Birtist upphaflega á eldri vef Mannlífs fyrir tæpum 8 árum.
Undanfarnar vikur og daga hafa Hollywood-stjörnurnar verið duglegar við að vekja athygli á að kosið verður til Bandaríkjaþings í dag, þriðjudag. Í tilefni af þingkosningunum hafa ótal stjörnur nýtt sér samfélagsmiðla til að hvetja fólk til að kjósa.
Leonardo DiCaprio, Brad Pitt, Gwyneth Paltrow og Rihanna eru dæmi um þær stjörnur sem hafa hvatt fólk til að kjósa í dag. „Framtíð landsins verður ákveðin í þessari viku,“ sagði leikarinn Leonardo DiCaprio meðal annars í myndbandi sem birt var á YouTube á föstudaginn. Í því minnir hann og leikarinn Brad Pitt á að mikið sé í húfi.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir