Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Listin í fótboltanum

Listin í fótboltanum
|||||||
Jón Ari Helgason, „creative director“ á aug­lýs­inga­stof­unni Brand­en­burg

Með fyrstu heimsmeistarakeppninni í knattspyrnu árið 1930 hófst sú hefð að hanna sérstakt kynningarplakat fyrir hvert mót og hefur miklu púðri verið eytt í útfærslu þessara veggspjalda. Mannlíf fékk hönnuðinn og knattspyrnuáhugamanninn Jón Ara Helgason til að líta á opinberu HM-plakötin, 21 talsins, sem hönnuð hafa verið í gegnum árin og velja þau bestu og verstu.

„Maður kann­ast nú við flest þessi plaköt, en ég verð samt að játa að ég hef aldrei skoðað þau sem heild áður. Plaköt og merki stór­keppna á borð við HM og Ólymp­íu­leika vekja alltaf fag­legan áhuga hjá okkur hönn­uðum,“ segir Jón Ari Helgason, „creative director“ á aug­lýs­inga­stof­unni Brand­en­burg, eftir að hafa grand­skoðað kynn­ing­arpla­kötin sem hönnuð hafa verið fyrir HM í knatt­spyrnu í gegnum tíð­ina.
Knatt­spyrnu­á­huga­mað­ur­inn Jón Ari segir einna fróð­leg­ast að sjá útkom­una á HM-plakötunum þegar lista­menn hafi fengið að spreyta sig á hönnun þeirra í stað graf­ískra hönn­uða, til að mynda þegar spænski list­málar­inn Miró gerði plakatið fyrir HM í heima­landi sínu árið 1982.
„Það plakat er vissu­lega eft­ir­minni­legt og einnig hið afleita vegg­spjald sem Peter Max gerði fyrir HM í Banda­ríkj­unum árið 1994. En ég myndi segja að yfir­leitt fylgi HM-plakötin tíð­ar­and­anum og stefnum og straumum hvers tíma nokkuð vel. Und­an­tekn­ingin er aug­ljós­lega nýja vegg­spjaldið fyrir HM í Rúss­landi í sumar sem sækir í gamlan mynd­heim Sov­ét­ríkj­anna,“ útskýrir Jón Ari.
Hann er hóf­lega bjart­sýnn þegar hann er spurður um mögu­leika Íslands á HM í Rúss­landi í sumar. „Þetta íslenska lands­lið kemur manni alltaf á óvart. Maður bjóst eig­in­lega við því að það færi allt loft úr lið­inu eftir EM 2016 en svo rúll­aði það bara upp und­ankeppn­inni fyrir HM. Ég ætla að spá því að Ísland verði í harðri keppni um að kom­ast upp úr D-riðli fram á síð­ustu mín­útu. Maður getur ekki beðið um meira í bili. Hvað önnur lið varðar þá var ég staddur í Þýska­landi sum­arið 1990 þegar Þjóð­verjar unnu mótið á Ítalíu og hef eig­in­lega alltaf haldið með þýska stál­inu á stór­mótum síðan þá,“ segir Jón Ari að lokum, spenntur fyrir sumr­inu.

BESTU VEGGSPJÖLDIN
Ítalía 1934
„Þetta er æðis­legt. Fas- og nas­istar mega eiga það að þeir vissu sínu viti þegar kom að grafík. Art Deco-týpógraf­ían dansar þarna í kringum mynd­ina sem er kannski ekki sú frum­leg­asta, en hún virkar. Ég mæti á þetta mót, ekki spurn­ing.“

Suður-Afríka 2010
„Þetta vegg­spjald var vel heppnað og eft­ir­minni­legt að mínu mati. Vegg­spjöld eiga að fá þig til að stoppa og skoða og þetta gerir það svo sann­ar­lega. Mjög fal­leg og sterk lita­pal­letta, fal­lega útfærð teikn­ing og skemmti­lega sam­tvinnað kort og höfuð. Mynda­stíll­inn minnir svo­lítið á kosn­inga­mynd­ina sem Shepard Fairey gerði af Obama og eflaust kemur inn­blást­ur­inn þaðan. Það er helst að maður geti fett fingur út í let­ur­með­ferð­ina.“

Mexíkó 1970
„Merki Mexíkóa fyrir keppn­ina 1970 er klass­ískt og vegg­spjaldið er sterkt. Það er ekki að reyna neitt of mikið, er bara þarna öskr­andi ein­falt og fínt. Gott ef maður hefur ekki séð þetta í fleiri lita­út­gáfum. Þetta sómir sér vel á hvaða vegg sem er.“

VERSTU VEGGSPJÖLDIN

Þýska­land 2006
„Merki keppn­innar í Þýska­landi 2006 er eitt það versta sem gert hefur verið og því við hæfi að gera virki­lega vont vegg­spjald með. Vænt­an­lega á þetta að vera stjörnu­merki í formi fót­bolta. Er þetta Geims­meist­ara­keppnin í knatt­spyrnu? Maður á ein­hvern veg­inn von á meiri fag­mennsku frá Þjóð­verj­anum.“

Mexíkó 1986
„Í minn­ing­unni er keppnin í Mexíkó 1986 hin eina sanna heims­meist­ara­keppni. Þetta vegg­spjald er ljós­mynd en ekki mynd­skreyt­ing, sem þarf nú ekki að vera slæmt út af fyrir sig, en þessi ljós­mynd er hreint út sagt afleit. Teygð og toguð og furðu­lega skorin. Þessi skugga­vera þarna er algjör­lega sam­mála mér og hefur hnef­ann á loft í reiði­kasti yfir þessu skammar­lega vegg­spjaldi. Eða ef til vill er hún bara að barma sér yfir þess­ari bólgu í kálf­anum.“

Chile 1962
„Less is more á alltaf að virka, en HM í Chile 1962 afsannar þá kenn­ingu. Ef vegg­spjaldið fyrir Þýska­land 2006 var fyrir Heims­meist­ara­mótið þá er þetta plakat fyrir Heimsenda­mótið. Risastór loft­steinn skellur á Suður-Afríku og eyðir öllu lífi á jörð­inni. Mann langar ekk­ert til að horfa á fót­bolta þegar maður sér þetta vegg­spjald. Maður faðmar bara börnin sín og bíður eftir högg­bylgj­unni.“

_________________________________________________________________

Rússland 2018 (sbr. aðal­mynd)
„Framlag Rússanna fyrir mótið í ár er virki­lega vel heppnað. Þarna er sótt beint í sov­éskan konstrúk­tí­visma og áróð­urs­pla­kötin. Sól­ar­geisl­arnir eru á sínum stað en í stað bar­áttu­hnef­ans er komin gömul sov­ésk kempa, mark­vörð­ur­inn Lev Yashin. Það er kannski ögn skrýtið að taka þetta svona retró alla leið en þetta er allt svo vel útfært að þetta vegg­spjald fer beint í topp fimm hið minnsta. Það eina sem truflar mann er þessi hálfa heims­mynd sem er sett á knött­inn ofan­verðan með Rússland í for­grunni. Virkar eins og bolt­inn sé hrein­lega við það að springa. En vel gert að öðru leyti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife