Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Flugfreyja með látlausan stíl

Í hvítu og bláu fjöl­býli við Boða­grand­ann í Vest­ur­bænum, rétt við sjó­inn, býr Erna Viktoría Jans­dóttir, flug­freyja og smekk­pía, ásamt fjöl­skyldu sinni. Fjöl­skyldan er alsæl í Vest­ur­bænum.

Flugfreyja með látlausan stíl

Spurð út í hvað það er sem heillar hana mest við íbúð­ina segir hún: „Hvað hún er björt, það eru stórir stofu­gluggar og útsýnið út um eld­hús­glugg­ann er æðis­legt því við horfum beint út á sjó­inn. Stað­setn­ingin hentar okkur líka mjög vel því fjöl­skyldur okkar beggja búa hér í Vest­ur­bænum. Ég er samt fædd og upp­alin í Danmörku og bjó í Kaup­manna­höfn fyrstu 11 árin.

Mér finnst líka sér­lega gaman að heyra dönsk­una og nota hvert tæki­færi sem gefst til að tala hana.

Fyrir mér er Kaup­manna­höfn mitt annað heim­ili og ég reyni að fara einu sinni til tvisvar á ári þangað. Þar er meiri stór­borg­ar­stemn­ing en hér í Reykja­vík en samt er lífið í Köben ein­hvern veg­inn miklu afslapp­að­ara en hér. Mér finnst líka sér­lega gaman að heyra dönsk­una og nota hvert tæki­færi sem gefst til að tala hana, eins og þegar ég er að fljúga og hitti Dani um borð. Það er eitt­hvað við Köben sem heillar mig, hún og New York eru  í upp­á­haldi hjá mér,“ segir hún dreymin og þá leikur okkur for­vitni á að vita hvort það séu alls engir gallar við að búa í Vest­ur­bænum?

Jólatréð er úr Garð­heimum og dúk­ur­inn undir því er frá ömmu Ernu en tréð er svo stórt að hann sést ekki.

„Eini gall­inn er að það er stundum rok hérna við sjó­inn en á móti kemur að hér er allt í göngu­fjar­lægð. Við erum mjög dug­leg að rölta í sund, bæði í Vest­ur­bæj­ar­laug­ina og Neslaug­ina sem er alveg æðis­leg. Svo finnst okkur ljúft að geta gengið í hverf­is­búð­ina sem er Mela­búðin og á sumrin er líka voða þægi­legt að geta gengið í mið­bæ­inn og þurfa ekki að leita að bíla­stæði, eins og til dæmis á menn­ing­arnótt.“

Borð­stofu­borðið er úr hnotu og er frá Tekk Company, bekk­ur­inn er frá Happy Furnit­ure og stól­arnir eru úr Hús­gagna­höll­inni.

Gaman að eiga húsgögn sem ekki eru fjöldaframleidd

Hvernig myndir þú lýsa stílnum á heim­il­inu?

„Ég er örugg­lega svo­lítið minimal­ísk því ég vil ekki hafa heim­ilið ofhlaðið af dóti, ég vil frekar að þeir hlutir og hús­gögn sem eru á heim­il­inu fái að njóta sín. Mér finnst rosa­lega gaman að kaupa nýja muni sem eru í tísku en mér finnst líka gaman að eiga hluti með sögu. Við erum til að mynda með grænan flauels­bekk og stól í stíl frá ömmu og afa Krist­jáns sem okkur þykir mjög vænt um.

Við erum til að mynda með grænan flauels­bekk og stól í stíl frá ömmu og afa Krist­jáns sem okkur þykir mjög vænt um.

Fengum það og kist­una undir hansa­hill­unum í arf frá þeim. Hansa­hill­urnar fengum við svo hjá tengda­mömmu, hún var með þær í geymsl­unni og okkur lang­aði svo að leyfa þeim að njóta sín uppi við og fengum þær. Mér finnst gaman að vera með hús­gögn sem eru ekki fjölda­fram­leidd, eins og til dæmis sófa­borðið og bekk­inn við borð­stofu­borðið sem frændi minn, Haf­steinn Hall­dórs­son hjá Happy Furnit­ure, sér­smíð­aði fyrir okkur. Borð­stofu­borðið okkar er úr hnotu en það keyptum við á lag­er­sölu hjá Tekk Company og við vorum lengi að leita að bekk við það. Ég sendi svo Haf­steini mynd af borð­inu og hann smíð­aði bekk sem smellpassar við það.“

Grænu bekk­ur­inn er arfur og mál­verkið er eftir Auði Mar­in­ós­dóttur.

Fannst hún ekki falleg í fyrstu en þykir vænt um hana núna

Hvað finnst þér skipta mestu máli þegar kemur að heim­il­inu; lýs­ingin, lit­irnir eða upp­röðun hluta og hús­gagna? „Ég er voða mikið fyrir að færa til hluti og held mér finn­ist upp­röð­unin skipta mestu máli. Á óska­list­anum núna, eða þegar við flytjum næst, er Butt­er­fly-stóll úr Casa, það væri draumur að eign­ast hann þegar við förum í stærra hús­næði. Mig langar líka að eign­ast ljós frá secto yfir borð­stofu­borðið og svo væri æðis­legt að fá nýtt risa­stórt rúm svo við getum öll kúrt saman. En okkur vantar svo sem ekki neitt og erum ótrú­lega ánægð. Það hefur alveg komið upp sú hug­mynd að taka eld­húsið í gegn en það er alveg fínt þótt það sé orðið gam­alt, það er meira bara pjatt að vilja skipta því út. Mér þykir bara vænt um það sem við höfum. Fyrst þegar ég kom hingað og sá svala­hurð­ina fannst mér hún alls ekki fal­leg en með tím­anum fór mér að þykja vænt um hana. Mér finnst ein­hver sjarmi yfir því að hafa hlut­ina ekki full­komna. Í dag myndi aldrei vilja skipta um svala­hurð.“

Baðið var nýlega tekið í gegn. Inn­rétt­ingin er úr IKEA, speg­ill­inn úr Esju Dekor.

Með glasa-„fetish“

Hvar finnst þér skemmti­leg­ast að versla hluti og annað fyrir heim­ilið? „Mér finnst rosa­lega gaman að kíkja í alls konar versl­anir, ég er ekki háð því að hlut­ur­inn sé ein­hver merkja­vara. Ég kaupi bara það sem heillar mig. Módern finnst mér rosa­lega fal­leg búð og ég við­ur­kenni að mér finnst Illum Bolighus í Kaup­manna­höfn líka æðis­leg, sér­stak­lega fyrir jólin, það eru svo fal­legar útstill­ingar í glugg­unum og í Kaup­manna­höfn fær maður jólastemn­ing­una beint í æð. Ég er að verða meira jóla­barn með aldr­inum og sér­stak­lega eftir að ég eign­að­ist son minn. Honum fannst til dæmis æðis­legt að við skyldum skreyta jóla­tréð svona snemma í ár,“ segir Erna bros­andi og þegar við spyrjum hana hvar hún fái helst inn­blástur fyrir heim­ilið seg­ist hún skoða Pinter­est mjög mikið.

Ég er að verða meira jóla­barn með aldr­inum og sér­stak­lega eftir að ég eign­að­ist son minn.

„Svo skoða ég líka oft tíma­rit eins og Bo Bedre og Hús og híbýli, Instagram-síður  og hönn­unar- og lífs­stíls­blogg.“

Mál­verkið í her­berg­inu hans Jóhann­esar Inga er af fjöl­skyldu­kett­inum Týra. Sigurður Sævar mál­aði það og gaf þeim en eig­in­maður Ernu var sund­þjálf­ari mál­ar­ans til margra ára.

En hverju tekur þú helst eftir þegar þú kemur inn á önnur heim­ili? „Per­sónu­legum stíl þeirra sem þar búa en mér finnst öll heim­ili hafa sinn sjarma,“ svarar hún ein­læg en ætli Erna sé að safna ein­hverju sér­stöku fyrir heim­lið? „Ég safna kannski helst fal­legum glösum, ég er með eitt­hvað glasa-„fet­ish“ og safna sér­stak­lega rauð­víns­glösum.“

Sörubakstur og kósíkvöld í desember

Erna seg­ist byrja að skreyta í byrjun des­em­ber og hún keypti á hverju ári nýtt skraut á jóla­tréð þar til í fyrra þegar hún keypti gylltar og silfraðar kúlur og ákvað að þær yrðu not­aðar hér eftir. „Ég vil ekki vera með of mikið jóla­skraut, frekar færri hluti og vand­að­ari. Mér þykir sér­lega vænt um stjörn­una á toppnum því þessi stjarna var alltaf á jóla­trénu þegar ég var að alast upp en mamma gaf mér hana svo fyrir nokkrum árum“.

„Ég safna kannski helst fal­legum glösum, ég er með eitt­hvað glasa-„fet­ish“ og safna sér­stak­lega rauð­víns­glösum.“

En hvað finnst þér ómissandi á aðvent­unni? „Ég og mamma reynum alltaf að baka saman sörur, mér finnst æðis­legt að eiga sörur í fryst­inum. Á Þor­láks­messu finnst okkur svo gaman að labba Lauga­veg­inn og alltaf á föstu­dögum í des­em­ber höfum við kósí­kvöld og horfum saman á jóla­bíó­myndir.“

Hvernig eru svo jólin hjá ykkur? „Á aðfanga­dag erum við með tengda­fjöl­skyld­unni, við erum stór hópur saman sem mér finnst rosa­lega gaman, örugg­lega vegna þess að ég er sjálf einka­barn. Á gamlárs­kvöld ætlum við að vera hér heima og for­eldrar mínir koma til okkar. Pabbi minn hefur alla tíð verið mikil sprengju­kall.“

Og þá verðum við að vita hvað kemur þér í jóla­skap? „Að kíkja á jóla­mark­aði í Kaup­manna­höfn og fara í jóla­tívolí og fá sér heitt súkkulaði,“ svarar hún að bragði.

Myndir / Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni