Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tími einkabílsins er að líða undir lok

Búist við miklum breyt­ingum á sam­göngum.

Tími einkabílsins er að líða undir lok

„Fram­tíðin er í almenn­ings­sam­göngum og öðrum umhverf­is­vænum sam­göngu­mátum. Allir voru að tala um hvernig tími einka­bíls­ins fer að líða undir lok,“ segir Salvar Þór Sig­urð­ar­son, vöru­stjóri hjá frum­kvöðla­fyr­ir­tæk­inu Vortexa í Bret­landi. Vortexa hefur vakið tals­verða athygli. Fyr­ir­tækið nýtir eigin tækni til að sýna nákvæm­lega olíu­skipa­flutn­inga með hjálp gervi­greinar, hversu mikið af olíu og hvernig olíu er verið að flytja um alla heim á raun­tíma.

Á dög­unum sat Salvar ráð­stefnu um þróun á hrá­vöru­mark­aði í Lausanne í Sviss á vegum breska dag­blaðs­ins Financial Times. Þetta er árleg ráð­stefna sem fjallar um ýmsar hliðar hrá­vöru­mark­að­ar­ins á borð við kol, járn og ýmis­legt annað. Olía var fyr­ir­ferð­ar­mesta umfjöll­un­ar­efnið. Á meðal ann­arra ráð­stefnu­gesta voru for­stjórar og annað lyk­il­fólk stór­fyr­ir­tækja í olíu- og flutn­inga­geir­anum. Vortexa var eitt af aðal­styrkt­ar­fyr­ir­tækjum ráð­stefn­unnar og kynnti Salvar þar vörur þess.

„Alls­konar nýir orku­gjafar eru nú orðnir sam­keppn­is­hæf­ari og munu halda áfram að þró­ast. Þetta og fleira ræddi fólk um án þess að snúa öllu upp í karp um hvort þétt­ing byggðar og auknar almenn­ings­sam­göngur séu yfir­höfuð góðar hug­myndir. Ég sakna þess á Íslandi.“

„Mér fannst mjög áhuga­vert að sjá hversu vel tókst að ræða umfangs­miklar breyt­ingar á heim­inum, sem fara margar beint gegn hags­munum þeirra fyr­ir­tækja sem áttu full­trúa þarna, án þess að detta í afneitun. Þétting byggðar mun halda áfram og bráðum verður einka­bíll­inn ekki kon­ungur allra sam­ganga,“ segir Salvar.

Yfir­skrift ráð­stefn­unnar í ár var: Upphaf nýrrar sveiflu. Fjallað var um þróun mála í kjöl­far fjár­málakrepp­unnar, upp­sveifl­unnar um heim allan eftir hana og nýja orku­gjafa. „Stemn­ingin virt­ist vera sú að eftir nið­ur­skurð síð­ustu ára fari að birta aftur á mörk­uðum með hækk­andi olíu­verði, hvort sem eitt­hvað er til í því eða ekki. Und­ir­tónn­inn var samt mjög skýr. Upp­sveiflan sem er að hefj­ast núna er alls ekki venju­leg, því hún ger­ist á sama tíma og mestu tækni­fram­farir mann­kyns­sög­unnar eru að eiga sér stað, sér­stak­lega þegar kemur að orku­gjöfum,“ segir Salvar og bætir við að for­stjórar olíu­fyr­ir­tækj­anna hafi verið sam­mála um að heim­ur­inn sé að breyt­ast og að þeir þurfi að fylgja með. Mikið var líka rætt um raf­hlöðu­tækni, meng­un­ar­vanda­mál, þétt­ingu byggðar, sam­göngu­mál og mál á borð við bita­keðju (e. blockchain) sem talið er að geti haft mikla breyt­ingu í för með sér í fjár­mála­heim­inum og flestum við­skiptum.

„Alls­konar nýir orku­gjafar eru nú orðnir sam­keppn­is­hæf­ari og munu halda áfram að þró­ast. Þetta og fleira ræddi fólk um án þess að snúa öllu upp í karp um hvort þétt­ing byggðar og auknar almenn­ings­sam­göngur séu yfir­höfuð góðar hug­myndir. Ég sakna þess á Íslandi,“ segir Salvar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta