Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Svona líta fangelsi út víðs vegar um heiminn

Svona líta fangelsi út víðs vegar um heiminn
|||||||||||||||||||

Talið er að rúmar tíu millj­ónir manna sitji fyrir aftan lás og slá í fang­elsum um allan heim. Fang­elsin eru auð­vitað jafn mis­jöfn og þau eru mörg, en vef­síðan Bored Panda hefur tekið saman svip­myndir af fang­elsum víðs vegar um heim­inn.

Hér fyrir neðan er hægt að fræð­ast um nokkur þeirra, en grein Bored Panda í heild sinni má lesa hér.

Kvennafangelsið El Buen Pastor, Bógóta, Kólumbía

Klefar El Buen Pastor voru hann­aðir til að rýma tvo fanga hverju sinni en hýsa nú tíu til tutt­ugu konur að stað­aldri. Mikil spill­ing og ofbeldi er innan veggja fang­els­is­ins en for­svars­menn þess reyna árlega að gera stað­inn mann­úð­legri með því að halda feg­urð­ar­sam­keppni og skrúð­göngu.

Bois D’arcy-fangelsið, Yvelines, Frakklandi

Í þessu fang­elsi eru glæpa­menn sem þurfa að afplána allt að eins árs fang­els­is­vist.

Rikers Island-fangelsið, New York, Bandaríkin

Þetta fang­elsið var kosið eitt af þeim tíu verstu í Banda­ríkj­unum af tíma­rit­inu Mother Jones. For­svars­menn fang­els­is­ins hafa oft verið gagn­rýndir fyrir með­ferð á föngum og bloss­aði upp mikil reiði árið 2015 þegar tán­ing­ur­inn Kalief Browder svifti sig lífi. Kalief hafði eytt þremur árum í fang­els­inu að bíða eftir rétt­ar­höldum vegna þess að hann var ákærður fyrir að stela bak­poka. Á þessu ári er tala fanga innan veggja Rikers Island undir níu þús­und í fyrsta sinn í 25 ár og það stendur til að loka fang­els­inu í nán­ustu fram­tíð.

Evin-fangelsið, Tehran, Íran

Evin-fang­elsið er þekkt fyrir að vera pynt­ing­ar­mið­stöð þar sem fjöl­margir fangar hafa látið lífið, þó írönsk stjórn­völd hafa aldrei viljað við­ur­kenna það. Alltof margir fangar eru í fang­els­inu, hrein­læti er ábóta­vant og engin loft­kæl­ing er til staðar, en á sumrin getur hit­inn farið upp í 45°C. Maturinn er ekk­ert til að hrópa húrra fyrir og fá fangar hann af skornum skammti. Til að bæta gráu ofan á svart mega fangar ekki hafa neitt sam­band við umheim­inn og eru fjöl­skyldu­heim­sóknir og sím­töl bönnuð.

Maula-fangelsið, Lilongwe, Malaví

Tæplega tvö hund­ruð manns var troðið inn í klefa fyrir sexíu mann­eskjur árið 2015 sem lýsir best ástand­inu í fang­els­inu. Eitt sal­erni er fyrir hverja 120 fanga og einn vatns­krani fyrir hverja 900 fanga. Þá fá fangar aðeins að borða einu sinni á dag. Hins vegar er lagt mikil áhersla á íþróttir og er karl­mönnum heim­ilt að spila knatt­spyrnu en kven­mönnum körfu­bolta.

Champ-Dollon-fangelsið, Genf, Sviss

Þetta fang­elsi var opnað árið 1977 og þjónar þeim til­gangi að hýsa fanga á meðan þeir bíða örlaga sinna. Fjöldi fanga fer sívax­andi sem hefur í för með sér ýmis vanda­mál. Árið 2010 voru fangar af 115 mis­mun­andi þjóð­ernum í fang­els­inu og aðeins 7,2 pró­sent fang­anna voru Sviss­lend­ingar.

Borgaralega fangelsið á Haítí, Archaie, Haítí

Fang­elsið er í strand­arbæ en þekkt fyrir mann­mergð­ina. 174 fangar sluppu úr fang­els­inu árið 2016 eftir upp­þot þar sem einn fanga­vörður lést og margir slös­uð­ust.

Landsberg-fangelsið, Landsberg Am Lech, Þýskaland

Þetta er fang­elsið þar sem Adolf Hitler skrif­aði Mein Kampf og þar sem 278 nas­istar voru teknir af lífi fyrir stríðs­glæpi. Í dag eru aðstæður mun betri í fang­els­inu og er menntun í hávegum höfð. Þannig býður fang­elsið upp á 36 náms­á­fanga, svo sem í bakstri, list, smíði og múri.

Quezon City-fangelsið, Quezon City, Filippseyjar

Þetta fang­elsi er stað­sett í Manila, höf­uð­borg Fil­ipps­eyja, og dag­lega er háð bar­átta um pláss, vatn og mat. Um 160 til 200 föngum er troðið inn í klefa sem hann­aðir eru fyrir tutt­ugu fanga. Að auki skipt­ast menn­irnir á að sofa á hörðu steypu­gólfi undir berum himni, í tröppum, undir rúmum og í hengi­rúmum sem búin eru til úr gömlum teppum.

Las Colinas-fangelsið, Santee, Kalifornía, Bandaríkin

Þetta er fyrsta fang­elsi sinnar teg­undar í Banda­ríkj­unum þar sem umhverfis- og atferl­is­sál­fræði er notuð til að bæta hegðun fanga og starfs­manna.

Aranjuez-fangelsið, Aranjuez, Spánn

Í Aranjuez-fang­els­inu fá for­eldrar og börn að dvelja með fjöl­skyldu­með­lim­inum sem er á bak við lás og slá. Allt umhverfið er hannað til að börn upp­götvi ekki að for­eldri þeirra sé fangi.

Bastøy-fangelsið, Horten, Noregur

Fang­elsið er stærsta fang­elsið í Noregi með litla örygg­is­gæslu. Fang­els­inu er skipt í átta­tíu bygg­ingar, strand­ar­svæði, fót­bolta­völl og skóg svo fátt eitt sé nefnt. Þá er einnig verslun, bóka­búð, kirkja, skóli og viti á svæð­inu. Sumir fang­anna eru nauð­garar og morð­ingjar og hefur fang­elsið verið gagn­rýnt fyrir að vera of kósí. Þrátt fyrir frá­bærar aðstæður brjóta fangar sem losna úr fang­els­inu síður af sér en fangar úr öðrum fang­elsum í Evrópu.

Luzira-fangelsið, Kampala, Úganda

Hér fá fangar mikla ábyrgð og þurfa að rækta sinn eig­inn mat og mat­reiða fyrir hina fang­ana. Hvatt er til þess að fangar mennti sig og er lítið um árekstra á milli fanga.

Kvennafangelsið í San Diego, Cartagena, Kólumbía

Fang­arnir fá smjör­þef af frels­inu á hverju kvöldi þegar kon­urnar breyt­ast í kokka, geng­il­beinur og upp­vask­ara á veit­inga­staðnum Interno sem opinn er í fang­els­inu. Konur í fang­els­inu eru á bak við lás og slá fyrir glæpi á borð við þjófnað, eit­ur­lyfja­smygl og fjár­kúgun.

Norgerhaven-fangelsið, Veenhuizen, Holland

Fangar fá rúm, hús­gögn, ísskáp og sjón­varp í klef­unum sínum, sem og einka­bað­her­bergi. Glæpa­tíðni í Hollandi er svo lág að ekki tókst að fylla fang­elsið fyrir nokkrum árum. Því gerðu Hol­lend­ingar samn­ing við Noreg um að vista fanga í Nor­ger­haven-fang­els­inu árið 2015 og sá samn­ingur stendur enn.

Black Dolphin-fangelsið, Sol-Iletsk, Rússland

Þetta fang­elsi er heims­frægt og búa fangar í raun í klefa innan klefa og eru undir eft­ir­liti allan sól­ar­hring­inn. Hér búa margir af alræmd­ustu glæpa­mönnum Rúss­lands, þar á meðal raðmorð­ingjar, mannætur og hryðju­verka­menn. National Geographic gerði heim­ild­ar­mynd um fang­elsið fyrir nokkru síðan. Í henni sagði fanga­vörður að eina leiðin til að sleppa úr fang­els­inu væri að deyja. Ef reiknuð eru saman öll morð sem fang­arnir hafa framið hafa þeir drepið um 3500 manns. Það er að með­al­tali fimm morð per fanga.

Onomichi-fangelsið, Onomichi, Japan

Þetta er fang­elsi fyrir eldri borg­ara, en aldr­aði fangar verða sífellt fleiri í Japan.

HMP Addiewell-fangelsið, Lothian, Skotland

Mikil áhersla er lögð á það í þessu fang­elsi að fangar læri af brotum sínum og hvað varð til þess að þeir end­uðu í fang­elsi. Þetta gera fang­arnir í gegnum ýmis­legt, svo sem menntun og vinnu. Þá er mikil áhersla lögð á að fangar haldi góðum tengslum við fjöl­skyldu sína og styrki þau bönd innan veggja fang­els­is­ins.

Penal De Ciudad Barrios-fangelsið, Ciudad Barrios, San Miguel, El Salvador

Fanga­klef­arnir eru agn­arsmáir en hýsa vana­lega meira en þrjá­tíu fanga. Klef­arnir voru upp­haf­lega hann­aðir fyrir fólk í gæslu­varð­haldi í þrjá sól­ar­hringa en margir fangar eyða meira en ári í þeim. Fangar eyða dög­unum í að rífa fötin sín í tætlur til að búa til hengi­rúm. Þeir sofa síðan með því að stafla sér hver ofan á annan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta