Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Nýjasta nýtt frá Google

Eins gott er að sperra eyrun þegar tölvuris­inn Goggle boðar breyt­ingar. Á dög­unum til­kynnti fyr­ir­tækið nokkrar athygl­is­verðar nýj­ungar sem eru meira og minna byggðar á nýrri og betrumbættri tækni tengdri gervi­greind, sem Goggle hefur verið að byggja upp síð­ast­liðna ára­tugi.

Nýjasta nýtt frá Google
|||||

Öllum er ljóst að Google er leið­andi fyr­ir­tæki á þessu sviði og er þegar farið að nota sínar öfl­ugu vit­vélar til þess að stýra sjálf­keyr­andi bílum, keyra áfram ýmis­konar smá­forrit og talandi tölvur og síma. Google kynnti nýj­ungar varð­andi ýmsi­legt er til­heyrir Andoid, Google Lens og Maps. Flest af því sem Google er að ýta úr vör þessi miss­erin er kannski ekki sýni­legt og áber­andi en á eftir að gjör­breyta tækjum og tólum sem við notum dag­lega. Hér eru nokkur dæmi.

Nú er hægt að velja um sex raddir á Google Assistant, tal­vél sem lík­ist lygi­lega venju­legri mann­eskju þegar hún mælir.

Google Assistant verður þarfasti þjónn­inn
Radd­stýrða leit­ar­vélin og aðstoð­ar­þjónn­inn Google Assistant hefur tekið stór­tækum fram­förum síðan það var sett á markað fyrir tveimur árum. Nú er hægt að velja um sex raddir á Google Assistant, tal­vél sem lík­ist lygi­lega venju­legri mann­eskju þegar hún mælir. Nú þarf ekki lengur að ávarpa tækið: „Hey, Goggle“ – Google Assistant getur fylgst með sam­ræðum og gripið inn í ef þess er óskað og svarað fleiri en einni spurn­ingu í einu, eins og: Hvað er maður lengi að fljúga til Costa Rica og hvernig er veðrið þar í sept­em­ber? Sömu­leiðis er hægt að tengja Google Assistant við snjall­tæki heim­il­is­ins, kaffi­vél­ina, sjón­varpið, ofna­kerfið og stýra þeim með ein­földum skip­unum. Þessi tækni er bylt­ing fyrir sjón­skert og hreyfi­hamlað fólk.

Nú er hægt að setja upp kurt­eis­is­við­mótið Pretty Plesae þar sem skylt er að segja „viltu gjöra svo vel“ og sömu­leiðis þakka vel fyrir sig, til þess að sýna almennt góð for­dæmi fyrir ungt og áhrifagjarnt fólk.

Mannlegt og kurt­eist við­mót
Google-radd­irnar eru lygi­lega mann­legar, þær hika, ræskja sig, nota þagnir og réttar áherslur. Veit­inga­staðir og skyndi­bita­staðir eru í auknum mæli farnir að nota tal­vél­ina Goggle Duplex til þess að taka á móti pönt­unum í gegnum síma og mögu­leik­arnir eru óþrjót­andi þegar þessi tækni er ann­ars vegar. Margir hafa áhyggjur af því að þessi radd­stýrða tækni eigi eftir að gera börnin okkar ókurt­eis þegar við tölum allan dag­inn í boð­hætti, gef­andi enda­lausar skip­anir án þess að biðja fal­lega eða þakka fyrir sig. Nú er hægt að setja upp kurt­eis­is­við­mótið Pretty Plesae þar sem skylt er að segja „viltu gjöra svo vel“ og sömu­leiðis þakka vel fyrir sig, til þess að sýna almennt góð for­dæmi fyrir ungt og áhrifagjarnt fólk. Þetta er svipað og Amazon hefur gert með Echo Dot Kids Edition sem er radd­stýrður tal­hátal­ari sem á að kenna börnum almenni­lega mannasiði.

Goggle full­komnar sím­ann þinn
Hver kann­ast ekki við raf­magns­lausa síma, fulla af furðu­legum smá­forritum sem við notum aldrei? Á end­anum verður hann eins og Boris Jeltsín, alltaf fullur og alveg ónot­hæfur og við skiptum honum út fyrir nýjan síma. Nýja Android- stýri­kerfið fylgist með sím­anum, hvað þú ert að nota og hvenær, og tekur til í sím­anum; hendir út ónot­uðum for­ritum og ein­faldar allt, bæði til þess að gera við­mótið þægi­legra og til þess að spara raf­hlöður. Það tíma­mælir alla notkun á öllum for­ritum – þannig er sömu­leiðis hægt að stýra eigin hegðun og setja sér mörk eins og til dæmis 20 mín­útur á Twitter á dag – það er dag­skammt­ur­inn.

OMO á að auð­velda og bæta líf þitt og vinna gegn tölvu­fíkn og tryggja staf­ræna heilsu.

JOMO – Taktu þér frí frá skjánum
JOMO á að auð­velda og bæta líf þitt og vinna gegn tölvu­fíkn og tryggja staf­ræna heilsu. Google er í auknum mæli farið að fylgj­ast með dag­legum venjum okkar og mun á næstu árum kynna nýja tækni til þess að stuðla að auknu heil­brigði með reglu­legum mæl­ingum. JOMO er for­rit sem fylgist með tölvu­notkun þinni og segir þér að slökkva á tölv­unni og hvíla þig frá skjánum þegar nóg er komið. JOMO er and­stæðan við FOMO, The Fear Of Missing Out, ótt­inn við að missa af ein­verju. JOMO er skamm­stöfun á The Joy Of Missing Out on wasted time in front of a screen eða gleðin við að taka sér tíma frá skjánum.

Þú horfir á heim­inn í gegnum Lens og Google greinir frá því sem fyrir augu ber.

Hið alsj­ándi auga – Goggle Lens
Nú getur þú rann­sakað og séð út um alla heima með Google Lens. Myndavél sem greinir og skoðar er þegar komin í 10 Android-síma. Lens gefur þér ýmis­konar nið­ur­stöður á auga­bragði hvort sem það er sér­kenni­legt orð, furðu­legur sveppur í garð­inum, fjall eða gam­all kast­ali. Þú horfir á heim­inn í gegnum Lens og Google greinir frá því sem fyrir augu ber.

Sjálf­keyr­andi bílar komnir á fljúg­andi ferð
Flestir tækni­spá­menn hafa sagt að þetta ár verði árið sem gervi­greindin springi út. Sá spá­dómur er að öllum lík­indum að ræt­ast. Margar tækninýj­ungar tengdar gervi­greind eru í fæð­ingu og tromp Google í þessum geira er und­ir­fyr­ir­tækið Waymo sem sér um hin nýju undra­tæki: sjálf­keyr­andi bíla. Á þessu ári mun Waymo opna nýtt smá­forrit, svipað og UBER, leigu­bíla­þjón­ustu þar sem allir bíl­anir eru sjálf­keyr­andi. Ein­hverjar borgir í Banda­ríkj­unum hafa þegar gefið grænt ljós á þessa starf­semi.

Við­bættur raun­veru­leiki, AR (Aug­mented Reality), er ný tækni sem bregður upp ýmsum myndum og táknum fyrir framan ykkur, ýmist með snjall­gler­augum eða annarri tækni.

Við­bættur raun­veru­leiki
Það stytt­ist í að raun­veru­leik­inn og okkar dag­lega líf verði eins og skáld­saga eftir Sjón, þar sem ýmis furðu­at­vik og -verur geta skotið upp koll­inum. Við­bættur raun­veru­leiki, AR (Aug­mented Reality), er ný tækni sem bregður upp ýmsum myndum og táknum fyrir framan ykkur, ýmist með snjall­gler­augum eða annarri tækni. Þið getið því allt í einu séð bleikan fíl rölta niður Lauga­veg­inn, alls­gáð og akandi. Þessi tækni á eftir að stór­bæta Google Maps og gera átta­villtu fólki létt­ara fyrir að rata á nýjum slóðum og jafn­vel bjóða upp á fyr­ir­taks leið­bein­ingar, sögu­göngu og fræðslu. Google Maps verður því leið­bein­andi og landa­kort á ferða­lögum þínum. Þessi tækni gefur líka nýja mögu­leika í kennslu, tölvu­leikjum og mörgu öðru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta