Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ísland mætir Ofurörnunum í dag

Landslið Íslands mætir Nígeríu í viður­eign á HM Í Rúss­landi í dag. Nígería á eitt allra sig­ur­sælasta lið Afríku og því full ástæða til að van­meta það ekki.

Ísland mætir Ofurörnunum í dag
||
Landslið Nígeríu í fót­bolta er kallað Ofurern­irnir.

Nígería er risa­stórt land. Þjóð­ar­brotin eru ótelj­andi og tungu­málin sem töluð eru innan Nígeru skipta hund­ruðum. En eitt á öll þjóðin sam­eig­in­legt og það er ástin á lands­lið­inu sínu. Saga þess er glæsi­leg en með sanni má segja að Nígería sé eitt allra sig­ur­sælasta lið Afríku. Við ætlum okkur auð­vitað að binda enda á þessa sig­ur­göngu en víst er að við megum síst við að van­meta þessa miklu knatt­spyrnu­þjóð.

Takk, pabbi!
Það er allt í lagi að Níger­íu­menn skori, svo lengi sem við skorum fleiri en þeir. En ef þeir skora syngja stuðn­ings­menn­irnir „Ósje Baba“, sem þýðir „Takk fyrir, faðir“ á yourobísku, sem er eitt af mest töl­uðu tungu­mál­unum í Nígeríu. Við skulum bara vona að þeir hafi lítið að þakka fyrir í leiknum.

Vest­ur­a­frískur taktur
Stuðn­ings­menn Nígeríu þykja með þeim hress­ari en skraut­legir bún­ingar, fag­ur­grænar hár­kollur og  sól­gler­augu í yfir­stærð eru algeng sjón meðal þeirra.
Yfir­leitt fylgir þeim hljóm­sveit sem spilar svo­kall­aða Highlife-tón­list. Sú tón­list­ar­stefna á rætur sínar að rekja til Gana og er blanda af klass­ískum vest­ur­a­frískum takti og vest­rænni popptón­list.
Til að koma sér í stuð fyrir leik­inn má finna fullt af Highlife-tón­list á YouTube, svona áður en við syngjum end­ur­tekið Ég er kom­inn heim fullum hálsi.

Strák­arnir okkar á móti Ofurörn­unum
Áður en Nígería lýsti yfir sjálf­stæði og tók sér sinn græna og hvíta fána spil­aði lands­lið þeirra í rauðum bún­ingum. Þeir voru þá kall­aðir Rauðu djöfl­arnir. Í kjöl­far sjálf­stæðis urðu bún­ing­arnir grænir og síðan var við­ur­nefn­inu breytt í Grænu ern­irnir. Í kjöl­far mjög svo umdeilds ósig­urs þeirra í úrslitum Afr­íku­bik­ars­ins árið 1988 var nafn­inu breytt í Ofurern­ina.
Kvenna­lands­lið þeirra kallar sig Ofur­fálk­ana og eru ung­linga­lands­lið beggja kynja kölluð ýmist Fljúg­andi ern­irnir eða Gylltu arn­ar­ung­arnir.

Þre­faldir Afr­íku­meist­arar
Þrisvar hafa Níger­íu­menn hrósað sigri í Afr­íku­keppn­inni. Keppnin er haldin annað hvert ár og sigr­aði Nígería fyrst árið 1980 á heima­velli, svo árið 1994 í Túnis, og að lokum árið 2013 í Suður-Afríku.
Liðið komst hins vegar ekki á loka­mótið tvö síð­ustu skipti, árið 2015 og 2017.

Dottnir úr stuði?
Nígería hefur ein­ungis unnið einn leik af síð­ustu sjö og gert eitt jafn­tefli. Margir segja að gullöld þeirra sé liðin og ljóst er að í lið­inu er eng­inn leik­maður sem kall­ast getur stór­stjarna.
Það eru góðar fréttir fyrir okkur, en þrátt fyrir það er ljóst að leik­ur­inn verður gríð­ar­lega erf­iður.

Erki­fj­endur og nágrannar
Níger­íu­menn hafa marga hild­ina háð við lands­lið Kamerún og mikil sam­keppni hefur mynd­ast milli þess­ara granna. Hápunkt­inum var náð í úrslita­leik Afr­íku­keppn­innar árið 2000 en dóm­ar­inn dæmdi svo í víta­spyrnu­keppni að loknum venju­legum leik­tíma og fram­leng­ingu að víta­spyrna Viktors Ikpeba hefði ekki farið yfir lín­una og því töp­uðu þeir leiknum.

En erki­fj­endur Nígeríu á knatt­spyrnu­vell­inum eru samt sem áður Ganabúar sem einmitt gerðu jafn­tefli 2-2 við íslenska lands­liðið í loka und­ir­bún­ings­leik okkar fyrir HM.

2010 komst níger­íska lands­liðið ekki upp úr riðl­inum á HM. Forseti lands­ins, Goodluck Jonathan, fyr­ir­skip­aði að í refs­inga­skyni skyldi liðið sæta tveggja ára keppn­is­banni.

Frumraunin á HM ‘94
Nígería komst í fyrsta sinn á loka­mót HM árið 1994. Liðið var firna­sterkt og mik­ill og góður lið­sandi þótti ein­kenna spila­mennsku þess. Þeir sigr­uðu riðil­inn sinn og voru svo tveimur mín­útum frá því að sigra Ítalíu í 16 liða úrslitum. Roberto Baggio nokkur marði drauma þeirra með marki á lokamín­út­unni svo Nígería sat eftir en Ítalía hélt áfram keppni þar til þeir töp­uðu fyrir Brasilíu í frægri víta­spyrnu­keppni í útslita­leiknum.
Þar réð spyrna téðs Roberto Baggio úrslitum í leið­in­leg­asta úrslita­leik síð­ari tíma en hann skaut him­in­hátt yfir af punkt­inum.

Pólitísk afskipti
Ofurern­irnir komust aftur á HM 1998, 2002, 2010 og 2014. Þeir hafa lengst kom­ist í 16 liða úrslit.
2010 komust þeir hins vegar ekki upp úr riðl­inum og hlutu ein­ungis eitt stig. Forseti lands­ins, Goodluck Jonathan, fyr­ir­skip­aði svo að í refs­inga­skyni skyldi liðið sæta tveggja ára keppn­is­banni. Stór­und­ar­leg ákvörðun í alla staði og FIFA hót­aði öllu illu enda lítt hrifið af póli­tískum afskiptum.
Í kjöl­farið fór af stað mik­ill farsi þar sem þingið aflétti banni for­set­ans, en FIFA fannst það ekki nóg og setti liðið í ótíma­bundið bann um haustið. Bannið ent­ist í heila fjóra daga en var þá aflétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta