Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hætti að drekka gos og missti 13 kíló á 3 mánuðum

Hætti að drekka gos og missti 13 kíló á 3 mánuðum

„Ég man ekki hvenær ég byrj­aði að drekka gos – ég var svo ung þegar ég tók fyrsta sopann. Ég hef alltaf elskað sæt­una og gosið. Og til­finn­ing­una þegar loft­bólurnar seitl­uðu niður háls­inn.”

Svona byrjar pist­ill Amöndu Ogle á vefrit­inu Women’s Health þar sem hún segir frá því þegar hún hætti að drekka gos til að lifa heil­brigð­ara lífi.

Skolaði matnum niður með gosi

Amanda seg­ist hafa drukkið fimm til sex dósir af gosi á dag í upp­vext­inum og oft fylgdi rusl­fæði með.

„Ég var í kringum tíu ára ald­ur­inn þegar ég byrj­aði að hugsa um mig sem feitt barn. Þá byrj­aði ég að taka eftir því að fötin mín voru alltaf þröng og að flestar versl­anir seldu ekki svölu fötin sem hinir krakk­arnir voru í í minni stærð. Ég spil­aði blak og körfu­bolta sem varð til þess að ég eign­að­ist vini og hreyfði mig, en ég breytti ekki mat­ar­venjum mínum. Ég borð­aði í raun meira og skol­aði matnum niður með gosi því ég var alltaf svöng eftir æfingar,“ skrifar Amanda.

Hataði sjálfa sig

Hún seg­ist hafa gert grín að lík­ama sínum til að fela eymd­ina innra með sér.

„Ég hataði sjálfa mig og lík­ama minn. Það eina sem lét mér líða betur var að borða og drekka gos. Ég skamm­að­ist mín fyrir þyngd­ina mína, borð­aði góða mál­tíð með köldum gos­drykk, leið vel í tíu mín­útur eftir mál­tíð­ina og skamm­að­ist mín síðan aftur og varð reið út í sjálfa mig fyrir að borða rusl. Þessi víta­hringur end­aði aldrei,“ skrifar Amanda og bætir við að hún hafi hætt að horfa í spegil á ung­lings­ár­unum því hún var svo óánægð með sig.

Stanslaus höfuðverkur

Gos­drykkjan og mat­ar­venj­urnar höfðu mikil áhrif á heilsu­far Amöndu, sem varð móð­ari á æfingum og þreytt­ari eftir því sem hún þyngd­ist meira. Þegar hún byrj­aði í mið­skóla ákvað hún að taka sig taki.

„Ég ákvað að ég væri búin að fá nóg. Ég vissi að ég þyrfti að breyta matar­æð­inu því ég hreyfði mig mjög mikið, þökk sé íþróttum. Fólk var alltaf að segja mér hve slæmt gos væri þannig að ég ákvað að hætta að drekka það og sjá hvort eitt­hvað myndi breyt­ast,“ skrifar Amanda og bætir við að það hafi verið erfitt að hætta skyndi­lega.

„Ég fann fyrir löngun í sykur og ég var stans­laust með höf­uð­verk. Það skipti engu máli hve mikið vatn ég drakk. Ég reyndi nokkrum sinnum að svala syk­ur­þörf­inni með sætu tei en það virk­aði ekki. Það kom fyrir að mig lang­aði að gef­ast upp og fá mér gos en ég vissi að þetta væri búið ef ég léti undan. Þannig að ég hélt minni stefnu. Eftir um það bil mánuð minnk­aði löng­unin í sykur og ég hætti að fá höf­uð­verk.“

Grét fyrir framan spegilinn

Amanda segir að í margar vikur hafi fólk sagt við hana að hún væri búin að létt­ast, en hún trúði því ekki alveg sjálf. Þannig að þegar hún þurfti að panta sér bol fyrir úrslita­leik í körfu­bolta, ákvað hún að panta hann í stærð Medium í stað­inn fyrir Large sem hún not­aði vana­lega.

„Þegar bol­ur­inn kom man ég eftir að halda á honum inni á bað­her­bergi og segja við sjálfa mig: Ekki verða reið ef þetta passar ekki. Þú hefur örugg­lega grennst en það er allt í lagi ef hann passar ekki. Þú átt aðra boli til að vera í á leiknum. Ekki láta þetta koma þér í upp­nám. Ég mát­aði bol­inn vand­ræða­laust þannig að ég ákvað að snúa mér við og snúa að spegl­inum. Bolurinn pass­aði og var meira að segja smá víður. Ég sá að ég var komin með grennra mitti og ég grét fyrir framan speg­il­inn. Þetta var í fyrsta sinn sem ég hafði kíkt í spegil svo árum skipti. Ég hét því að halda þessu áfram og fara aldrei aftur í sama farið,“ skrifar Amanda.

800 kaloríur og 220 grömm af sykri á dag

Á aðeins þremur mán­uðum létt­ist Amanda um rúm­lega 13,5 kíló, bara með því að hætta að drekka gos. Eins og hún skrifar í pistl­inum var hún að losa sig við átta hund­ruð kalor­íur og 220 grömm af sykri á degi hverjum. Og lík­am­legt ástand hennar batn­aði líka til muna.

„Ég gat hlaupið hraðar, íþrótta­fötin mín voru ekki þröng lengur og mér leið lík­am­lega betur. Ég fann að ég var ekki að burð­ast með jafn­mikla þyngd. Það veitti mér inn­blástur til að halda áfram og velja holla val­kosti til að setja ofan í mig. Ég var með sjálfs­traust sem aldrei fyrr og var á toppi heims­ins,“ skrifar Amanda, en pistil­inn í heild sinni má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife