Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Það er komið að því

Biðinni löngu lýkur senn. HM 2018 í knatt­spyrnu hófst form­lega í gær í Rúss­landi en hjá Íslend­ingum byrjar mótið í raun á morgun þegar lands­liðið tekur á móti Argent­ínu í fyrsta leik í D-riðli.

Það er komið að því
Jóhann Berg Guð­munds­son var skall­aður í gær

Hvernig spil­ast leik­ur­inn, hvaða þýð­ingu hefur hann og hvar er ákjós­an­leg­ast að horfa á strák­ana okkar spila? Mannlíf ræddi við val­in­kunna and­ans menn og konu um morg­un­dag­inn sem margir hafa beðið eftir.

Hvaða þýðingu hefur leikurinn?

Ekki bara fyrir Ísland

Bergur Ebbi Bene­dikts­son.

„Þegar Heimir lands­liðs­þjálf­ari til­kynnti hvaða 23 leik­menn færu á HM sagði hann eitt­hvað á þá leið að þessir leik­menn sem hann hefði valið væru ekki bara full­trúar Íslands á HM heldur líka allra þjóð­anna sem komust ekki á HM. Þessi orð Heimis hafa setið dálítið í mér og ég held að þetta sé hár­rétt,“ segir Bergur Ebbi Bene­dikts­son. „Maður hefur til dæmis heyrt af því að margir Ítalir og Banda­ríkja­menn ætli að halda með Íslandi og það er auð­vitað ekk­ert skrýtið að stórar þjóðir sem komust ekki á HM en telja sig eiga skilið að vera á HM styðji frekar litlu liðin en þau stóru. Og svo eru það allar litlu þjóð­irnar sem sam­söm­uðu sig kannski áður við önnur lítil lönd, eins og Bosníu eða Danmörku, sem hafa gert góða hluti á knatt­spyrnu­svið­inu, en sam­sama sig við okkur núna. Maður hefur sjálfur stutt svona dverg­þjóðir á stór­mótum í gegnum tíð­ina og ég myndi halda að Ísland ætti vinn­ing­inn í þeirri keppni á HM í ár.“

Bergur Ebbi lítur á þátt­töku Íslands á HM Rúss­landi sem sann­ar­lega mik­il­vægt augna­blik í íslenskri íþrótta­sögu, en ekki síður í sögu heims­meist­ara­móts­ins í knatt­spyrnu.

„Ég er dálít­ill nörd og mik­ill áhuga­maður um sögu HM. Þegar maður fer yfir þá sögu er einna skemmti­leg­ast að sjá svona litlar þjóðir reka inn nefið hér og þar. Norður-Írland, El Salvador, Kosta Ríka og fleiri, og svo auð­vitað Úrúgvæ sem eru tvö­faldir heims­meist­arar þrátt fyrir að telja aðeins um þrjár og hálfa milljón íbúa. Þetta eru sög­urnar sem standa upp úr og það verður spurt um þátt­töku Íslands á HM í Rúss­landi í pöbb-kvissum svo ára­tugum skiptir,“ segir Bergur en hann er einn þeirra heppnu sem verða á Spartak-vell­inum í Moskvu á morgun þegar þessi mik­il­vægi leikur fer fram.

„Þetta verður end­ur­tekn­ing á Eng­landsúr­slit­unum. Mér dettur ekki í hug að spá neinu öðru.“

„Ég hef hugsað mikið um leik­inn og öðru hvoru klár­ast bara orkan og ég er eig­in­lega bara dof­inn núna. Það er ýmis­legt sem þarf að græja og gera fyrir ferð­ina og ég er mjög feg­inn því að verða lík­am­lega staddur á leiknum en ekki að horfa heima í stofu. Þegar ég horfði á fyrsta leik Íslands gegn Portúgal á EM 2016 leið mér hrein­lega illa og fannst eins og ég væri að ganga í gegnum ein­hver mjög alvar­leg per­sónu­leg mál.“

Hann seg­ist von­ast til þess að íslenskir áhorf­endur nái upp góðri stemn­ingu á Spartak-vell­inum og hann komi vissu­lega til með að taka þátt í vík­inga­klapp­inu fræga. „Ég læt mig bara ber­ast með stemn­ing­unni. Auðvitað er mögu­legt að ofgera vík­inga­klapp­inu ef það er tekið úr sínu rétta sam­hengi en á stórum leik­vangi þar sem Ísland er að keppa í stór­leik finnst mér það alveg geð­veikt,“ útskýrir Bergur Ebbi og spáir að lokum 2-1 sigri Íslands á Argent­ínu á morgun. „Þetta verður end­ur­tekn­ing á Eng­landsúr­slit­unum. Mér dettur ekki í hug að spá neinu öðru.“

Hvernig spilast leikurinn?

Argentína gæti misst hausinn

Anna Svava Knúts­dóttir.

„Þetta verður erf­iður leikur, enda Argent­ínu­menn ein mesta fót­bolta­þjóð ver­aldar og því við ramman reip að draga. En íslenska liðið hefur ítrekað sýnt það og sannað að það spilar jafnan best þegar mest er undir og getur því valdið hverjum sem er áhyggjum, hvort sem þeir heita Messi, Ronaldo eða Janus Guð­laugs­son,“ segir Anna Svava Knúts­dóttir og bætir við að mikið muni velta á því hvernig fyrstu 20 til 25 mín­útur leiks­ins spil­ast. „Ef við náum að halda aftur af Argent­ínu framan af fyrri hálf­leik er allt eins lík­legt að stjörnu­leik­menn­irnir þeirra stress­ist upp og gleymi und­ir­stöðu­at­riðum knatt­spyrn­unnar, eins og gerð­ist með Eng­lend­inga þegar við slógum þá út úr EM í Frakk­landi fyrir tveimur árum. Þegar þeir missa haus­inn verðum við að vera til­búin til að láta til skarar skríða. Pressan á Messi að vinna HM áður en hann leggur skóna á hill­una ætti með réttu að vinna með okkur og gegn Argent­ínu­mönnum. Að því sögðu þá væri jafn­tefli alls ekki slæm úrslit fyrir okkur, en mig grunar að Heimir komi til með að senda liðið út á völl­inn með það eitt að mark­miði að sigra.“

„Þetta verður erf­iður leikur, enda Argent­ínu­menn ein mesta fót­bolta­þjóð ver­aldar og því við ramman reip að draga.“

Anna Svava seg­ist spennt að sjá hvernig Heimir Hall­gríms­son stillir byrj­un­ar­lið­inu upp. „Hannes Þór Hall­dórs­son, vinur minn, er mik­il­væg­asti leik­maður liðs­ins að mínu mati og ég bið til guðs að hann hald­ist heill. Eins vona ég að Aron Einar byrji leik­inn, leið­toga­hæfi­leikar hans og geta til að stýra leik liðs­ins eru ómet­an­legir þættir. Fyr­ir­lið­inn verður þó að meta það sjálfur ásamt sjúkra­þjálf­urum hvort hugs­an­lega væri betra að sleppa þessum leik og vera frekar klár fyrir leik­inn gegn Nígeríu. Margir spá því að við komum til með að spila leikk­erfið 4-5-1, þá vænt­an­lega með Jón Daða Böðv­ars­son einan frammi, en eitt­hvað segir mér að við neglum í eitt strang­heið­ar­legt 4-4-2 og treystum á hina klass­ísku sam­vinnu litla og stóra frammi, Jóns Daða og Alfreðs Finn­boga­sonar markama­sk­ínu. Ísland er kannski ekki með leikn­ustu leik­menn í heimi, en við getum hæg­lega sýnt mestu grimmd­ina, bar­átt­una og vilj­ann og verið bestir í föstum leikatriðum,“ segir Anna Svava spennt.

Hún spáir því að Ísland sigri Argent­ínu með einu marki gegn engu. „Gylfi Sig­urðs­son skorar markið sem ræður úrslitum seint í síð­ari hálf­leik.“

Hvar á að horfa á leikinn?

Dreymir um HM-stofu á pallinum heima

Sóli Hólm.

„Ég er með mikil plön og stóra drauma um þennan dag, en ég veit ekki enn hvort það verður af þeim. Mig langar nefni­lega rosa­lega mikið til að byggja mína eigin HM-stofu á pall­inum heima, flytja 65 tommu sjón­varpið út í garð og tengja alvöru­sánd í það. Sándið er lyk­il­at­riði þar sem ég bý við Hring­braut og umferð­ar­nið­ur­inn getur verið mik­ill. Svo myndi ég fleygja ein­hverju lyst­ugu á grillið og allt yrði gjör­sam­lega geggjað. Þetta er draum­ur­inn, en kannski enda ég bara einn niðri í kjall­ara að horfa á leik­inn eins og gerð­ist fyrir tveimur árum þegar Ísland spil­aði við Aust­ur­ríki. Þá stóð ég einn öskr­andi fyrir framan sjón­varpið og það var ágætt. En ef allt fer að óskum og spáin verður þokka­leg verður það HM-stofa úti í garði og allir vel­komnir. Því fleiri, því betra,“ segir Sóli Hólm.

Áður en íslenska liðið hélt utan til Rúss­lands áttu liðs­menn nota­lega kvöld­stund ásamt fjöl­skyldu­með­limum sínum og Sóla, sem hélt rúm­lega klukku­stund­ar­langt uppi­stand fyrir mann­skap­inn. „Að sjálf­sögðu vil ég standa mig vel á öllum mínum „giggum“ en þetta var eitt af þeim sem ég vildi alls ekki klúðra, því þótt strák­arnir séu nán­ast allir yngri en ég lít ég samt upp til þeirra. Það gekk eftir og stemn­ingin var geggjuð. Mér sýnd­ust lands­liðs­strák­arnir vera mjög slakir og yfir­veg­aðir miðað við aðstæður og það besta var að ég heyrði af því að and­inn á æfing­unni dag­inn eftir uppi­standið hefði verið létt­ari en dag­inn áður og að menn hefðu jafn­vel verið að vitna í góðar línur frá mér. Það eitt og sér er næg umbun fyrir mig,“ segir Sóli sem var leystur út með for­láta treyju, árit­aðri af öllum í lands­lið­inu.

Sóli vill þó ekki skrifa undir þá upp­á­stungu blaða­manns að ef Ísland vinnur Argent­ínu sé það að miklum hluta honum sjálfum að þakka. „Nei, alls ekki, því það þýðir að það verður líka mér að kenna að við töpum. Ég ber enga ábyrgð á gengi liðs­ins, en ég trúi því að við getum unnið. Leik­ur­inn fer 1-0 fyrir okkur.“

Aðalmynd / KSÍ

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta