Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hvíl í friði John Mahoney

Hvíl í friði John Mahoney
|

Leik­ar­inn góð­kunni John Mahoney, sem er hvað þekkt­astur fyrir að leika Martin Crane í sjón­varps­þátt­unum Frasier, lést síð­asta sunnu­dag á líkn­ar­deild í Chicago. Dán­ar­or­sök var krabba­mein í hálsi. Leik­ar­inn var 77 ára þegar hann lést.

John fædd­ist í Blackpool á Englandi þann 20. júní árið 1940 en flutti til Banda­ríkj­anna sem ungur maður. Hann vann við ensku­kennslu og rit­stýrði lækna­riti áður en hann fékk sig fullsaddan af vinn­unni sinni. Hann ákvað að söðla um og fór í leik­list­ar­tíma Í St. Nicholas-leik­hús­inu. Það má segja að það hafi verið mikið heilla­spor því í fram­hald­inu steig hann í fyrsta sinn á svið, nánar til­tekið árið 1977, og hvatti leik­ar­inn John Malkovich hann að ganga til liðs við Steppenwolf-leik­list­ar­hóp­inn í Chicago.

Þá fóru hjólin að snú­ast, en fyrir frammi­stöðu sína í leik­rit­inu Orphans stuttu síðar fékk John Derwent-verð­launin og Theatre World-verð­launin. Árið 1986 hlotn­að­ist honum síðan sá mikli heiður að hljóta Tony-verð­launin fyrir bestan leik fyrir frammi­stöðu sína í leik­rit­inu The House of Blue Leaves eftir John Guare.

Frasier, Niles og Martin Crane.

Heimurinn kynnist Martin Crane

Fyrsta kvik­mynda­hlut­verkið fylgdi í kjöl­farið en árið 1987 fékk hann hlut­verk í Tin Men í leik­stjórn Barry Levinson. Á níunda og tíunda ára­tug síð­ustu aldar gekk honum vel í leik­list­inni og lék í myndum á borð við Moonstruck, Say Anything…, In the Line of Fire, Reality Bites, The American Pres­ident, Barton Fink og The Hudsucker Proxy.

John sér­hæfði sig í að leika hressa menn sem heim­ur­inn hafði farið illa með. Það er því eilítið fyndið að hugsa til þess að hans stærsta hlut­verk, í sjón­varps­þátt­unum Frasier, hafi verið hinn úrilli Martin Crane, en það tók áhorf­endur nokkra þætti, jafn­vel heila seríu, að kunna að meta kauða. Martin var faðir Frasier og Niles Crane, mik­illa snobb­hænsna sem töl­uðu á tíðum hansi háfleygt, en voru samt hvers manns hug­ljúfi. Martin var fyrr­ver­andi lögga sem elskaði þæg­inda­stól­inn sinn meira en allt og sagði hlut­ina hreint út. Var hann því skemmti­legt mót­vægi við vel máli förnu syni sína.

Frasier gekk í ell­efu þátt­araðir, frá árinu 1993 til árs­ins 2004. John var til­nefndur til Emmy- og Golden Globe-verð­laun­anna fyrir leik sinn í þátt­unum og hlaut Screen Actor’s Guild-verð­launin árið 2000.

„Frábær leikari – yndislega góð manneskja“

John var greini­lega ekki aðeins góður leik­ari, heldur einnig mik­ill mann­vinur utan töku­staðar því margir hafa minnst leik­ar­ans síð­ustu daga.

„Frábær leik­ari – ynd­is­lega góð mann­eskja – þér leið betur þegar þú hittir hann – Hvíl í friði John,“ skrifar leik­ar­inn John Cusak á Twitter-síðu sinni, en hann lék með John í Say Anything….

„Hinn stór­kost­legi John Mahoney lést í dag, 77 ára að aldri. Ég hef aldrei kynnst betri manni eða stór­kost­legri leik­ara. Það er mikil blessun fyrir okkur öll að hafa eytt 11 árum með honum,“ tístar Jeff Greenberg sem sá um leik­ara­val í Frasier.

Leik­konan Peri Gilpin, sem lék Ross í Frasier, birtir mynd af John með hjart­næmri kveðju.

„John að syngja í brúð­kaup­inu mínu. Horfið á Moonstruck, Say Anything og/eða Frasier eða eitt­hvað sem þið getið með honum og skálið fyrir John. Haldið minn­ingu hans á lofti.“

Texti / Lilja Katrín
[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife