Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Breytti um lífsstíl og losaði sig við sjötíu kíló

Breytti um lífsstíl og losaði sig við sjötíu kíló

„Ég hataði allt við sjálfa mig og það var erfið staða að vera í,“ segir hin 31 árs gamla Katie Bolden í við­tali við tíma­ritið People. Tíma­ritið gaf nýverið út auka­blað um fólk sem hefur lést um helm­ing af lík­ams­þyngd sinni, og er Katie ein þeirra.

Þegar Katie var þyngst var hún tæp­lega 130 kíló. Venjuleg kvöld­mál­tíð fyrir hana var heil, stór pítsa og franska­skammtur. Hún hafði reynt ýmsa megr­un­ar­kúra á full­orð­ins­árum en ekk­ert virk­aði, en Katie var einnig illa haldin af kvíða og þung­lyndi.

Það var síðan í nóv­em­ber árið 2010 að hún var greind með fjöl­blöðru­eggja­stokka heil­kenni, sem þýddi að það yrði henni erfitt að eign­ast barn.

„Þetta voru hræði­legar fréttir, því mig hafði dreymt um að vera móðir öll full­orð­ins­árin. Ég vissi alltaf að mig lang­aði í fjöl­skyldu með eig­in­manni sínum,“ segir Katie í sam­tali við People. Það var hins vegar ekki fyrr en hún fór að finna fyrir sjón­trufl­unum og var greind með MS þremur árum síðar að hún ákvað að breyta lífs­stíl sínum.

„Ég fyllt­ist eld­móði. Ég var svo hrædd við að geta hugs­an­lega ekki gengið eða séð í fram­tíð­inni. Ég gerði mér grein fyrir því að ég var bara að eyða líf­inu mínu og það var kom­inn tími til að gera eitt­hvað og byrja að lifa líf­inu,“ segir Katie.

Átján kíló í einum mánuði

Katie byrj­aði á því að nota smá­forritið MyFit­nessPal til að fylgj­ast með hve margar kalor­íur hún inn­byrti yfir dag­inn og hve mikið prótein hún var að borða. Hægt og rólega hætti hún að borða skyndi­bita­mat og byrj­aði að ganga og synda reglu­lega. Það var hins vegar ekki tekið út með sæld­inni að breyta um lífs­stíl og reynd­ist það henni afar erfitt til að byrja með.

„Fyrsta vikan var erfið. Ég var svöng, ég var sólgin í mat. En eftir nokkrar vikur byrj­aði ég að sjá árangur og það hélt mér gang­andi. Ég létt­ist mikið fyrstu mán­uð­ina, til dæmis átján kíló í einum mán­uði.“

Á góðum stað í dag

Fyrsta árið létt­ist Katie um 34 kíló og náði þá að verða ólétt af sínu fyrsta barni. Fimm mán­uðum eftir barns­burð byrj­aði Katie að æfa á ný og þremur og hálfu ári eftir að hún hóf lífs­stíls­breyt­ing­una var hún búin að létt­ast um tæp­lega sjö­tíu kíló.

Og viti menn, hún fékk fulla sjón á ný og er ekki lengur með fjöl­blöðru­eggja­stokka heil­kenni. Hún er enn með MS sjúk­dóm­inn, enda er hann ekki afleið­ing af þyngd­inni, en hún finnur ekki mikið fyrir ein­kennum sjúk­dóms­ins.

„Ég horfi til baka á allt sem ég gerði og hugsa: Gerði ég þetta í alvör­unni? Ég veit að ég er á góðum stað, lík­am­lega og and­lega, því ég var með ofboðs­lega mik­inn kvíða en fór samt út og gerði þetta,“ segir Katie.

Hér fyrir neðan má sjá mynd­band af Katie þar sem hún opnar sig um þessa veg­ferð sem hefur komið henni á betri stað í líf­inu.

Texti / Lilja Katrín
[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta