Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skuggi fellur á stjörnu Ronaldos

Skuggi fellur á stjörnu Ronaldos
Frá nótt­inni örlaga­ríku í Las Vegas.

Þýska blaðið Der Spiegel birti á dög­unum við­tal við banda­ríska konu að nafni Kathryn Mayorga sem lýsti í smá­at­riðum hvernig portú­galska knatt­spyrnu­stjarnan mun hafa nauðgað henni á hót­el­her­bergi í Las Vegas sum­arið 2009. Sama blað greindi frá því í fyrra að Ronaldo hafi borgað Mayorga, sem þá var ekki nefnd á nafn, 375 þús­und doll­ara fyrir að þegja um málið. Sú upp­hæð jafn­gilti viku­launum Ronaldos á meðan hann spil­aði með Real Madrid.

Inn­blásin af MeToo-bylt­ing­unni og nýjum lög­fræð­ingi ákvað Mayorga að stíga fram með sögu sína í þeirri von að aðrar konur sem kunna að hafa verið áreittar af knatt­spyrnu­stjörn­unni stígi fram. Lög­reglu­yf­ir­völd í Las Vegas hafa ákveðið að opna rann­sókn máls­ins á ný eftir að Mayorga höfð­aði einka­mál á hendur Ronaldo. Sjálfur hefur Ronaldo og lög­fræði­teymi hans harð­neitað ásök­un­unum og hótað Der Spiegel mál­sókn en þýska blaðið stendur við allt sem þar stendur.

Alla jafna „góður gæi“

Umrætt atvik á að hafa átt sér stað í júní 2009. Mayorga hitti Ronaldo á næt­ur­klúbbi í Las Vegas og bauð hann henni og vin­konu hennar í sam­kvæmi á hót­el­her­bergi hans á Palms Casino-lúx­us­hót­el­inu. Segir Mayorga að fyrst hafi Ronaldo leitað á hana á bað­her­berg­inu og síðan hafi hann þröngvað henni inn í svefn­her­bergi þar sem hann nauðg­aði henni í enda­þarm. Eftir á mun Ronaldo hafa sagt að hann væri alla jafna „góður gæi“ nema í eitt pró­sent til­vika.

Greitt fyrir þögnina

Mayorga leit­aði á náðir lög­reglu en var ekki til­búin að leggja fram kæru gegn einni skær­ustu íþrótta­stjörnu heims. Nokkrum mán­uðum síðar var gengið frá 375 þús­und króna greiðslu þar sem Mayorga féllst á að tala aldrei opin­ber­lega um málið. Der Spiegel komst á snoðir um sam­komu­lagið og greindi frá því í fyrra en málið logn­að­ist út af og virt­ist það engin áhrif hafa á hann, enda skrif­aði Ronaldo undir samn­ing við Juventus í sumar sem tryggir honum 30 millj­ónir evra á ári.

Ronaldo bregst reiður við

Ronaldo brást ókvæða við við­tal­inu við Mayorga í mynd­bandi sem hann birti á Instagram-síðu sinni þar sem hann á 147 millj­ónir fylgj­enda. Hann sagði Mayorga not­færa sér nafn hans til að öðl­ast frægð og sak­aði Der Spiegel um að flytja „fals­fréttir“. Christoph Winterbach, íþrótta­rit­stjóri Der Spiegel, svar­aði Ronaldo fullum hálsi og sagði frétta­flutn­ing­inn stand­ast allar kröfur um vand­aða blaða­mennsku. Blaðið hefði undir höndum hund­ruð gagna sem styðja við frétta­flutn­ing­inn og birti hann hluta þeirra á Twitter-síðu sinni. Ronaldo und­ir­rit­aði hluta þess­ara gagna.

Engin lausn í augsýn

Óvíst er hvaða stefnu málið tekur. For­ráða­menn Juventus hafa ekk­ert tjáð sig um málið og ólík­legt að þeir muni gera nokkuð til að skaða sína verð­mæt­ustu eign. Stærstu fjöl­miðlar heims hafa heldur ekki fjallað um málið að nokkru ráði. Ronaldo er með her snjallra lög­manna að baki sér og búast má við því að mál­sóknin á hendur honum taki langan tíma. Á meðan mun Ronaldo halda áfram að láta ljós sitt skína á knatt­spyrnu­vell­inum fyrir him­in­háar fjár­hæðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife