Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sögulegt hús á einum eftirsóttasta stað í hjarta borgarinnar

Sögulegt hús á einum eftirsóttasta stað í hjarta borgarinnar

Eign vik­unnar er þetta fal­lega og sögu­lega hús við Lauf­ás­veg 43. Húsið er byggt árið 1903 í Sveitser-stíl sem algengt var í Noregi um alda­mótin 1900. Eins og önnur hús af þeirri gerð er það með bröttu þaki og port­byggt og stendur á eign­ar­lóð. Einkenni þess­arar eignar er hand­verk sem þar er að finna, bæði innan- og utandyra, og fangar það gests­augað um leið. Mikið hand­verk er þar að finna, meðal ann­ars íburð­ar­miklar gluggaum­gjarðir. Húsið er á einum besta stað í mið­borg Reykja­víkur og stutt í allt sem borgin hefur upp á að bjóða, menn­ing­ar­líf, veit­inga­húsaflóru, alla þjón­ustu sem og skóla og fjöl­margar fal­legar göngu­leiðir um mið­bæ­inn.

Skjólsæll og bjartur garður

Garð­ur­inn er gam­al­gró­inn og skemmti­legur, hann er bæði bjartur, skjól­sæll og ein­stak­lega hlýr. Þar eru tré sem trjá­fræð­ingar telja ein af merk­ustu trjám borg­ar­innar, hvert af sinni teg­und. En í garð­inum er að finna beyki, hlyn og ask.

Endurbyggt og stækkað

Húsið er timb­ur­hús á stein­hlöðnum kjall­ara. Á árunum 2000 til 2005 var húsið end­ur­byggt og byggt var við húsið og er því nán­ast um nýtt hús að ræða. Burð­ar­virki var end­ur­nýjað, ný utan­húss­klæðn­ing er á hús­inu en undir henni er tvö­falt gips. Húsið prýða nýir gluggar með tvö­földu gleri og nýjar úti­dyra­hurðir. Að innan er vegg­klæðn­ingin end­ur­nýjuð og gips notað á veggi og í loft. Einnig eru gólfin meira og minna end­ur­nýjuð. Í hús­inu eru nýjar vatns­lagnir, frá­rennsl­islagnir og raf­lagnir. Þær voru lagðar sér fyrir hverja hæð auk þess sem ný dren­lögn var lögð.

Eikarþil frá árunum 1920 til 1930

Dyr og hurðir eru upp­runa­legar í hluta húss­ins, en á mið­hæð­inni voru þær hækk­aðar og breikk­aðar og er útkoman hin glæsi­leg­asta.  Á mið­hæð­inni, í and­dyri og holi, er eik­arþil frá árunum 1920 til 1930. Í dag er húsið nýtt sem þrjár íbúðir. Húsið  getur einnig verið ein­býli, því gert var ráð fyrir við bygg­ingu þess að hægt væri að opna milli hæða og rýma með lít­illi fyr­ir­höfn.

Húsið hlaut viðurkenningu fyrir velheppnaðar endurbætur

Þegar húsið var end­ur­nýjað var kapp­kostað að halda öllu skrauti í upp­runa­legri mynd og er húsið eitt best heppn­aða hús í Sveitser-stíl í Reykja­vík. Margt í hús­inu er í sínum upp­runa­lega stíl. En árið 2005 veitti borg­ar­stjór­inn í Reykja­vík hús­inu við­ur­kenn­ingu fyrir vel­heppn­aða end­ur­bygg­ingu.

Einstakt tækifæri að eignast hús með sál í hjarta borgarinnar

Þetta fal­lega hús er um 260,4 fer­metrar að stærð og húsið er þrír mats­hlutar, þrjár íbúðir, allar með sér­inn­gangi. Það er þó mjög auð­velt að breyta nýt­ing­unni í ein­býl­is­hús en húsið var hannað með það að leið­ar­ljósi auð­velt væri að breyta því í þrjár íbúðir og öfugt. Hér um að ræða ein­stakt tæki­færi til að eign­ast eign á einum eft­ir­sóttasta stað í hjarta mið­borg­ar­innar sem á sér sögu, hús með sál. Eignin er til sölu hjá Kjöreign fast­eigna­sölu sem veitir frek­ari upp­lýs­ingar um eign­ina og hana er einnig að finna á heima­síðu hennar: www.kjoreign.is

Fróðleiksmoli um Laufásveg 43

Reykja­vík­ur­borg átti húsið um tíma og var ráð­gert að það yrði hluti af húsa­safni borg­ar­innar. Frá því var horfið en allt innbú þess þá flutt á Árbæj­ar­safn. Þar var sett upp sýn­ing um húsið og sögu þess með því inn­búi sem fylgdi því. Einnig myndum úr hús­inu eins og það var á árunum u.þ.b. 1916-1999. Húsinu hafði lítið verið breytt allan þann tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni