Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Svarti pítsukassinn í Borgartúni

Svart, gult og risa­stór diskó­kúla mætir okkur á Black Box og þar tekur Jón Gunnar Geirdal vel á móti okkur með girni­legum flat­bökum. Við spurðum kapp­ann út í pít­su­æv­in­týrið.

Svarti pítsukassinn í Borgartúni
Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Hvenær opn­aði Black Box Pizza?
22. jan­úar 2018 í Borg­ar­túni 26.

Hver hann­aði stað­inn?
Við hönn­uðum stað­inn sjálfir enda vorum við með ákveðnar hug­myndir hvernig útlit, and­rúms­loft og upp­lifun við vildum skapa.

Hver er yfir­pít­su­bak­ari?
Pítsu­snill­ingur Blackbox er Viggó Vig­fús­son – bak­ari og conditori, eig­andi Skúbb, bestu ísbúðar lands­ins, og einn af stofn­endum OmNom-súkkulaðis. Hann var í kokka­lands­lið­inu í 12 ár og mögnuð reynsla hans og hæfi­leikar krist­all­ast í geggj­uðum pít­sum.

Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Hvaða hug­mynd var lagt upp með við hönnun stað­ar­ins?
Við vildum fyrst og fremst hafa stað­inn hlý­legan en líka töff og svo­lítið öðru­vísi. Við vildum hafa lita­pal­lett­una ein­falda og völdum svartan og gulan sem koma vel út saman. Svo er það svarta diskó­kúlan sem ein­kennir Blackbox. Nonna Dead-and­arnir vaka yfir staðnum en Jón Sæmundur mál­aði þá beint á vegg­inn, svo er hér 100 ára gam­all drumbur í loft­inu og alls konar svo­lítið skrýtnir gulir hlutir út um allt. Stað­ur­inn er skemmti­lega öðru­vísi fyrir vikið.

Hvernig stemn­ingu vilduð þið ná fram á staðnum?
Við vildum skapa skemmti­lega New York/London-bar­stemn­ingu utan um skyndi­bit­ann pít­s­una. Blackbox á að vera öðru­vísi, eitt­hvað nýtt og ögrandi en á sama tíma bara geggjuð pítsa og lík­lega sú besta hér á landi. Pítsa er nefni­lega ekki bara pítsa eins og við segjum, stemn­ingin á staðnum er ótrú­lega skemmti­leg. Það á nefni­lega að vera skemmti­legt að borða pítsu.

Hver er ykkar sér­staða?
Sérstaða okkar eru sjúk­lega góðar pít­sur á hrika­lega góðum súr­deigs­botni með heima­gerðri ítal­skri tómatsósu, toppuð með fjöl­breyttu fersku og öðru­vísi hrá­efni.

Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Hvað heill­aði ykkur við stað­setn­ing­una og hús­næðið?
Við höfðum verið með þessa stað­setn­ingu lengi í huga fyrir svona stað. Borg­ar­túnið vex hratt, er lif­andi hverfi sem rúllar hratt í gegnum dag­inn og okkur fannst til­valið að mæta með pítsupönk­ar­ann Blackbox og gefa fólki loks­ins tæki­færi til að fá eldsnögga og eld­bak­aða pítsu í hádeg­is­mat, eða eftir vinnu.

Elska Íslend­ingar flat­bökur?
Miklu meira en það; Íslend­ingar eru með ástríðu fyrir pít­sum. Það eru for­rétt­indi að bjóða svöngum, pítsu­sjúkum Íslend­ingum upp á upp­á­halds­skyndi­bit­ann þeirra, hlut­verk sem við tökum mjög alvar­lega með bros á vör.

Hvaða álegg er vin­sæl­ast?
Það er erfitt að nefna ekki pepp­er­oni en Parma Rucola-pítsan er vin­sælasta pítsan okkar og svo kemur trufflu­m­ar­iner­aða anda­lærið vel á óvart enda brjál­æð­is­lega gott.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni