Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stjörnurnar í Beverly Hills 90210: Hvar eru þær núna?

Stjörnurnar í Beverly Hills 90210: Hvar eru þær núna?
|||||||||

Banda­rísku ung­linga­þætt­irnir Beverly Hills 90210 voru gríð­ar­lega vin­sælir um heim allan á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Þætt­irnir hófu göngu sína í októ­ber árið 1990 en áhorfs­töl­urnar voru afleitar til að byrja með. Það var svo ári síðar sem mik­ill áhugi á þátt­unum kvikn­aði og náðu þeir að halda vin­sældum sínum nán­ast þar til síð­ustu ser­í­unni lauk árið 2000.

Það má með sanni segja að leik­ar­arnir í þátt­unum hafi verið áhrifa­valdar síns tíma og náði til að mynda klæða­burður þeirra að móta fata­val heillar kyn­slóðar. En hvar eru Beverly Hills 90210-stjörn­u­rnar í dag? Mannlíf fór á stúf­ana og kann­aði málið.

Jennie Garth

Jennie lék Kelly Taylor og var aðeins átján ára þegar ser­ían hóf göngu sína. Í dag er Jennie 46 ára og hefur unnið mikið við sjón­varp, til dæmis í þátt­unum What I Like About You. Hún birt­ist sjón­varps­á­horf­endum síðan aftur sem Kelly Taylor þegar sjón­varps­rásin CW gerði fram­hald af Beverly Hills 90210 sem hét ein­fald­lega 90210 og gekk frá árinu 2008 til 2013.

Jennie er þrí­gift, fyrst árið 1994 til 1996 tón­list­ar­mann­inum Daniel B. Clark. Árið 2001 gift­ist hún síðan leik­ar­anum Peter Fanicelli en því hjóna­bandi lauk árið 2013. Tveimur árum síðar gift­ist hún leik­ar­anum David Abrams en þau skildu fyrir stuttu. Jennie á þrjár dætur með Peter Facinelli.

Tori Spelling

Tori lék hina ein­lægu Donnu Martin, bestu vin­konu Jennie. Tori sneri líka aftur í fram­halds­þætt­ina 90210, en þó styttra en vin­kona sín. Tori er dóttir fram­leið­anda þátt­anna um Beverly Hills-gengið, Aaron Spelling. Aaron þessi lést árið 2006 og þá var því haldið fram að Tori myndi erfa auð­æfi hans, um 500 millj­ónir doll­ara. Móðir hennar, Candy, og hún voru ekki í góðu sam­bandi og Candy sá um að skipta búinu. Á end­anum fékk Tori aðeins átta hund­ruð þús­und doll­ara í sinn hlut, en talið er að Candy hafi lagt tíu millj­ónir doll­ara í náms­sjóð fyrir elsta barn Tori, Liam.

Tori gift­ist leik­ar­anum Charlie Shanian árið 2004. Ári síðar var leik­konan við tökur á sjón­varps­mynd­inni Mind Over Murder og kynnt­ist leik­ar­anum Dean McDermott, sem var þá kvæntur leikkon­unni Mary Jo Eustace. Tori og Dean felldu hugi saman og hófu að halda við hvort annað. Tori skildi síðan við Charlie í októ­ber það ár og Dean við sína konu í apríl árið 2006. Minna en mán­uði eftir að sá skiln­aður gekk í gegn létu þau Dean og Tori pússa sig saman á Fiji. Þau eiga fimm börn saman: Liam Aaron, Stella Doreen, Hattie Margaret, Finn Davey og Beau Dean, sem kom í heim­inn í mars í fyrra. Þá á Dean eitt barn með fyrr­nefndri Mary Jo, son­inn Eustace.

Shannen Doherty

Shannen Doherty lék hina prúðu Brendu Walsh í þátt­unum en var alræmd fyrir slæma heðgun utan skjás­ins. Þá var mikið skrifað um illindi á milli Shannen og hinna leik­ar­anna, þá sér­stak­lega Jennie Garth. Fram­leið­endur þátt­anna stað­festu að hún væri erfið á setti og var karakt­er­inn hennar skrif­aður út úr þátt­unum árið 1994 eftir fjórar ser­íur.

Shannen hefur verið mjög opin með þá stað­reynd að hún greind­ist með brjóstakrabba­mein árið 2015. Nýverið lét hún byggja brjóst sitt upp aftur eftir brjóst­nám og til­kynnti það á sam­fé­lags­miðlum.

Shannen er gift fram­leið­and­anum Kurt Iswarienko en þau gengu í það heilaga árið 2011.

Jason Priestley

Jason lék bróður Shannen Doherty í imbak­ass­anum, sjálfan hjartaknúsar­ann Brandon Walsh. Jason hefur verið dug­legur að leika síðan Beverly Hills-ser­ían hætti og hefur einnig reynt fyrir sér sem leik­stjóri nokk­urra þátta af kómísku drama­ser­í­unni Private Eyes.

Jason hefur tví­vegis verið nær dauða en lífi, fyrst eftir að hann keyrði á vegg í kappakst­urs­bíl árið 2002 og síðan þegar hestur kastaði honum af baki við tökur á The Code árið 2015.

Jason er búinn að vera kvæntur Naomi Lowde síðan 2005 og saman eiga þau þrjú börn.

Luke Perry

Mesti hjartaknús­ar­inn í ser­í­unni var þó óum­deil­an­lega Dylan McKay sem leik­inn var af Luke Perry. Skemmti­legt er að segja frá því að Luke fór upp­runa­lega í prufu fyrir hlut­verk Steve Sanders, sem var leik­inn af Ian Ziering.

Luke hætti í Beverly Hills 90210 árið 1995 til að leita að meira gef­andi hlut­verkum í leik­list­inni. Hann sagð­ist aldrei ætla að snúa aftur í þætt­ina en gerði það samt þremur árum síðar vegna pen­inga­vand­ræða. Hann sagði þó nei við því að snúa aftur í fram­halds­þætt­ina, ein­göngu út af því að Aaron Spelling var ekki fram­leið­andi þeirra.

Í dag er Luke 51 árs og leikur í hinum gríð­ar­vin­sælu þáttum River­dale. Hann var giftur Rachel Minnie Sharp á árunum 1993 til 2003 og saman eiga þau tvö börn, Jack og Sophie. Þau deila með sér for­ræði yfir þeim.

Brian Austin Green

Brian var aðeins sautján ára þegar hann setti sig í spor David Silver í Beverly Hills-geng­inu. Síðan þá hefur hann komið víða við, og leikið hvað mest í sjón­varpi, þar á meðal í þátt­unum Anger Mana­gement, Small­ville og Desperate Housewives.

Brian bland­aði vinnu og einka­lífi saman við tökur á Beverly Hills 90210 og átti hann og Tiffani Thiessen í haltu-mér-slepptu-mér sam­bandi um nokk­urt skeið. Þá á hann barn með leikkon­unni Vanessu Marcil, sem lék Ginu Kincaid í níundu og tíundu seríu. Sá fædd­ist í mars árið 2002 og heitir Kassius.

Brian kynnt­ist núver­andi eig­in­konu sinni, leikkon­unni Megan Fox árið 2004 þegar hann var þrí­tugur en hún átján ára. Tveimur árum síðar trú­lof­uðu þau sig en slitu henni árið 2009. Ári síðar trú­lof­uðu þau sig á nýjan leik og gengu í það heilaga stuttu síðar. Svo skildu þau árið 2015 en tóku aftur saman ári síðar. Þau eiga þrjá syni saman: Noah Shannon, Bodhi Ransom og Journey River.

Tiffani Thiessen

Tiffani lék fjöl­skyldu­vin Brendu og Brandons, Valerie Malone. Valerie átti erf­iða æsku og glímdi því við alls kyns djöfla í þátt­unum. Tiffani var góð vin­kona Tori Spelling og Jennie Garth þar til þær síð­ar­nefndu ákváðu að tala illa um hana í þætti af RuPaul’s Drag Race.

Tiffani vegnar vel og stýrir þætt­inum Dinner at Tiffani’s á Cooking Channel.

Hún hefur átt við ýmsa erf­ið­leika að glíma í einka­líf­inu og gekk í gegnum mjög erf­iða tíma árið 1999 þegar kær­asti hennar, leik­ar­inn David Strickland framdi sjálfs­morð. Árið 2005 gekk hún að eiga leik­ar­ann Brady Smith og eiga þau tvö börn saman: dótt­ur­ina Harper og son­inn Holt.

Ian Ziering

Ian lék hinn skemmti­lega og hressa Steve Sanders í þátt­unum sem var hvers manns hug­ljúfi.

Í dag er Ian 54 ára gam­all og hefur gert það gott í sjón­varps­mynd­unum Sharknado ásamt leikkon­unni Töru Reid.

Þá er hann líka stoltur Chippendales-dans­ari og hafa með­leik­arar hans í Beverly Hills 90210 komið á sýn­ingar til að sjá hann fækka fötum.

Ian kvænt­ist Playboy-fyr­ir­sæt­unni Nikki Schieler í júlí árið 1997 en þau skildu í febr­úar árið 2002. Árið 2010 trú­lof­að­ist hann Erin Ludwig og þau giftu sig það sama ár. Þau eiga tvær dætur saman: Miu Loren og Pennu Mae.

Gabrielle Carteris

Gabrielle lék Andreu Zuckerman í þátt­unum og er elst af þessum aðal­stjörnum þátt­anna. Hún var 29 ára þegar byrjað var að sýna þætt­ina, sem var harð­lega gagn­rýnt á sínum tíma þar sem krakk­arnir áttu að vera í mið­skóla.

Í dag er Gabrielle 57 ára og berst ötul­lega gegn ald­urs­for­dómum í Hollywood. Leik­konan, sem hefur talað inn á ýmsar teikni­myndir og tölvu­leiki, skrif­aði pistil í The Hollywood Reporter fyrir nokkru síðan þar sem hún krafð­ist þess að aldur væri fjar­lægður af kvik­mynda­síð­unni IMDb.

Gabrielle gift­ist verð­bréfa­miðl­ar­anum Charles Isaacs árið 1992 og þau eiga tvær dætur saman: Kelsey Rose og Mollie Elizabeth.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife