Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rússar gætu dottið út í Eurovision í kvöld

Rússar gætu dottið út í Eurovision í kvöld

Skand­in­av­ísku þjóð­irnar Svíþjóð og Noregur kom­ast upp úr öðrum und­an­úr­slit­ar­iðl­inum í Eurovision í kvöld ef marka má veð­banka og Eurovision-spek­úlanta. Aðrar þjóðir sem kom­ast áfram, ef ein­göngu er stuðst við veð­banka­spár, eru Moldóvía, Úkraína, Pólland, Ástralía, Holland, Danmörk, Ung­verja­land og Lettland. Rússar og Rúmenar koma þar strax á eftir og því ekki inni í úrslit­unum, eitt­hvað sem hefur aldrei gerst áður.

Ef veð­bankar hafa rétt fyrir sér verður Ísland eina þjóðin í Skand­in­avíu sem keppir ekki í úrslitum Eurovision á laug­ar­dag, en Finnar komust upp úr fyrri und­an­riðl­inum á þriðju­dag á meðan Ari okkar Ólafsson sat eftir með sárt enni.

Fiðlusnillingurinn með ofurkraftana

Það er fiðlu­snill­ing­ur­inn Alex­ander Rybak sem keppir fyrir hönd Noregs með lagið That’s How You Write a Song. Hann hefur verið að fikra sig hægt og örugg­lega upp veð­banka­list­ann og trónir nú á toppi þeirra flytj­enda sem lík­leg­astir eru til að fara rak­leiðis í gegn í úrslit í kvöld. Ef litið er á lík­urnar á vef­síð­unni Eurovision World sést raunar að Alex­ander er spáð öðru sæti í allri keppn­inni, á eftir hinni eld­fimu Eleni frá Kýpur sem við sáum loka fyrri und­an­riðl­inum með hvelli.

Eins og flestir muna eftir fór Alex­ander með sigur af hólmi í Eurovision árið 2009 með lagið Fairytale. Þegar nýjasta lagið hans var kynnt var því mis­vel tekið en það er eins og þetta sjar­matröll hafi ein­hvern ofur­kraft þegar kemur að Eurovision því eftir æfingar í Altice-höll­inni hefur lagið hans verið talið æ lík­legra til að vinna keppn­ina í ár. En það er annað sem hjálpar Norð­mann­inum knáa. Hann var í öðru sæti í rúss­nesku útgáf­unni af Your Face Sounds Familiar þar sem hann fór meðal ann­ars á kostum sem Eurovision-sig­ur­veg­ar­inn Dima Bilan, og á því dyggan aðdá­enda­hóp í Rúss­landi.

Frábært atriði – lélegir söngvarar

Talandi um Rússland, þá lítur allt út fyrir það að hin rúss­neska Julia Sam­oylova, sem stígur sjötta á svið með lagið I Won’t Break, kom­ist ekki áfram, þrátt fyrir til­þrifa­mikla sviðs­setn­ingu. Lagið er hins vegar langt frá því að vera jafn­sterkt og fyrri fram­lög Rússa í keppn­inni og Julia umdeild eftir að henni var bannað að keppa í Úkraínu í fyrra.

Tríóið DoReDoS frá Moldavíu stígur á svið á eftir Juliu með stuð­lagið My Lucky Day. Lagið er frekar fyndið, eins og laga­höf­und­ur­inn Philipp Kirkorov hefur sagt í við­tölum, og hefur það vaxið í áliti jafnt og þétt hjá Eurovision-aðdá­endum síðan æfingar hófust í Lissabon. Atriði Moldovíu er afar hressandi og skemmti­lega útfært, en söngv­ar­arnir í DoReDoS eru langt frá því að vera sterkir. Það er spurn­ing hvort áhorf­endur og dóm­nefnd fyr­ir­gefi þeim það. Það verður að koma í ljós.

Svöl sviðssetning

Svo er það Svíinn Benjamin Ingrosso, sem er næst­lík­leg­astur til að kom­ast upp úr riðl­inum, á eftir nágranna sínum Alex­ander Rybak. Hann býður upp á dansvæna poppsmell­inn Dance You Off og flytur hann afar vel ef marka má æfingar. Benjamin er búinn að færa skemmti­lega og svala sviðs­setn­ingu úr Melodi­festivalen alla leið til Lissabon og á áhorf­endum heima í stofu eftir að líða eins og þeir séu að horfa á tón­list­ar­mynd­band, sem er kær­komin til­breyt­ing.

Dananum Jonas Flodager Rasmus­sen með vík­inga­lagið Higher Ground er spáð áfram í kvöld. Lagið er allt öðru­vísi en önnur lög í keppn­inni og stóra spurn­ingin er hvernig Evrópa tekur í vík­inga­drama­tík­ina. Rasmus­sen býður uppá snjó­komu, eins og Írinn í fyrri und­ankeppn­inni, og við munum öll hvernig það fór. Þetta er hugs­an­lega atriðið sem gæti komið hvað mest á óvart í kvöld, og ættu Íslend­ingar að leggja sér­stak­lega vel við hlustir til að heyra íslensk­una sem er sungin í lag­inu.

Sjá einnig: Ari komst ekki áfram í Eurovision.

Treystir á sig sjálfa

Hin ástr­alska Jessica Mauboy reynir að halda landi sínu í keppn­inni með lagið We Got Love og tekst það sam­kvæmt veð­bönkum. Jessica lenti í því að slasa sig á æfingu í Lissabon, þó ekki alvar­lega. Hún fékk tak í hálsi eftir að hún sveifl­aði hári sínu aðeins of kröft­ug­lega á æfingu. Jessia treystir á sjálfa sig og frá­bæra söng­rödd á svið­inu og er atriðið fremur ein­falt. Lagið er hins vegar gríp­andi, Jessica sjar­mer­andi og söng­ur­inn óað­finn­an­legur.

Því hefur verið fleygt fram að þessi seinni und­an­rið­ill­inn sé ekki jafn sterkur og sá fyrri, en ljóst er að hart verður barist til síð­ustu upp­hækk­unar í kvöld til að kom­ast í úrslitin þann 12. maí.

Bein útsend­ing á seinni und­an­riðl­inum hefst klukkan 19.00 á RÚV. Hér má sjá röð kepp­anda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta