Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Saga hins fjarlæga draums um blæjubíl

Hvaðan kemur ástríða okkar fyrir blæju­bílum?

Saga hins fjarlæga draums um blæjubíl
|||
MG-TC-Midget (tvær myndir má nota aðra hvora) – MG TC Midget var breski blæju­bíll­inn sem heill­aði alla og varð kveikjan að blæju­bíla æði Banda­ríkja­manna.

Vind­ur­inn leikur um hárið, sólin kyssir kinn og upp­á­halds­tón­listin hljómar í útvarp­inu. Þetta er hinn ljúfi draumur bíl­stjóra blæju­bíls­ins. Raun­veru­leik­inn á Íslandi er því miður nær því að vera frost­bit, kalsár, renn­andi blautt áklæði og hlæj­andi veg­far­endur.
Þeir eru fáir blæju­bíl­arnir á Íslandi en vekja ávallt mikla athygli þá sjaldan er nógu vel viðrar til að fara í bíltúr.
Fyrstu bíl­arnir frá alda­mót­unum 1900 voru í raun allir blæju­bílar. Ekki í nútíma­skiln­ingi orðs­ins heldur vegna þess ein­fald­lega að þeir voru ekki með neitt þak. Í besta falli voru þeir með blæju sem hönnuð var eftir blæjum hest­vagna.
Á þriðja ára­tug síð­ustu aldar hafði Henry Ford gjör­breytt bíla­iðn­að­inum með færi­banda­verk­smiðjum sínum og bílar með stál­grind- og yfir­bygg­ingu voru skyndi­lega fáan­legir á við­ráð­an­legu verði fyrir almenn­ing.
Þar sem það rignir í meiri­hluta heims­ins, í allra­besta falli svona við og við, þá urðu þeir fljótt ofan á. Sér í lagi í ljósi þess að þeir voru tölu­vert örugg­ari.

„Það þarf ekki að fara lengra en á hitt­ing hjá Krúsera klúbbnum hér í Reykja­vík til að sjá sýn­is­horn af því besta frá tíma­bil­inu. Óhætt er að mæla með því að spóka sig um á góð­viðris fimmtu­dags-kvöldum í mið­bænum til að berja her­leg­heitin augum.“

Hraðinn í umferð­inni jókst stöðugt með betri bíl­vélum og þar af leið­andi urðu árekstrar harð­ari. Þess vegna varð ofan á að hafa bíla yfir­byggða og í raun var svo komið á fjórða ára­tugnum að einu bíl­arnir með blæjur voru, rétt eins og í dag, dýr­ari sport­bílar fyrir þá ríku.

Hámark í fágun og glæsileika

Það voru helst Bret­arnir sem héldu í hefð­ina, á meðan Amer­ík­an­arnir vildu hafa þak yfir höf­uðið. Þetta breytt­ist í síð­ari heims­styrj­öld­inni þegar amer­ískir her­menn á frí­vakt kynnt­ust smærri sport-blæju­bílum á enskum sveita­vegum.
MG Midget og Triumph Roadster voru þar í far­ar­broddi og má segja að út frá fag­ur­fræði­legum hönn­un­ar­sjón­ar­miðum hafi bíla­iðn­að­ur­inn þar náð hámarki í fágun og glæsi­leika.
Eft­ir­spurnin eftir slíkum bílum í iðn­stór­veld­inu Banda­ríkj­unum jókst er her­menn­irnir snéru sig­ur­reifir heim og í anda lög­mála um fram­boð og eft­ir­spurn fór mask­ínan á fullt að anna þess­ari eft­ir­spurn.

T-bird – fimmti og sjötti ára­tug­ur­inn voru gullöld blæju­bíls­ins.

Sjötti og sjö­undi ára­tug­ur­inn voru gullöld blæju­bíls­ins í Ameríku og raf­drifnar blæjur, jafn­vel úr harðri skel, raf­drifnar rúður, stereo-útvörp og amer­íski draum­ur­inn fylgdi hverju ein­taki. Það þarf ekki að fara lengra en á hitt­ing hjá Krúsera klúbbnum hér í Reykja­vík til að sjá sýn­is­horn af því besta frá tíma­bil­inu. Óhætt er að mæla með því að spóka sig um á fimmtu­dags­kvöldum þegar vel viðrar í mið­bænum til að berja her­leg­heitin augum.

Níundi ára­tug­ur­inn mark­aði ákveðna lægð í flokki blæju­bíla. Nær allir fram­leið­endur spreyttu sig á form­inu með mis­jöfnum árangri. Flestir bjuggu til blæj­u­út­gáfu af vin­sælum týpum, að því er virð­ist bara af gamni sínu, en fáar útgáfur voru búnar til sér­stak­lega með hli­sjón af bæju­inni.
Það er að tveimur bílum und­an­skildum. Annars vegar Jeep Wrangler, sem vissu­lega má deila um hvort sé í raun blæju­bíll en vin­sæll var hann svo sann­ar­lega, og svo ókrýndur kon­ungur flokks­ins, Mazda MX-5, hins­vegar.
Enn þann dag í dag skilur eng­inn, ekki einu sinni hönn­uð­urnir, af hverju MX-5 er svona frá­bær bíll. Hann hefur nær ekk­ert breyst. Kannski komið aux tengi og bakk­mynda­vél í stað kasettu­tækis, en hann er enn einn allra best heppn­aði bíll sög­unnar, bæði er kemur að per­sónu­leika og akst­urseig­in­leiku.

Á við aksturseiginleika skúringafötu

Á tíunda ára­tugnum reyndi BMW sem mest fyr­ir­tækið mátti að gera Z3 bíl sinn að ein­hverju sem almennt þótti töff, en mistókst ein­hverra hluta vegna (hér á landi má auð­vitað kenna veð­ur­far­inu um en frosin blæja og hrím­aðir gluggar eru ekki heill­andi eig­in­leikar).
Það sama á við um Audi TT. Ef til vill má um kenna að akstu­r­eig­in­leikar fyrstu útgáfu bíls­ins voru á við akstu­r­eig­in­leika skúr­inga­fötu. Enda sjást sára­fáir slíkir á göt­unum hér­lendis í dag, þrátt fyrir ágætis sölu til að byrja með. Skiptir þá engu stór­bætt önnur kyn­slóð bíls­ins, skað­inn var skeður.

MX-5 – Mazda MX-5 er einn allra besti blæju­bíll sem fram­leiddur hefur verið og vin­sældir hans hafa lítið dvalað. Hann er einn af sára­fáum blæju­bílum sem sjást reglu­lega hér á landi.

Það má því segja að við séum enn í lægð, alls­staðar ann­ars­staðar en í Los Angeles. Það eru nefni­lega bíó­mynd­irnar sem gefa okkur þess fal­legu mynd af blæju­bílnum. Þessi mynd er því miður flopp í mið­söl­unni hér­lendis og miðað við vorið í ár skal ekki búist við björgun hér­lendis. Ekki nema á Húsavík, þar er ef til vill orðið nógu hlýtt.

Blæju­bíll­inn heldur því áfram að vera fal­legur en um leið óraun­hæfur draumur í okkar norð­læga veru­leika.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta