Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stjörnur sem voru stripparar

Stjörnur sem voru stripparar

Það er stað­reynd að lista­menn þurfa oft að vinna ýmis störf á meðan þeir eru að reyna að koma sér á fram­færi í þessum harða heimi.

Eitt af þessum störfum er nekt­ar­dans, en það er ótrú­lega mikið af frægu fólki sem hefur byrjað fer­il­inn á strippi. Sum nöfnin á þessum lista gætu meira að segja komið ykkur á óvart.

Uppgötvuð af Hugh Hefner

Fyrr­ver­andi Playboy-kan­ínan Kendra Wilkinson byrj­aði að vinna sem stripp­ari þegar hún var átján ára. Eftir aðeins sex mán­uði í starfi var hún upp­götvuð af Playboy kóng­inum Hugh Hefner, sem bað hana að dansa í 78 ára afmæli sínu. Eins og margir vita end­aði þetta á því að hún flutti í Playboy-höll­ina og var um tíma ein af kærustum Hughs heit­ins.

Strippari í einn dag

Spænski leik­ar­inn Javier Bardem vann stutt­lega sem nekt­ar­dans­ari, í raun bara í nokkrar klukku­stundir.

„Ég var stripp­ari í einn dag! Það var hörm­ung. Og veistu hver var að horfa? Móðir mín og systir! Þetta var svona eins og í Full Monty, maður mætti á stað­inn, dans­aði og fékk smá pen­ing að launum,“ sagði leik­ar­inn í við­tali við tíma­ritið Marie Claire árið 2008.

Nóg af vinnu

Rokk­dívan Courtney Love steig sín fyrstu skref á nokkrum nekt­ar­búllum í Los Angeles. Í við­tali við LA Weekly árið 2013 sagð­ist hún hafa unnið á fjöl­mörgum stöðum, en að stað­ur­inn Jumbo’s hafi verið bestur.

Úr strippi í skemmtanabransann

Baywatch-leik­konan Carmen Electra reyndi fyrir sér sem nekt­ar­dans­mær áður en hún gerði það gott í skemmt­ana­brans­anum. Síðar meir gaf hún út lík­ams­rækt­ar­mynd­bönd með strippí­vafi.

Fækkaði fötum í afmælum

Þegar leik­ar­inn Brad Pitt var nem­andi í háskól­anum í Missouri var hann hluti af hópi karl­manna sem sýndi nekt­ar­dans í anda Chippendales-hóps­ins. Dans­hóp­ur­inn hans Brads hét Dancing Bares og sér­hæfði sig í að dansa fyrir kven­kyns nem­endur þegar þeir áttu afmæli. Í við­tali í kringum Ósk­arsverð­launin árið 2007 sagð­ist hann einnig hafa tekið að sér að keyra stripp­ara í verk­efni og bætti við:

„Stripp­arar breyttu lífi mínu.“

Fetaði í fótspor mömmu

Fyr­ir­sætan og frum­kvöð­ull­inn Blac Chyna hóf fer­il­inn á stripp­klúbbi í Miami þar sem hún hitti fjöldan allan af stjörnum. Hún opn­aði sig um for­tíð sína í við­tali við Elle árið 2016.

„Mamma mín var stripp­ari. Hún sagði: Ef þig langar að gera þetta, vertu þá best í þessu.“

Sá fyrir fjölskyldunni

Fyr­ir­sætan Amber Rose fékk vinnu sem nekt­ar­dans­mær þegar hún var aðeins fimmtán ára gömul svo hún gæti séð fyrir fjöl­skyldu sinni eftir að for­eldrar hennar skildu. Þá not­aði hún sviðsnafnið Paris, en hún tjáði sig um þetta í útvarps­þætt­inum Loveline árið 2016.

„Það var besti tími lífs míns þegar ég var að strippa,“ sagði hún þá.

Dansaði við Black Sabbath og Guns N’ Roses

Söng­konan Lady Gaga fékk vinnu sem fata­fella í heima­borg sinni New York þegar hún var ung­lingur.

„Ég var að vinna á nekt­ar­dans­stöðum þegar ég var átján ára. Atriðið mitt var frekar villt. Ég var í svörtu leðri og dans­aði við Black Sabbath, Guns N’ Roses og Faith no More. Mikið rokk og ról. Mér finnst ekki gaman að tala um þetta en það var mikið um fíkni­efni, hörð efni. Ég myndi ekki vilja veita fólki inn­blástur til að feta í mín fót­spor,“ segir lafðin í bók­inni The Performance Identities of Lady Gaga: Critical Essays.

„Ég lað­aði mann­fjölda að mér, ég kveikti í hár­spreyi á svið­inu og dans­aði villt og galið. Ég hef mikla og sterka kyn­vit­und. Ég elska nak­inn manns­lík­ama og er mjög örugg í eigin skinni,“ bætir hún við.

Strippið hjálpaði til

Kvik­mynd­irnar um Magic Mike eru laus­lega byggðar á ferli aðal­leik­ar­ans, Channing Tatum, sem stripp­ari í Alabama. Þessi dans­reynsla hans hjálp­aði honum að landa ýmsum hlut­verkum, þar á meðal í kvik­mynd­inni Step Up þar sem hann kynnt­ist núver­andi eig­in­konu sinni, Jennu Dewan.

„Á góðu kvöldi þén­aði ég 150 doll­ara. Á slæmu kvöldi, 70 doll­ara, jafn­vel 50,“ sagði hann í við­tali við Hollywood Reporter árið 2014.

Elskaði að vera nakinn

Leik­ar­inn Chris Pratt byrj­aði sinn feril á að rífa af sér spjar­irnar.

„Ég var alltaf mjög hrif­inn af því að vera nak­inn. Ég elskaði að vera nak­inn. Ég var mjög frjáls­lyndur og hugs­aði: Ég get alveg eins fengið borgað fyrir þetta,“ sagði leik­ar­inn í við­tali við Buzzfeed árið 2013, en bætti þó við að stripp­fer­ill hans hafi ekki verið far­sæll. Hann skemmti aðal­lega í gæsap­ar­tíum.

„Ég fór einu sinni í áheyrn­arprufu í klúbbi en ég fékk ekki starfið. Ég held að ég sé ekk­ert sér­stak­lega góður dans­ari.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta