Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ganga flóttafólks verður að pólitísku hitamáli

Á bil­inu fimm til sjö þús­und flótta­menn frá Mið-Amer­íku­ríkj­unum Gvatemala, Hondúras og El Salvador stefna í átt að suð­ur­hluta landamæra Banda­ríkj­anna þar sem þeir freista þess að hefja nýtt og betra líf. Fólkið sem ferð­ast ýmist fót­gang­andi eða í rútum er að flýja fátækt og ofbeldi í heima­land­inu en flestir flótta­mann­anna koma frá Hondúras þar sem morð­tíðni er sú hæsta í heimi.

Ganga flóttafólks verður að pólitísku hitamáli
|

Hóp­göngur sem þessar eru tíðar en þetta er sú fjöl­menn­asta til þessa og sú sem vakið hefur lang­mesta athygli fjöl­miðla vest­an­hafs. Þar spilar tíma­setn­ingin lyk­il­hlut­verk því innan við tvær vikur eru til þing­kosn­inga í Banda­ríkj­unum og ferða­lag flótta­fólks­ins er orðið eitt helsta hita­málið í kosn­inga­bar­átt­unni. Þar hefur for­set­inn Donald Trump farið fremstur í flokki. Hann hefur hótað því að koma hernum fyrir á landa­mær­unum við Mexíkó sem og að skera á efna­hags­að­stoð við Mið-Amer­íku­ríkin þrjú.

sdfklsda

Leggja á sig 4.000 kíló­metra ferða­lag
Göng­urnar nefn­ast á ensku „caravan“ og eiga upp­runa sinn í því að gras­rót­ar­sam­tök hvöttu flótta­menn sem leita til Banda­ríkj­anna til að ferð­ast í hópum enda leiðin löng og hættur á hverju strái. 160 flótta­menn lögðu af stað frá San Pedro Sula, næst­stærstu borg Hondúras, þann 13. októ­ber en fljót­lega bætt­ist í hóp­inn sem taldi 5000 manns þegar komið var að Tecún Umán í Gvatemala, stór hluti þeirra konur og börn. Þaðan freist­uðu flótta­menn­irnir þess að kom­ast yfir landa­mærin til Mexíkó og kom til átaka á landa­mær­unum en stjórn­völd í Mexíkó gátu þó ekki komið í veg fyrir að þús­undir manna kæmust yfir landa­mærin þar sem þau söfn­uð­ust saman í borg­inni Tapachula. Þaðan var haldið norður á bóg­inn á mánu­dag­inn.

Beita ríki Mið-Ameríku þving­unum
Banda­ríkja­stjórn hefur gert hvað hún getur til að hefta för fólks­ins. Þeim skila­boðum var komið áleiðis að ef rík­is­stjórnir land­anna þriggja stöðv­uðu ekki fólkið yrði því svarað af hörku. Þegar hóp­ur­inn var kom­inn til Mexíkó lýsti Trump því yfir að efna­hags­að­stoð til land­anna þriggja yrði skorin niður en Banda­ríkin veittu sam­tals yfir hálfum millj­arði króna í efna­hags­að­stoð til þeirra í fyrra. Þá hafa Banda­ríkin beitt Mexíkó miklum þrýst­ingi vegna máls­ins en til­raunir til að stemma stigu við straumnum hafa litlu skilað.

Vatn á myllu Trumps?
Donald Trump hefur notað málið til að kveikja í stuðn­ings­mönnum sínum fyrir þing­kosn­ing­arnar þann 6. nóv­em­ber. Hann segir fólkið ógn við þjóðar­ör­yggi og hefur sagst ætla að senda her­inn að landa­mær­unum að Mexíkó þótt hann þurfi til þess stuðn­ing þings­ins. Sömu­leiðis segir hann þetta sýna mik­il­vægi þess að repúblík­anar verði áfram við stjórn í báðum deildum þings­ins og fjöl­margir fram­bjóð­endur Repúblíkana­flokks­ins hafa tekið undir þennan mál­flutn­ing Trumps.

Hverf­andi líkur á hæli
Óvíst er hversu margir muni ná að banda­rísku landa­mær­unum en ljóst er að fæstir munu fá draum sinn upp­fylltan. Í síð­ustu göngu af þessu tagi sem farin var í mars héldu 700 flótta­menn af stað frá Hondúras og taldi gangan 1.200 manns þegar mest var en ekki nema um 228 komust svo langt að sækja um hæli. Ellefu voru hand­teknir fyrir að reyna að kom­ast ólög­lega yfir landa­mærin. Lögum sam­kvæmt ber banda­rískum stjórn­völdum að veita fólk­inu máls­með­ferð en töl­fræðin sýnir að í lang­flestum til­vikum er umsókn þess hafnað.

Fleyg ummæli
„Gvatemala, Hondúras og El Salvador gátu ekki komið í veg fyrir að fólk yfir­gæfi landið þeirra og kæmi ólög­lega inn í Banda­ríkin. Við munum nú byrja að stöðva, eða skera veru­lega niður, þá miklu efna­hags­að­stoð sem við höfum veitt þeim.“
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta