Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óslípuðu demantarnir í Rússlandi

Stjörnur á borð við Lionel Messi, Mohamed Salah og Kevin De Bruyne eru á allra vörum nú þegar tæp­lega tvær vikur eru í HM í Rúss­landi, en hvað með alla hina? Á hverju heims­meist­ara­móti ger­ist eitt­hvað óvænt, leik­menn springa út og nýjar hetjur verða til. Mannlíf leit á nokkra unga og efni­lega spil­ara sem vert er að fylgj­ast með á HM í sumar, ásamt Hjörvari Haf­liða­syni fót­bolta­spek­úlant.

Óslípuðu demantarnir í Rússlandi
Albert Guð­munds­son.

Achraf Hakimi, Marokkó, varn­ar­maður, Real Madrid
19 ára
1,77 m
For­eldrar Achraf Hakimi eru frá Marokkó en hann fædd­ist í Madríd og gekk til liðs við Real Madrid aðeins átta ára gam­all árið 2006. Hann þótti ákaf­lega efni­legur í ung­linga­aka­demíu hvít­liða og sló í gegn með vara­liði félags­ins í tvö ár áður en hann lék sinn fyrsta leik með aðal­lið­inu í októ­ber síð­ast­liðnum, þegar hann kom inn í liðið í fjar­veru ann­ars heimaln­ings, Spán­verj­ans Dani Carvajal. Mánuði síðar skor­aði hann sitt fyrsta mark fyrir Real í 5-0 sigri á Sevilla. Fyrsta lands­leik­inn fyrir Marokkó lék hann ein­ungis sautján ára gam­all árið 2016, sem sýnir vel í hversu miklum metum tán­ing­ur­inn er þar á bæ. Meiðsli hafa plagað þennan öfl­uga varn­ar­mann að und­an­förnu og einnig hefur heyrst orðrómur þess efnis að hann verði seldur frá Real eftir tíma­bilið, en sjálfur seg­ist Hakimi ekki vilja fara fet. Hvað sem úr verður er ljóst að hér fer gríð­ar­legt efni sem gaman verður að fylgj­ast með á HM.

Hjörvar Haf­liða­son: „Afskap­lega efni­legur hægri bak­vörður sem er sókn­djarfari en Dani Carvajal, félagi hans hjá Real Madrid, sem leikur í sömu stöðu.“

Timo Werner.

Timo Werner, Þýska­land, Fram­herji, RB Leipzig
22 ára
1,81 m

Timo Werner er bor­inn og barn­fæddur í Stutt­gart og er hvort tveggja yngsti leik­mað­ur­inn sem hefur leikið með aðal­liði heimaliðs­ins og yngsti marka­skor­ari þess. Hann varð dýr­asti leik­maður RB Leipzig sem borg­aði fyrir hann 10 millj­ónir evra þegar Stutt­gart féll vorið 2016 og hefur til þessa skorað 34 mörk í 63 leikjum fyrir félagið. Í mars síð­ast­liðnum varð hann yngsti leik­mað­ur­inn í sög­unni til að spila 150 leiki í þýsku Bundeslig­unni. Werner var fyrst kall­aður í U-15 ára-lands­lið Þjóð­verja þegar hann var tólf ára gam­all árið 2010 og hefur skorað glás af mörkum á öllum lands­liðs­stigum, þar af sjö mörk í tólf leikjum með aðal­lið­inu. Þar af komu þrjú mörk í Álfu­bik­arnum á síð­asta ári, þar sem hann hlaut gull­skó­inn. Fram­herj­inn hefur verið þrá­fald­lega orð­aður við mörg af stærstu félögum Evrópu fyrir háar fjár­hæðir og kæmi lítið á óvart ef eitt þeirra kló­festi hann að HM í Rúss­landi loknu.

Hjörvar Haf­liða­son: „Timo Werner er mað­ur­inn sem á að taka við af Miroslav Klose hjá Þjóð­verjum. Fleiri orð eru óþörf.“

Hirving Lozano.

Hirving Lozano, Mexíkó, Kant­maður, PSV Eind­hoven
22 ára
1,77 m

Hirving Rodrigo Lozano Bahena er langt nafn og erfitt að muna, en í Mexíkó gengur hann undir tals­vert þægi­legra nafni, „Chucky“. Hann ólst upp hjá félag­inu Pachuca í Mexíkó og þegar honum var skipt inn á í sínum fyrsta aðal­liðs­leik, átján ára gömlum, skor­aði hann fimm mín­útum síðar, sem reynd­ist ágætis fyr­ir­boði um það sem koma skyldi. Lozano varð fljót­lega umtal­aður og meðal ann­ars orð­aður við Manchester United, en PSV Eind­hoven í Hollandi krækti í leik­mann­inn síð­asta sumar og sér ekki eftir því. Þrátt fyrir að fá af og til rauð spjöld skor­aði hann tíu mörk í fyrstu ell­efu leikjum sínum fyrir PSV og mörkin eru nú orðin sautján í 28 leikjum, sem er býsna gott fyrir kant­mann. Sjö mörk í 25 lands­leikjum fyrir Mexíkó segja einnig sína sögu.

Hjörvar Haf­liða­son: „Lozano er leik­mað­ur­inn sem heldur Albert Guð­munds­syni fyrir utan lið PSV Eind­hoven. Brögð­óttur kant­maður sem er fær um að fram­kvæma óvænta hluti.“

Aleksei Miranchuk.

Aleksei Miranchuk, Rússland, Fram­herji, Lokomotiv Moskva
22 ára
1,82 m

Aleksei og Anton tví­bura­bróðir hans gengu báðir til liðs við Spartak Moskvu ungir að aldri, en félagið lét þá gossa sextán ára gamla því þeir þóttu ekki nógu lík­am­lega sterkir. Erki­fj­end­urnir í Lokomotiv Moskvu létu til skarar skríða og fengu tví­burana til sín og það reynd­ist hár­rétt ákvörðun. Báðir hafa þeir blómstrað og kom­ist í rúss­neska lands­liðið, Aleksei árið 2015 en Anton á síð­asta ári. Aleksei var líka fyrri til að tryggja sér sæti í aðal­liði Lokomotiv, svo leiða má líkur að því að hann hafi verið fæddur nokkrum mín­útum á undan bróður sínum. Gest­gjaf­arnir þurfa nán­ast örugg­lega á töfrum að halda á HM og þeir gætu komið frá Aleksei Miranchuk. Eða bróður hans.

Hjörvar Haf­liða­son: „Maðurinn sem á að skora mörkin fyrir Rússa ásamt Aleksandr Golovin.“

Giovani Lo Celso.


Giovani Lo Celso, Argent­ína, Miðju­maður, Paris Saint-Germain
22 ára
1,77 m

Giovani Lo Celso er Argent­ínu­maður af ítölskum ættum, sem verður að telj­ast ansi hreint álit­leg knatt­spyrnu­blanda. Hann er afurð ung­linga­starfs Rosario Central í Argent­ínu og PSG borg­aði 8,5 millj­ónir punda fyrir hann tví­tugan árið 2016. Þrátt fyrir stjörnum prýdda miðj­una hjá PSG hefur þessum unga leik­manni tek­ist að brjóta sér leið inn í mynd­ina hjá félag­inu og lék sinn fyrsta lands­leik fyrir Argent­ínu á síð­asta ári.

Hjörvar Haf­liða­son: „Hver veit nema við sjáum þennan efni­lega miðju­mann leika gegn Íslandi þann 16. júní því Jorge Sampaoli, lands­liðs­þjálf­ari Argent­ínu, hefur ekki úr svo mörgum miðju­mönnum að velja. Fólk er alltaf að leita að „hinum nýja“ hinum og þessum og ég myndi segja að Giovani Lo Celso gæti hugs­an­lega orðið hinn nýi Cambiasso.“

Fleiri dem­antar:
Kasper Dolberg, Danmörk, Fram­herji, Ajax
20 ára
1,87 m

Hávaxinn fram­herji sem raðar inn mörkum með Ajax og gæti slegið í gegn í liði Dana sem vantar fleiri stjörnur.

Maxi Gómez, Úrúgvæ, Fram­herji, Celta Vigo
21 árs
1,86 m

Nýjasta varan á marka­hróka­færi­bandi Úrúgvæ verður til taks ef þeir eldri verða í óstuði.

Albert Guð­munds­son, Ísland, Kant­maður, PSV Eind­hoven
20 ára
1,77 m

Flinkur leik­maður af aðal­sættum í knatt­spyrnu­legu til­liti sem veit hvar markið er.

Karol Linetty, Pólland, Miðju­maður, Samp­doria
23 ára
1,76 m

Dreifari á miðj­unni sem er líkt við Andrés Iniesta í heima­landi sínu.

Alireza Jahan­bakhshs, Íran, Miðju­maður, AZ Alkmaar
24 ára
1,80 m

Var nán­ast ósýni­legur á HM 2014 í Brasilíu en mik­ils er vænst af þessum sókn­djarfa miðju­manni í Rúss­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta