Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Margt gæti komið á óvart í Eurovision í kvöld

Margt gæti komið á óvart í Eurovision í kvöld

Ari okkar Ólafsson stígur á svið í Altice Arena-höll­inni í Lissabon í kvöld og keppir í fyrri und­an­úr­slit­ar­iðli Eurovision. Ef allt gengur að óskum kemst Ari áfram og keppir í úrslit­unum laug­ar­dags­kvöldið 12. maí.

Útlitið fyrir að Ari nái loks­ins að binda enda á eyði­merk­ur­göngu okkar Íslend­inga í keppn­inni er ekki gott, en Ísland hefur ekki kom­ist upp úr und­an­riðl­unum síð­ustu þrjú ár. Ef marka má sam­an­tekt úr helstu veð­bönkum heims­ins kemst Ari ekki upp úr riðl­inum og skipar sér í neðstu sætin ásamt Makedóníu og Írlandi. Í spá vef­síð­unnar Eurovision World er Ari neðstur.

Sjá einnig: Mikið klappað fyrir Ara á dóm­ara­rennsli.

Engir LED-skjáir

Auk Íslands keppa eft­ir­far­andi lönd í kvöld, í réttri röð, en Ari er númer 2 á undan Albaníu: Aserbaídjan, Albanía, Belgía, Tékkland, Litháen, Ísrael, Hvíta-Rússland, Eistland, Búlgaría, Makedónía, Króatía, Aust­ur­ríki, Grikk­land, Finnland, Armenía, Sviss, Írland og Kýpur. Tíu lönd kom­ast áfram í úrslit.

Þessi rið­ill hefur verið kall­aður dauðarið­ill­inn, enda hafa margir spáð því að þau tíu lönd sem kom­ist upp úr riðl­inum verði þau tíu efstu í úrslit­unum þann 12. maí. Meðal landa sem eru talin sig­ur­strang­leg eru Ísrael, Tékkland, Eistland og Búlgaría.

Það getur hins vegar margt komið á óvart í kvöld, eins og venja er í Eurovision, og þó veð­bankar og spár hafi oft rétt fyrir sér þá kemur fyrir að þeim bregst boga­listin. Þá ber að nefna sviðið og sviðs­setn­ing­una, en eins og kunn­ugt er eru engir LED-skjáir í Lissabon og því mörg atrið­anna keim­lík er kemur að sviðs­setn­ingu. Því reynir meira á flytj­endur að skera sig úr og meira á ljósa­hönn­uði að gera atriði eft­ir­minni­leg.

Sjá einnig: Spánn vinnur Eurovision ef marka má Google.

Áskrift að úrslitunum

Aserbaídjan opnar kvöldið með söng­kon­unni Aisel og lag­inu X My Heart. Veð­bankar spá henni ekki áfram í úrslit en gleyma þó kannski mik­il­vægri stað­reynd að Aserbaídjan kemst alltaf upp úr und­an­riðl­inum, alveg sama hve lagið er slakt. Þannig að við þurfum lík­leg­ast ekki að hafa miklar áhyggjur af henni Aisel, þó atriðið sé frekar bragð­dauft og lagið ekk­ert spes.

Hin ísra­elska Netta hefur verið talin sig­ur­strang­leg­ust, raunar til að vinna alla keppn­ina, í nokkrar vikur. Hins vegar olli fyrsta æfing söng­kon­unnar í Lissabon nokkrum von­brigðum meðal Eurovision-spek­úlanta, þó radd­bönd Nettu hafi langt því frá klikkað. Unnið var í atrið­inu og þegar kom að annarri æfingu var ísra­elska teymið búið að bæta við eld­glærum og sápu­kúlum sem gerir mikið fyrir atriðið.

Lagið, Toy, er sterkt og nýtur mik­illar hylli í Eurovision-heim­inum og því nán­ast öruggt að Netta kom­ist áfram í úrslit. Hvort hún hrósi sigri í úrslitum á laug­ar­dags­kvöldið er svo annað mál, og hugs­an­legt að hún hafi toppað á vin­sæld­ar­listum of snemma.

Sópransöngur og stuð

Ísrael er í fyrri part und­an­úr­slit­anna í kvöld, sjö­unda í röð­inni. Önnur lönd sem eru talin sig­ur­strang­leg, Tékkland og Eistland, eru líka fram­ar­lega – Tékkland númer 5 og Eistland númer 9. Það getur líka haft áhrif á gengi þeirra, en veð­bankar eru sam­mála um að þessi tvö lög kom­ist áfram. Mikolas Josef syngur lagið Lie to Me fyrir Tékka og lenti í smá erf­ið­leikum á fyrstu æfingu þar sem hann slas­að­ist er hann gerði fim­leika­æf­ingar á svið­inu. Mikolas náði sem betur fer að hrista það af sér og var mjög öruggur á svið­inu á annarri æfingu, þrátt fyrir byrj­un­ar­erf­ið­leika með hljóð­nem­ann. Lagið er hresst og sviðs­setn­ingin ágæt og því lík­legt að hann kom­ist áfram.

Eistar taka áhættu með því að senda klass­ískt mennt­aða söng­konu, hana Elinu Nechayeva, með hið dramat­íska lag La Forza. Elina syngur lagið óað­finn­an­lega en það er ekki síður kjóll hennar sem hefur stolið sen­unni. Elina fær lík­leg­ast fullt hús stiga dóm­nefndar en óvíst er hvernig Eurovision-aðdá­endur taka þess­ari flottu sópran­söng­konu.

Tveir svartir hestar

Finnar eru fimmt­ándir í röð­inni í kvöld og syngur söng­konan Sara Aalto lagið Monsters. Samkvæmt veð­bönkum rétt slefar Sara í úrslit, en hér er á ferð atriði sem er stór­lega van­metið og á eflaust eftir að standa sig tals­vert betur en spáð er. Sara er þrus­u­söng­kona og bjóða Finnar upp á skemmti­legt, töff og hressandi atriði parað við lag sem er mikið heila­lím.

Má segja að Finnar séu svarti hest­ur­inn sem gæti hrein­lega farið alla leið í keppn­inni í ár, þvert á alla spá­dóma.

Kýpur lokar sýn­ing­unni í kvöld með lag­inu Fuego sem flutt er af þokka­gyðj­unni Eleni Foureira. Hér er á ferð annar svartur hestur sem var spáð afar slöku gengi þar til æfingar hófust í Altice Arena-höll­inni í Lissabon. Nú er Eleni efst í öllum veð­banka­spám, sem og spá á vef­síðu Eurovision World. Og það er ekk­ert skrýtið þar sem má með sanni segja að Eleni loki her­leg­heit­unum með hvelli, óað­finn­an­legum söng og seið­andi dans­sporum í anda Beyoncé. Hins vegar gæti Fuego orðið eitt af þessum lögum sem verða póli­tík­inni að bráð og kom­ast ekki áfram út af því að önnur lönd eiga áskrift­ar­miða í úrslit, til dæmis Aserbaídjan.

Er pláss fyrir Ara?

Önnur lönd sem veð­bankar eru sann­færðir um að kom­ist áfram eru Búlgaría, Grikk­land, Aust­ur­ríki, Belgía og Hvíta-Rússland. Það er hins vegar ómögu­legt að segja hvernig kvöldið í kvöld fer, og það er jafn­vel pláss fyrir fleiri svarta hesta í riðl­inum, til dæmis Ara okkar Ólafsson. Flestir Eurovision-spek­úlantar eru sam­mála um að Ari negli lagið á öllum æfingum og við­burðum en að lagið sjálft sé hins vegar ekki nógu spenn­andi til að gera mikið í keppn­inni.

Bein útsend­ing á fyrri und­ankeppn­inni í Eurovision hefst klukkan 19 í kvöld á RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife