Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ljósinu varpað á afskipti Rússa

Afskipti Rússa af for­seta­kosn­ing­unum 2016 voru umfangs­mikil og kerf­is­bundin og mið­uðu að því að koma Donald Trump til valda. Þetta er nið­ur­staða skýrslu sem upp­lýs­inga­nefnd öld­unga­deildar Banda­ríkja­þings birti í vik­unni og er þetta yfir­grips­mesta sam­an­tektin um hvernig rúss­nesk stjórn­völd mis­not­uðu sam­fé­lags­miðla til að hafa áhrif á nið­ur­stöðu kosn­ing­anna.

Ljósinu varpað á afskipti Rússa

Skýrslan var skrifuð af Oxford Uni­versity´s Computational Propag­anda Project og grein­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu Graphika og byggir á gögnum sem Facebook, Twitter og Google létu af hendi. Washington Post fékk drög af skýrsl­unni í hendur á mánu­dag­inn og birti helstu nið­ur­stöður á mánu­dag­inn. Þær eru í meg­in­at­riðum þær að rúss­neska fyr­ir­tækið Internet Research Agency (IRA) not­aði alla helstu sam­fé­lags­miðla – Facebook, Twitter, Instragram, Youtube, Pinter­est, Tumblr og Google+ – til að draga taum Donald Trump og Repúblíkana­flokks­ins, bæði fyrir og eftir for­seta­kosn­ing­arnar. Banda­rísk stjórn­völd hafa þegar ákært nokkra starfs­menn IRA fyrir glæp­sam­lega íhlutun í kosn­ing­unum en skýrslan sýnir að afskiptin hafi verið mun víð­tæk­ari en almennt var talið.
Rúss­arnir beindu spjótum sínum fyrst og fremst að tveimur þjóð­fé­lags­hópum, íhalds­mönnum ann­ars vegar og blökku­mönnum hins vegar og voru skila­boð Rússanna klæð­skera­sniðin með til­liti til þess. Þannig var því beint að íhalds­sömum og hægri sinn­uðum kjós­endum að fylkja sér að baki Trump og var sér­stak­lega keyrt á mál­efnum eins og byssu­eign og inn­flytj­endum. Að sama skapi voru skila­boðin sem beint var gegn blökku­mönnum þess eðlis að rugla þá í rím­inu með fals­fréttum og fá þá til að missa trú á kerf­inu. Þegar nær dró kosn­ingum hófu Rússar að senda út mis­vísandi leið­bein­ingar um hvernig ætti að kjósa. Aðrir þjóð­fé­lags­hópar fengu líka sinn skammt af klæð­skera­sniðnum skila­boðum – múslimar, kristnir, sam­kyn­hneigðir, konur og íbúar af spænskum upp­runa.

Afskiptin ná aftur til 2013
Skýrslan sýnir að afskipti Rússa hófust svo snemma sem árið 2013. Tíðnin jókst í kringum þing­kosn­ing­arnar 2014 og tók svo mik­inn kipp í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna 2016 og mán­uð­ina þar á eftir. Meg­in­hluti starf­sem­innar fer fram innan veggja Internet Research Agency (IRA) í Pét­urs­borg, fyr­ir­tækis sem hefur bein­línis það mark­mið að tala máli rúss­neskra stjórn­valda og fyr­ir­tækja á Inter­net­inu. Með öðrum orðum „trölla­verk­smiðja“. Afskiptin vest­an­hafs hófust á Twitter áður en þau yfir á YouTube og Instragram og loks Facebook þar sem útbreiðslan var mest.

Náðu til 126 millj­óna Facebook-not­enda
Á Facebook var meg­in­á­herslan lögð á að ná til íhalds­manna og blökku­manna. Á Facebook fór 99 pró­sent aðgerða Rússa fram í gegnum 20 síður sem báru nöfn eins og „Being Patriotic“, „Heart of Texas“, „Blacktivist“ og „Army of Jesus“. Efnið á þessum 20 síðum náði sam­an­lagt til 126 millj­óna Facebook-not­enda og fékk efni þeirra deil­ingar sem náði yfir 31 milljón. Rússar stýrðu einnig 133 Instagram-reikn­ingum með sam­bæri­legum þemum. Árið 2016 deildu þessir reikn­ingar sam­an­lagt 2.600 færslum á mán­uði og árið 2017 voru færsl­urnar orðnar 6.000. Á þeim þremur árum sem skýrslan spannar fengu rúss­neskar Instagram-færslur 185 milljón „like“ og 4 millj­ónir ummæla. Ekki bara tókst rúss­nesku tröll­unum að hafa áhrif á hug­ar­far not­enda, heldur náðu þau einnig að kría út fjár­fram­lög og gengu svo langt að skipu­leggja mót­mæli og aðrar fjölda­sam­komur í banda­rískum borgum.

Sam­fé­lags­miðlar skað­legir lýð­ræð­inu
Skýrslu­höf­undar gagn­rýna harð­lega við­brögð tækniris­ana Facebook, Google og Twitter, bæði fyrir hversu seint þeir brugð­ust við afskiptum Rússa og hversu tregir þeir voru að láta upp­lýs­ingar af hendi. Þá er því lýst hversu skað­legir sam­fé­lags­miðlar geta verið fyrir lýð­ræðið. Ekki er langt síðan að litið var á þá sem mik­il­vægt tæki fyrir almenn­ing til að koma skoð­unum sínum á fram­færi. Jafnvel kúguð alþýða í ráð­stjórn­ar­ríkjum gat komið af stað bylt­ingu líkt og gerð­ist í arab­íska vor­inu. Þetta hefur nú snú­ist við og í auknum mæli eru stjórn­völd farin að nota miðl­ana sem kúg­un­ar­tæki. Þar geta þau bæði safnað per­sónu­legum upp­lýs­ingum um borg­ar­ana í því skyni að kúga þá sem og mis­notað þá til að hafa stjórn á umræð­unni og koma áróðri á fram­færi.

Reyndu ekki að fela slóð­ina
Loks er bent á að tæknirisarnir hefðu getað komið í veg fyrir þessa starf­semi mun fyrr. Í það minnsta voru Rúss­arnir lítið að hafa fyrir því að fela slóð sína. Þannig er greint frá því að Rúss­arnir hafi kosið að greiða fyrir kost­aðar aug­lýs­ingar á sam­fé­lags­miðl­unum með rúblum og þeir gefið upp rúss­nesk síma­númer fyrir tengilið. Auk þess var hægt að rekja stóran hluta póst­anna til rúss­neskra IP-talna. Fyr­ir­tækin hafa lýst því yfir að þau hafi gripið til við­eig­andi ráð­staf­ana til að sporna gegn rúss­nesku tröll­unum. Þannig kom Facebook upp svoköll­uðu „stríðs­her­bergi“ í haust til að fylgj­ast með mögu­legum afskiptum fyrir þing­kosn­ing­arnar í nóv­em­ber. Svo virð­ist sem Rússar hafi skipt um taktík því afskiptin fyrir þær kosn­ingar voru ekki nándar jafn­mikil og árið 2016.

Fleyg ummæli
„Það sem er ljóst að nærri öll þessi skila­boð mið­uðu að því að draga taum Repúblíkana­flokks­ins – einkum og sér í lagi Donald Trump. Trump er nefndur á nafn í flestum þeim her­ferðum sem beindust að íhalds­sömum og hægri sinn­uðum kjós­endum þar sem skila­boðin voru að þessir hópar ættu að styðja fram­boð hans. Hjá þeim hópum sem gátu skákað Trump var mark­miðið að rugla þá í rím­inu, beina athygl­inni annað og loks að letja þá til að kjósa.“
Úr skýrslu banda­rísku upp­lýs­inga­nefnd­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta