Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Allt undir í mikilvægustu þingkosningum síðari ára

Allt undir í mikilvægustu þingkosningum síðari ára
Mynd/Pixabay

Kosið verður til Banda­ríkja­þings á þriðju­dag­inn. Nið­ur­stöð­urnar munu ráða miklu um hvernig Donald Trump reiðir af á síð­ari hluta kjör­tíma­bils­ins og hafa mikil áhrif á for­seta­kosn­ing­arnar 2020. Kosið er um öll þing­sætin 435 í full­trúa­deild þings­ins, 35 sæti í öld­unga­deild­inni og 36 af 50 rík­is­stjórum. Trump hefur notið þess að Repúblíkana­flokk­ur­inn hefur haft meiri­hluta í báðum deildum þings­ins fyrstu tvö ár sín í emb­ætti en demókratar gætu gert honum lífið leitt nái þeir meiri­hluta í annarri eða báðum deildum, rétt eins og repúblík­önum tókst að gera síð­ustu sex árin í for­seta­tíð Baracks Obama. Banda­rísk stjórn­mál eru gríð­ar­lega eld­fim um þessar mundir og sjaldan eða aldrei hefur gjáin á milli íhalds­samra og frjáls­lyndra verið breið­ari. Til marks um hversu mikið er undir þá munu fram­boðin, hvort um sig, hafa eytt vel yfir 5 millj­örðum doll­ara í kosn­inga­bar­áttu sína þegar kjör­dagur rennur upp. Aldrei áður hefur jafn­miklu fé verið varið í mið­kjör­tíma­bils­kosn­ingum. Einnig er búist við sögu­legri kosn­inga­þátt­töku, einkum á meðal ungs fólks en sam­kvæmt könnun Harvard Institute of Politics munu 49% fólks á aldr­inum 18-29 ára mæta á kjör­stað. Í þing­kosn­ing­unum 2014 var hlut­fallið 19,9%.

Baráttan um fulltrúadeildina

Keppt er um öll 435 sætin í full­trúa­deild­inni en 218 þing­sæti þarf til að ná meiri­hluta. Til þess þurfa demókratar að hirða 23 þing­sæti af Repúblíkana­flokknum og nýj­ustu kann­anir benda til þess að 85% líkur eru á að svo fari. Repúblík­anar hafa þó verið að sækja í sig veðrið und­an­farnar vikur. Helsti víg­völl­ur­inn eru úthverfin þar sem íbúar eru almennt betur stæðir og með meiri menntun en ann­ars staðar. Þá munu atkvæði kvenna hafa lyk­ilá­hrif en sam­kvæmt könn­unum aðhyll­ast þær Demókra­ta­flokk­inn í mun meiri mæli en karlar. Þannig sýna sömu kann­anir að demókratar fengju 275 þing­sæti ef ein­göngu konur væru á kjör­skrá.

Baráttan um öldungadeildina

Það er á bratt­ann að sækja fyrir demókrata í öld­unga­deild­inni þótt repúblík­anar séu nú aðeins með 51-49 meiri­hluta. Það er vegna þess að ein­ungis er kosið um 35 þing­sæti í þess­ari umferð og af þeim eru 26 í höndum demókrata. Mörg þess­ara þing­sæta eru í dreifð­ari byggðum Banda­ríkj­anna sem er klár­lega repúblík­önum í hag. Nýjustu kann­anir benda til þess að 82,7% líkur séu á því að repúblík­anar haldi meiri­hluta sínum í öld­unga­deild­inni og bæti jafn­vel við sig sætum.

Stefnir í klofið þing

Ef að líkum lætur munu demókratar stjórna full­trúa­deild­inni og repúblík­anar öld­unga­deild­inni. Slíkt er í sjálfu sér ekki óeðli­legt og í raun­inni reglan fremur en und­an­tekn­ingin. Meiri­hluti í annarri hvorri deild­inni tryggir demókrötum vald til að hindra laga­frum­vörp úr röðum repúblík­ana sem og frum­kvæðið til að hrinda af stað rann­sóknum á hvers kyns málum. Nið­ur­staðan yrði ann­að­hvort aukin sam­vinna milli flokka eða enn harð­ari deilur en áður þar sem ein­göngu allra mik­il­væg­ustu mál ná í gegn. Með meiri­hluta í öld­unga­deild­inni munu repúblík­anar eftir sem áður geta tryggt til­nefn­ingum Trumps í hin ýmsu emb­ætti fram­gang. Þá má búast við að Trump not­ist í auknum mæli við for­seta­til­skip­anir, rétt eins og Barack Obama gerði eftir að repúblík­anar náðu meiri­hluta í báðum deildum.

Innflytjendur og hatursorðræða stóru málin

Að venju koma upp stór mál í aðdrag­anda kosn­inga sem talin eru hafa mikið um það að segja um nið­ur­stöð­una. Donald Trump hefur gert fólks­flutn­inga­lest­ina frá Mið-Ameríku að sínu helsta kosn­inga­máli og spilað á ótta fólks með þeirri orð­ræðu að demókratar vilji opin landa­mæri á meðan repúblík­anar standi vörð um öryggi almenn­ings. Þá hefur hann viðrað hug­myndir um að skrifa undir for­seta­til­skipun um að fella úr gildi lög sem veita börnum ólög­legra inn­flytj­enda sjálf­krafa rík­is­borg­ara­rétt. Að sama skapi hafa demókratar kennt for­set­anum um að kynda undir hat­urs­glæpum og hat­urs­fullri orð­ræðu í garð fjöl­miðla og minni­hluta­hópa, sam­an­ber sprengju­send­ingar til aðila tengdum Demókra­ta­flokknum og skotárás á bæna­hús gyð­inga í Penn­syl­vaníu um liðna helgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta