Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vanstillt umvöndun sendiherra ekki úr heiðskíru lofti

Vanstillt umvöndun sendiherra ekki úr heiðskíru lofti
pól­land

Sendi­herra Póllands á Íslandi sendi á dög­unum rit­stjórn Stund­ar­innar harð­orða athuga­semd og kröfu um afsök­un­ar­beiðni vegna fréttar sem birt­ist á vef mið­ils­ins. Fréttin, sem byggði á umfjöllun stærstu fjöl­miðla heims, fjall­aði um fjölda­göngu í Póllandi þar sem leið­togar lands­ins gengu saman með hópum sem hafa kennt sig við fas­isma. Athuga­semd sendi­herr­ans rataði einnig á skrif­stofur for­seta Íslands og for­sæt­is­ráð­herra.

Það að sendi­herra erlends ríkis skuli kvarta við æðstu ráða­menn lands­ins vegna þess sem birt­ist í frjálsum fjöl­miðlum er for­dæma­laust. Síst af öllu sendi­herra ríkis sem kennir sig við lýð­ræði og er aðili að Evr­ópu­sam­band­inu, enda sú hug­mynd að íslenskir ráða­menn skipti sér af efn­is­tökum fjöl­miðla fjar­stæðu­kennd. En fyrir þá sem fylgst hafa með þróun mála í Póllandi þarf þessi umvöndun sendi­herr­ans ekki að koma eins og þruma úr heið­skíru lofti. Undir stjórn Laga- og rétt­læt­is­flokks­ins hefur mark­visst verið grafið undan lýð­ræð­is­legum stofn­unum í land­inu, einkum og sér í lagi dóm­stólum og fjöl­miðlum. Á sama tíma hefur daður við hvers konar nýfasísk öfl færst í auk­ana. Ekki er langt síðan Pólland var skóla­bók­ar­dæmi um vel heppn­aða aðlögun fyrrum aust­an­tjalds­ríkja að vest­rænum lýð­ræð­is­stofn­unum en fram­ferði pól­skra ráða­manna á und­an­förnum árum hefur reynt mjög  á kollega þeirra vestar í álf­unni.

Popúlískir þjóðernissinnar ná völdum

Lög og rétt­læti (PiS) hefur ráðið lögum og lofum í pólskum stjórn­málum frá 2015 þegar flokk­ur­inn vann hreinan meiri­hluta á þingi. For­set­inn, Andrzej Duda, kemur einnig úr röðum flokks­ins. Þessi þjóð­ern­is­sinn­aði og popúl­íski flokkur sækir fylgi sitt mikið í strjál­býlli og eystri byggðir lands­ins og leggur mikla rækt við kristi­leg gildi og kaþ­ólsku kirkj­una. Það hefur meðal ann­ars end­ur­spegl­ast í mjög íhalds­sömum frum­vörpum um bann og tak­mark­anir við fóst­ur­eyð­ingum sem í tvígang hefur orðið til­efni til fjölda­mót­mæla. Líkt og svo víðar í Evrópu og heim­inum eru pólsk stjórn­mál að verða sífellt pólaríser­aðri þar sem gjáin á milli frjáls­lyndra og íhalds­samra breikkar með til­heyr­andi árekstrum.

Hreinsanir í dómskerfinu

Laga- og rétt­læt­is­flokk­ur­inn hefur verið sak­aður um að standa að baki póli­tískum hreins­unum í dóms­kerf­inu og afmá þannig skilin á milli dóms- og fram­kvæmda­valds, und­ir­stöðu rétt­ar­rík­is­ins. Um 13 laga­frum­vörp sem flokk­ur­inn hefur lagt fram eru sögð vinna að því mark­miði en með þeim eru póli­tísk afskipti af dóms­kerf­inu, einkum hæsta­rétti og stjórn­laga­dóm­stólnum, stór­aukin. Full­yrð­ingum pól­skra ráða­manna um að til­gang­ur­inn sé þvert á móti að draga úr spill­ingu og auka sjálf­stæði dóm­stól­anna hefur verið fálega tekið. Fjöldi opin­berra starfs­manna og hers­höfð­ingja í hernum hafa sömu­leiðis verið rekin. Þá tóku stjórn­ar­flokk­arnir yfir rík­is­fjöl­miðl­ana með laga­setn­ingu árið 2016 og þrengt hefur verið að rekstri hinna einka­reknu.

Ítrekaðir árekstrar við ESB

Pólland hefur allt frá inn­göngu 2004 fengið gríð­ar­lega fjár­muni frá ESB til inn­viða­upp­bygg­ingar sem hefur reynst land­inu afar far­sæl. Þrátt fyrir það keyrir PiS á and­ófi gegn sam­band­inu og und­an­farið hefur ítrekað komið til árekstra á milli Varsjár og Brussel. Þannig börð­ust Pól­verjar mjög gegn því að Donald Tusk yrði end­ur­kjör­inn for­seti ráð­herra­ráðs ESB, þrátt fyrir að hann sé pólskur. Í fyrra virkj­aði fram­kvæmda­stjórn ESB í fyrsta skipti 7. grein­ina svoköll­uðu, en hún felur í sér refsi­aað­gerðir gegn ríkjum sem brjóta gegn grunn­gildum sam­bands­ins, í þessu til­viki alvar­leg aðför gegn sjálf­stæði dóm­stóla. Það gæti leitt til þess að Pólland verði svipt atkvæða­rétti sínum innan stofn­ana sam­bands­ins en til þess þarf sam­þykki allra aðild­ar­ríkj­anna. Ólíklegt er að það gangi í gegn þar sem Ung­verja­land, þar sem einnig stjórna menn með and­lýð­ræð­is­legar hneigðir, hefur heitið Pól­verjum stuðn­ingi.

Daðrað við nýfasista

PiS hefur verið sakað um daður við nýfas­ista­hreyf­ingar eða í það minnsta horft vilj­andi fram hjá upp­gangi þjóð­ern­is­sinn­aðra hreyf­inga sem boða kyn­þátta­hatur. Slíkir hópar voru áber­andi í fjölda­göng­unni sem var til­efni umfjöll­unar Stund­ar­innar. Borg­ar­yf­ir­völd í Varsjá höfðu lagt blátt bann við göng­unni í ljósi reynsl­unnar í fyrra þar sem hvítir þjóð­ern­is­sinnar voru áber­andi og var lýst sem stærstu sam­komu þjóð­ern­is­sinna og öfga­hægri­manna í heim­inum á okkar tímum. Dóm­stólar hlið­hollir stjórn­völdum úrskurð­uðu bannið ólög­mætt og nið­ur­staðan var að 200 þús­und manns fylktu liði og gengu um götur Varsjár. Vissu­lega voru almennir borg­arar þar á meðal en það voru öfga­hópar og valda­menn – og sam­krull þeirra – sem stálu athygl­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife