Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Féll í yfirlið á miðri æfingu: „Þetta var vítahringur“

Féll í yfirlið á miðri æfingu: „Þetta var vítahringur“

Heilsu­m­ark­þjálfinn Brittany Loeser segir sögu sína á vef­síðu tíma­rits­ins Women’s Health. Brittany var upp­renn­andi knapi á yngri árum og seg­ist lítið hafa hreyft sig annað. Þá seg­ist hún hafa borðað nákvæm­lega það sem henni datt í hug og í mið­skóla byrj­aði hún að finna fyrir því að hún gæti kannski ekki borðað hvað sem er og samt ekki bætt á sig.

„Ég kom aftur heim úr fríi þar sem ég borð­aði þyngd mína í mat og mér leið illa. Ég var ekki með neitt sjálfs­traust og mér leið eins og fötin væru að springa utan af mér. Ég var þreytt og sljó. Ég hataði það,“ segir Brittany. Hún bætir við að á þessum tíma­punkti hafi hún ákveðið að breyta um lífs­stíl, en þá hélt hún að heil­brigður lífs­stíll fælist í því að borða „eins og kan­ína og gera fullt af brennslu­æf­ingum.“ Það fór ekki eins og hún bjóst við.

„Eftir nokkrar vikur var ég vissu­lega búin að létt­ast. En í stað­inn fyrir að líða eins og ég væri sterk og sjálfsör­ugg var ég veiklu­leg. Og mér leið illa. Enda­lausar brennslu­æf­ingar og tak­mörkun á kalor­íum var ekki lífs­stíll sem ég gæti haldið til streitu og það var að éta upp sjálfs­ör­yggið mitt og ham­ingju,“ segir Brittany.

Ofát einu sinni í viku

Stuttu síðar kynnti vinur hennar hana fyrir lyft­ingum. Hún féll fyrir því og fannst eins og þetta væri nákvæm­lega það sem hún hafði leitað að. Ekki skemmdi fyrir að hún sá breyt­ingar á lík­ama sínum ári eftir að hún byrj­aði að lyfta.

„Ég var sterk­ari en líka stælt­ari. En á þessum tíma borð­aði ég aðeins um 1400 kalor­íur á dag því ég hélt að ég þyrfti að halda aftur af mér til að fá drauma­lík­amann. Af því að ég borð­aði svona fáar kalor­íur þá ofát ég einu sinni í viku. Þetta var víta­hringur,“ segir hún. Í fram­hald­inu ákvað Brittany að taka þátt í bik­iník­eppni og tók und­ir­bún­ing­inn alla leið.

„Það varð brátt óheil­brigt,“ segir heilsu­m­ark­þjálfinn og rifjar upp örlaga­ríkt atvik í rækt­inni.

„Síðan var ég að klára æfingu einn dag­inn á stiga­vél­inni og það leið yfir mig. For­eldrar mínir höfðu séð hvaða toll und­ir­búnign­ur­inn var að taka og eftir þetta atvik kröfð­ust þau þess að ég færi til læknis.“

Neyddi sig til að æfa

Þá kom í ljós blóð­sykur Brittany var mjög lágur af því að hún hafði farið illa með sig. Hún ákvað samt sem áður að halda áfram und­ir­bún­ingi fyrir bik­iník­eppn­ina.

„Auðvitað urðu for­eldrar mínir áhyggju­fullir um heilsu­far mitt. Þau vildu að ég hætti í und­ir­bún­ingnum. En ég hélt að svona bakslag væri bara hluti af ferl­inu og þjálf­ar­inn minn bað mig ekki um að hætta að æfa. For­eldrar mínir treystu mér þannig að ég ákvað að halda áfram. En í raun og veru var þetta bara topp­ur­inn á ísjak­anum þegar kom að merkjum um að æfing­ar­rútínan mín væri að skapa vanda­mál í lífi mínu. Ég var blind fyrir því hve mik­inn toll mat­ar­tak­mark­anir og ofát var að taka á lík­ama minn. Og þegar kom að bik­iník­eppn­inni naut ég hennar ekki einu sinni,“ segir Brittany. Í kjöl­far keppn­innar hrundi hún lík­am­lega og and­lega.

„Ég gat ekki við­haldið þessar ímynd um að ég væri full­komin og við stjórn­völin.

Ég var bara átján ára en mér leið hörmu­lega. Ég neyddi mig til að æfa þegar mig lang­aði ekki til þess og naut ekki matar sem mig lang­aði í því ég var of hrædd við að þyngj­ast. Ég var með brenglaða sjálfs­mynd eftir keppn­ina. Ég var afar nett og grönn en mér leið eins og ég væri feit því ég var ekki með keppn­is­lík­ama. Ég var orðin svo vön að taka til mat­inn minn og borða allt á disknum að ég hafði ekki hug­mynd um hvað eðli­leg skammta­stærð var eða hvernig ég ætti að finna fyrir því að ég væri svöng. Ég ældi oft af því að ég borð­aði of mikið.“

Vigtin hætti að stjórna

Brittany ákvað þá að snúa blað­inu við og ein­beita sér frekar að því hvernig lík­ama hennar leið. Hún slak­aði á í matar­æð­inu og rækt­inni og ein­beitti sér að því að borða eðli­lega og leyfa sér sætar syndir í hófi. Hún segir það hafa verið erfitt að breyta hugs­un­ar­hætt­inum en eftir nokkurn tím­ann sá hún að meiri nær­ing hafði ýmis­legt jákvætt í för með sér.

„Ég gat ögrað mér meira og orðið sterk­ari,“ segir hún og heldur áfram. „Æfingar urðu skemmti­legar aftur. Ég varð ekk­ert stressuð þó ég kæm­ist ekki í rækt­ina fimm sinnum í viku. Ég var ekki eins stælt en ég var loks­ins ham­ingju­söm. Og það sem mestu máli skiptir er að vigtin hætti að stjórna mér. Ég þyngd­ist um rúm níu kíló og mér hefur aldrei liðið betur.“

80/20 reglan

Nú eru liðin rúm þrjú ár síðan Brittany ákvað að breyta um lífs­stíl. Nú fer hún í rækt­ina fjórum sinnum í viku en elskar líka að hreyfa sig í nátt­úr­unni. Hún borðar rúm­lega 2000 kalor­íur í dag og fylgir 80/20 regl­unni svoköll­uðu – 80% af matar­æð­inu er hollt og nær­ing­ar­ríkt og 20% er allt hitt sem freistar. Í dag er Brittany einka­þjálf­ari og hjálpar öðrum í leit að ham­ingju og betri lífs­stíl. En hvað lærði hún af þess­ari veg­ferð sinni?

„Ef þú elskar þig ekki núna þá áttu ekki eftir að elska þig þegar þú létt­ist um fimm kíló.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife