Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

­­­„Ég er farinn að stoppa á umferðareyjum og tína upp flugeldakökur“

­­­„Ég er farinn að stoppa á umferðareyjum og tína upp flugeldakökur“
||

­­­„Manni líður ofboðs­lega vel lík­am­lega og and­lega þegar maður er búinn að taka smá­skurk í plokki, þó að það sé ekki nema klukku­tími eða tveir. Ef maður getur smitað fleiri með sér er það bara frá­bært því margar hendur vinna létt verk, eins og ein­hver sagði,“ segir almanna­teng­ill­inn og þús­und­þjala­smið­ur­inn Einar Bárð­ar­son.

Einar stofn­aði nýverið Facebook­-hóp­inn Plokk á Íslandi, sem er vísan í sænska æðið plogg­ing. Plogging, eða plokk á góðri ís­lensku, snýst um að ganga, hlaupa og skokka um en í leið tína upp rusl af göt­unum.

„Ég hef orðið sífellt með­vit­aðri um hvað er mikið rusl, og sér­­stak­­­­lega plast, í nátt­úr­unni og hvað þetta er mik­ill skað­valdur. Síðan horfir maður á fólk tuða út í eitt um að hinn eða þessi eigi að sjá um þetta. Þannig að í stað­inn fyrir að sitja á rass­gat­inu og tuða um af hverju eng­inn taki upp allt þetta rusl þá ákvað ég að byrja að plokka,“ segir Einar. Hann var byrj­aður að ganga um og tína rusl áður en hann kynnt­ist plokki.

Einar fór í göngutúr um dag­inn og fyllti tvo, svarta rusla­poka af drasli.

„Ég er svo sem engin súper­hetja í þessu en ég hef rölt endrum og sinnum með plast­poka og tínt upp, sér­stak­lega plast. Plast­­ið nefni­lega blotnar ekki. Það held­­­­ur áfram að fjúka og endar með því að fjúka út í sjó ef maður tekur það ekki. Í vetur sá ég síðan mynd­­­­band á sam­fé­lags­miðlum þar sem var verið að lýsa þessu æði sem heitir plogg­ing,“ segir Einar.
Einar tekur einnig fram að hlaup­­ar­­inn Eyþór Hann­es­son hafi veitt sér mik­inn inn­blástur, en Eyþór hefur í um ára­tug safnað rusli á hlaupa­ferðum sínum. Þá nefnir hann einnig lög­fræð­ing­inn Sigurð G. Guð­jóns­son í þessu sam­hengi, en hann stofn­aði Facebook-hóp­inn Rusl í Reykja­­vík. Sigurður stundar það að tína upp rusl í göngut­úrum með hund­inum sínum Atlasi og birtir afrakst­ur­inn í hópnum.

Frítt, skemmtilegt og gerir samfélaginu gagn

Um fjögur hund­ruð manns eru með­limir í Plokk á Íslandi. Í kjöl­far stofnun­ar hóps­ins hafa hóp­arnir Plogging Iceland og Plokk í Breið­­­­holti verið stofn­aðir sem gleður Einar mikið.

„Von­andi dreif­ist þetta út um allt. Þetta er frítt, þetta er skemmti­legt og maður er að gera samfé­lag­­inu gagn. Allt frá krökkum upp í gam­al­menni geta plokkað og það gerir það hver á sínum hraða. Innan hóps­ins Plokk á Íslandi hafa einnig mynd­ast hópar, eins og sá sem vin­kona mín Árdís Ármanns­dóttir er með. Það eru konur í fæð­ing­ar­or­lofi sem hitt­ast með barna­vagn­ana og plokka. Þær kalla þetta Tölt með til­gang. Mér finnst það alveg frá­bært.“

Hér má sjá hóp­inn Tölt með til­gang.
Sjálfur er Einar orð­inn ansi lið­­­­­tækur í plokki og ætlar að halda því áfram um ókomna tíð. „Mér bara blöskrar allt þetta rusl. Breyt­ingin byrjar hjá okkur sjálf­­­­um. Ég er far­inn að stoppa á umferð­ar­eyjum og tína upp flug­elda­kökur. Ætli fólk í nær­­liggj­­andi bílum velti ekki fyrir sér hvað sé eig­in­lega að mér,“ segir Einar og hlær.

Plast í sjónum

  • Þeir sem leggja sér sjáv­ar­fang til munns eru lík­legir til þess að melta um 11.000 plast­agnir á ári sam­kvæmt nýlegum útreikn-ingum vís­inda­manna við Ghent-háskóla í Belgíu.
  • Árið 2050 verður meira plast í sjónum en fiskar.
  • Ein helsta ástæða plast­meng–unar er fram­leiðsla á plast­flöskum. Árið 2016 voru 460 millj­arðar plast­flaskna seldir í heim­inum, rúm­lega ein milljón flaskna á mín­útu.
  • Vís­inda­menn áætla að 26 millj­ónir tonna af plasti endi í sjónum á ári hverju og drepi millj­ónir af sjáv­ar­líf­verum.

Aðalmynd / Óli Magg
Aðrar myndir / Úr einka­safni

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi