­skóla um allan heim.“

„Mér finnst gaman að geta flakkað á milli verk­efna og prófað nýja hluti en ég þarf að hafa í huga að þetta snýst ekki bara um mig heldur börnin mín líka.“

Mikið púslu­spil að sam­ræma vinnu og heim­ili
Eins og gefur að skilja krefst starfið mik­illa ferða­laga og ver­andi ein­stæð móðir með þrjú börn þar sem eitt er veru­lega þroska­skert og þarf mikla umönnun, seg­ist Sigga vera orðin algjör sér­fræð­ingur í því að þrýsta ferð­unum niður í mjög stutta pakka.

„Ég er mjög skipu­lögð þegar ég fer út,“ segir hún. „Samkvæmt regl­unni er ég alltaf eina viku í mán­uði í Svíþjóð og þar legg ég fram mitt plan um hvernig ég ætla að gera þetta. Það er alls ekki nauð­syn­legt að hver ferð taki marga daga. Til dæmis er ég að vinna með skóla í Berlín og flýg þá oft fram og til baka sam­dæg­urs. Þetta er allt orðið mun ein­fald­ara en það var, en vissu­lega er þetta mikið púslu­spil og ég þarf að láta ýmis­legt ganga upp til þess að þetta smelli saman. Það er bara svo ofboðs­lega spenn­andi að vinna við það sem manni finnst skemmti­legt að ég finn leiðir til að láta þetta ganga.“

Sigga er búin að setja húsið sitt á sölu og planið var að eiga annað heim­ili í Svíþjóð með alla fjöl­skyld­una, en hún segir það ekki eins ein­falt og það hljómi.
„Ég ætla aðeins að bíða með að flytja,“ segir hún. „Ég veit alveg hvernig það er þegar fólk er að flytja með börn sem þurfa sér­tæka ummönun á milli landa, maður hleypur ekk­ert inn í kerfið þar bara si svona. Það eru enda­lausir biðlistar alls staðar og ég er ekki alveg til­búin í það. Það hefur alveg gengið hingað til að vera búsett á Íslandi þótt ég sé í þess­ari vinnu og ég ætla aðeins að sjá til með þetta.“

Önnur ástæða þess að Sigga er ekki til­búin að fara af land­inu í bili er að hún er komin í stefnu­mót­un­ar­vinnu fyrir Ramma­gerð­ina, þar sem hún er í bull­andi vinnu og segir frá­bært að vinna með íslenska hand­verks- og hönn­un­ar­arf­inn okkar. Fleiri verk­efni eru í vinnslu, til dæmis stór verk­efni fyrir stórt fyr­ir­tæki í Kóreu.
„Ég hef verið svo ofboðs­lega heppin – og nú lem ég í allan við sem er hér nálægt mér – að ég hef alltaf haft nóg að gera,“ segir hún. „Ég hef aldrei verið spennt fyrir því að stofna stórt og mikið fyr­ir­tæki og vera með stóran vinnu­stað. Mér finnst gaman að geta flakkað á milli verk­efna og prófað nýja hluti en ég þarf að hafa í huga að þetta snýst ekki bara um mig, heldur börnin mín líka.“

Sigga und­ir­býr nú sýn­ingu í Ásmund­ar­sal með líf­færum sem hún hefur hannað.

Vill opna umræð­una um líf­færa­gjafir
Ofan á öll þessi verk­efni og stóran heim­il­is­rekstur er Sigga nú að und­ir­búa sýn­ingu í Ásmund­ar­sal eftir ára­mótin þar sem hún mun sýna líf­færi úr gleri sem hún hefur hannað, í til­efni af breyt­ing­unni á lög­unum um líf­færa­gjafir. Hvernig kom sú hug­mynd upp?

„Það að eiga barn með sér­þarfir opnar nýjar víddir fyrir manni og ég hef með árunum velt því sífellt meira fyrir mér hvernig hönn­uðir geti axlað sam­fé­lags­lega ábyrgð. Ég lenti svo fyrir til­viljun í sam­starfi við stærsta gler­l­ista­safn í heimi sem er í New York-ríki og var stofnað af stærsta gler­fyr­ir­tæki heims í kringum 1950. Þau ákváðu fyrir nokkrum árum að prófa að vinna með hönn­uðum. Þau höfðu alltaf unnið með lista­mönnum en vildu breyta til og buðu mér og fleiri hönn­uðum til sam­starfs. Þegar ég var komin í þriggja daga vinnu­stofu hjá þeim þar sem átti að vinna með munn­blásið gler stóð ég og klór­aði mér í höfð­inu og af ein­hverri ástæðu datt ég niður á þá hug­mynd að búa til líf­færi úr gler­inu. Eftir það lagð­ist ég í rann­sóknir á því hvar við værum eig­in­lega stödd í sam­bandi við líf­færa­gjafir. Þá opn­að­ist fyrir mér alveg nýr og dálítið óhugn­an­legur heimur.

Það er mik­ill skortur á líf­færum í heim­inum og fátækt fólk hefur gripið til þess ráðs að selja úr sér líf­færi til að kom­ast af og það eru ótal sið­ferð­is­spurn­ingar í kringum þetta. Ég ákvað þá að búa til þetta verk­efni til að vekja athygli á stöð­unni og vekja fólk til umhugs­unar um líf­færa­gjafir. Ég hef farið með líf­færi á nokkrar sýn­ingar en það sem varð kveikjan að þess­ari sýn­ingu í Ásmund­ar­sal var þegar þau undur og stór­merki gerð­ust að Alþingi Íslend­inga var ein­róma sam­mála þegar það sam­þykkti ný lög um áætlað sam­þykki til líf­færa­gjafa sem taka gildi núna 1. jan­úar. Þetta er mik­il­væg breyt­ing sem snertir okkur öll og þarna sá ég tæki­færi til að setja upp sýn­ingu sem myndi hvetja fólk til að opna umræð­una um líf­færa­gjafir. Fékk afnot af Ásmund­ar­sal allan jan­úar og febr­úar og þar ætlum við að setja upp undra­heim líf­færa sem fólk getur gengið inn í og upp­lifað. Ég er sann­færð um að þetta verður stór­kost­leg upp­lifun, en ég segi þér nú nánar frá því öllu síðar. En ég vil samt nefna að Gagarín er sam­starfs­að­ili minn á sýn­ing­unni og sömu­leiðis Kristján Krist­jáns­son, lýs­ing­ar­hönn­uður og nýrna­þegi. Þetta eru lyk­il­að­ilar sem munu gera það að verkum að sýn­ingin verður mögnuð!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni