Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Magapína, bros og takkaskór

HM í knatt­spyrnu er alvar­legt mál, upp á líf og dauða, segja sumir, og upp­á­komur og úrslit þess­arar risa­vöxnu íþrótta­veislu skipta fjölda fólks miklu máli á fjög­urra ára fresti. En í miðjum ákaf­anum ger­ast stundum snið­ugir eða jafn­vel grát­bros­legir hlutir. Mannlíf rifj­aði upp nokkur skondin atvik úr sögu HM.

Magapína, bros og takkaskór
||||||
Gary Lineker.

1. Jimmy Greaves, HM í Chile 1962
Hunda­hvísl­ar­inn
Tapleiks Eng­lend­inga gegn Bras­il­íu­mönnum í átta liða-úrslitum á HM 1962 er einna helst minnst fyrir það þegar flæk­ings­hundur hljóp inn á völl­inn og hóf mik­inn skop­leik þar sem dóm­ari og leik­menn beggja liða reyndu árang­urs­laust að kló­festa hvutta. Það var ekki fyrr en Jimmy Greaves, ungur fram­herji Englands, fór á fjóra fætur, horfði í augu voffans og tal­aði hann til sín að leik­ur­inn gat haf­ist að nýju, en þó ekki fyrr en hund­ur­inn hafði launað Greaves greið­ann með því að míga á treyj­una hans. Sagan segir að brasil­íski snill­ing­ur­inn Garrincha hafi verið svo hrif­inn af hund­inum að hann tók hann með sér eftir leik og hélt sem gælu­dýr.

2. Gary Lineker, HM á Ítalíu 1990
Upp á bak
Það kom ekki í ljós hversu skondið atvik átti sér stað í fyrsta leik Eng­lend­inga á HM 1990 gegn Írum fyrr en tutt­ugu árum síðar þegar aðal­leik­ar­inn, marka­hrók­ur­inn Gary Lineker, sagði sjálfur frá því í við­tali. Lineker leið illa í mag­anum fyrir leik og var ennþá slapp­ari í hálf­leik, en ákvað að harka af sér með ófyr­ir­séðum afleið­ingum. Snemma í síð­ari hálf­leik gerði hann til­raun til að tækla bolt­ann, teygði fram löpp­ina og slak­aði svo á lík­am­anum … en örlítið of mikið. Þegar fram­herj­inn gerði sér grein fyrir því að hann hafði í raun og veru kúkað á sig í miðjum leik á HM reyndi hann eftir fremsta megni að gera sem minnst úr mál­inu, greip megnið af leðj­unni úr dimm­bláum stutt­bux­unum með lóf­anum svo lítið bar á og þurrk­aði svo hönd­unum og aft­ur­end­anum í grasið af og til næstu mín­útur. Viður­eign­inni lauk með 1-1 jafn­tefli en Lineker sagði enga varn­ar­menn, hvorki fyrr né síðar, hafa veitt sér jafn­mikið pláss til að athafna sig og þá írsku eftir þessa óheppi­legu upp­á­komu í leiknum.

Diana Ross.

3. Diana Ross, HM í Banda­ríkj­unum 1994
Beint á ská
Hápunktur opn­un­ar­há­tíðar HM í Banda­ríkj­unum 1994 var frammi­staða tón­list­ar­goð­sagn­ar­innar Díönu Ross, eða sú var í það minnsta ætl­unin. Að amer­ískum sið átti fyrir fram ákveðnum gjörn­ingi söng­kon­unnar að ljúka með því að hún negldi knett­inum af öllu afli í markið af víta­punkt­inum og við það átti markið að springa í loft upp og markstang­irnar að hrynja saman, allt eftir Hollywood-bók­inni. En skot Díönu var ekki hnit­mið­aðra en svo að hún dúndraði lengst fram hjá. Markið féll engu að síður saman eins og ráð­lagt hafði verið og úr varð hin vand­ræða­leg­asta upp­á­koma sem verður lengi í minnum höfð. Engum sögum fer af frek­ari afrekum Ross á knatt­spyrnu­vell­inum eftir HM 1994

4. Graham Poll, HM í Þýska­landi 2006
Gula hættan

Graham Poll.

Loka­viður­eign F-rið­ils milli Króatíu og Ástralíu á HM 2006 var æsi­leg og mik­ill hiti í leik­mönnum beggja liða, enda sæti í 16-liða úrslitum í húfi. Ringul­reiðin var svo mikil að enski dóm­ar­inn Graham Poll þurfti að draga gula spjaldið alls átta sinnum úr vasa sínum og það rauða þrisvar, sem ger­ist á bestu bæjum. Verra var að Poll gerði þau sjald­séðu mis­tök að sýna sama leik­mann­inum, Króat­anum Josip Simunic, gula spjaldið þrisvar sinnum í sama leiknum, fyrst á 38. mín­útu, svo á 92. mín­útu þegar Simunic hefði átt að fjúka út af, og loks fyrir kjaft­brúk þremur mín­útum eftir lokaflautið, þegar rauða spjaldið fylgdi loks í kjöl­farið. Vakti þetta mikla kátínu margra, en skömm hjá öðrum. Poll megn­aði ekki að galdra fram neinar hald­bærar skýr­ingar á þessum alvar­legu mis­tökum aðrar en þær að Simunic, sem fædd­ist og ólst upp í Ástralíu, tal­aði með svo hnaus­þykkum áströlskum hreim að kannski hefði það ruglað hann í rím­inu. Dómarinn dæmdi ekki fleiri leiki á mót­inu og lagði stór­mótaflaut­una á hill­una skömmu síðar.

James Rodriguez.

6. James Rodriguez, HM í Brasilíu 2014
Skordýr á skor-dýri
Sjón­varps­á­horf­endur um allan heim ráku upp stór augu þegar James Rodriguez skor­aði eina mark Kólumbíu úr víta­spyrnu í 2-1 tapi gegn Brasilíu í átta liða úrslitum HM 2014. Þó ekki vegna spyrnu­tækni fram­herj­ans, heldur vegna þess að þegar hann stillti sér upp til að taka vítið tyllti óvenjurisa­vaxin engi­spretta sér á öxl­ina á honum og dvaldi þar í mestu mak­indum næstu mín­útur með augu heims­byggð­ar­innar á sér. Um fátt var meira rætt en engsiprett­una í kjöl­far leiks­ins og er talið að vin­sældir hennar hafi, í að minnsta um hríð, verið meiri en sjálfrar engi­sprett­unnar Tuma úr ævin­týr­inu um Gosa.

___________________________________________________________

Dröfn Ösp Snorra­dóttir-Rozas pistla­höf­undur.

Dröfn Ösp Snorra­dóttir-Rozas pistla­höf­undur
„Mér fannst brjál­æð­is­lega fyndið þegar dóm­ar­inn spreyjaði auka­spyrnu­froð­unni á skóna hans Bruno Martins Indi þegar Hol­lend­ingar rúst­uðu Spán­verja 5-1 á HM 2014. Þetta var einn af fyrstu leikj­unum í keppn­inni og eng­inn hafði séð þessa auka­spyrnu­froðu fyrr.

Þegar Martins Indi stillti sér upp í varn­ar­vegg spreyjaði dóm­ar­inn beint á nýju, fínu fót­bolta­skóna hans og hann varð svo inni­lega og ynd­is­lega reiður. Mjög snið­ugt og frá­bær leið til að kynn­ast froð­unni.“

Hannes Þór Frið­bjarn­ar­son trommari.

Hannes Þór Frið­bjarn­ar­son trommari
„Kamerún komst í átta liða úrslit á HM 1990 og sýndi manni að ef leik­gleði er fyrir hendi er allt hægt. Enginn skemmti sér betur á Ítalíu en Roger gamli Milla, sem var þá 38 ára gam­all en leit út fyrir að vera fimm­tugur. Það sem heill­aði við mörkin fjögur hjá Milla voru fagn­að­ar­læti hans. Í hvert sinn sem bolt­inn söng í net­inu hljóp okkar maður út að horn­fána og tók lauf­léttan dans við fána­stöng­ina, sem maður hafði ekki séð áður. Ungir knatt­spyrnu­menn um allan heim fóru að leika þetta eftir og meira að segja okkar eigin Alfreð Finn­boga­son hefur tekið upp á þessu nokkrum sinnum, þrátt fyrir að hafa aðeins verið tveggja ára þegar Milla steig á stokk á Ítalíu. Góð spor lifa að eilífu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta