Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjálfboðaliði í Hlaðgerðarkoti á gamlársdag

Theódór Gunnar Smith mat­reiðslu­maður mun vinna sem sjálf­boða­liði á með­ferð­ar­heim­il­inu Hlað­gerð­ar­koti á gaml­árs­dag og fram á gamlárs­kvöld en það gerði hann einnig á aðfanga­dag.

Sjálfboðaliði í Hlaðgerðarkoti á gamlársdag

Theódór Gunnar er vanur að vinna sjálf­boða­liða­störf fyrir Hlað­gerð­ar­kot og hjá Mæðra­styrks­nefnd og þetta árið eld­aði hann einnig jólamat­inn fyrir Konukot. Theodór, sem fékk hjálp á Hlað­gerð­ar­koti fyrir rúmu ári síðan, seg­ist trúa á karma og að hann upp­lifi þá eitt­hvað gott í stað­inn.

Hann fór fyrst fyrir tveimur árum og aftur fyrir rúmu ári í með­ferð á með­ferð­ar­heim­il­inu Hlað­gerð­ar­koti þar sem fólk fer í áfengis- og vímu­efna­með­ferð á vegum Sam­hjálpar og seg­ist hann því hafa mikla og góða teng­ingu við stað­inn. Hann er hættur allri neyslu og varð trú­aðri í gegnum þessa reynslu og gekk í Fíla­delfíu í kjöl­farið. Sjálf­boða­liða­störf og það að láta gott af sér leiða hefur verið hluti af lífi hans síðan.

Síð­ast­liðin ár hefur hann unnið sem kokkur í grunn­skóla. Eitt árið fékk hann til dæmis þá hug­mynd að fá nem­endur í skól­anum þar sem hann vinnur til að elda meðal ann­ars ind­verskan pott­rétt og fisk­rétt í des­em­ber og seldu þeir for­eldrum nem­enda í skól­anum sem „take away“ og rann pen­ing­ur­inn til Mæðra­styrks­nefndar.

„Ég hef eldað mat­inn á aðfanga­dag í Hlað­gerð­ar­koti tvenn jól áður en í ár mat­reiddi ég einnig fyrir döm­urnar á Konukoti á aðfanga­dag. Í ár verð ég núna einnig á Hlað­gerð­ar­koti á gaml­árs­dag í fyrsta skipti,“ segir Theodór en þeir verða tveir í eld­hús­inu í sjálf­boða­liða­störfum þennan dag og elda fyrir rúm­lega 30 manns.

Humar og hamborgarhryggur

Theódór segir að hann muni á gaml­árs­dags­morgun und­ir­búa kvöld­mat­inn fyrir fjöl­skyld­una. „Ég fer upp í Hlað­gerð­ar­kot um ell­efu­leytið og græja allt þar. Fólkið þar borðar kvöld­mat­inn snemma, eða um fimm- til sex­leytið, og verður ham­borg­ar­hryggur og pöru­steik í mat­inn og ætla ég að vera með humar­súpu; fólkið þar er búið að biðja um humar­súpu í for­rétt. Við Ívar Guðjóns, sem aðstoðar mig, verðum örugg­lega þar til um átta en við ætlum svo að fá flug­elda­sölu til að styrkja okkur um nokkra flug­elda og skjótum upp áður en við förum. Fólkið sem dvelur á staðnum verður svo með nokkra flug­elda sem það mun skjóta upp á mið­nætti.

Birgjarnir sem ég versla við í vinnunnu hafa alltaf styrkt mig um hrá­efni þegar ég hef leitað til þeirra þegar ég er að sinna sjálf­boða­elda­mennsku sem er algjör snilld.“

Theódór, sem á konu og börn, segir að hann verði svo kom­inn heim um hálf­níu og þá borði hann með fjöl­skyld­unni sem bíður eftir honum. „Ég verð enga stund að græja mat­inn en konan setur allt í gang.“

Trúir á karma

Theódór segir að sér finn­ist mik­il­vægt að vera til staðar fyrir skjól­stæð­ing­ana í Hlað­gerð­ar­koti eins og aðrir voru þar til staðar fyrir hann þegar hann dvaldi þar á sínum tíma. Hann segir líka vera mik­il­vægt að starfs­menn í eld­húsi Hlað­gerð­ar­kots fái frí yfir hátíð­irnar.

„Það þarf ein­hver að gera þetta,“ segir hann og á við elda­mennsk­una. „Ég trúi á karma. Það er eig­in­lega bara gott karma að gefa af sér og þá fær maður þetta til baka; ég trúi því að ef ég geri eitt­hvað gott þá fæ ég góða orku í stað­inn – sama hvort það teng­ist umferð­inni eða fólki í kringum mig. Þetta helst allt í hendur.“

Mér líður vel af því að láta gott af mér leiða, þá fer ég ekki pirr­aður inn í dag­inn. Ég verð glað­ari.

Theódór segir að sér finn­ist vera gott að vera hinum megin við borðið þegar kemur að Hlað­gerð­ar­koti.

„Mér líður vel af því að láta gott af mér leiða, þá fer ég ekki pirr­aður inn í dag­inn. Ég verð glað­ari. Það er ekki annað hægt en að vera í góðu skapi þegar maður gefur af sér. Það skiptir máli að vera góð hvert við annað og vera jákvæður; það er lyk­ill­inn. Þegar ég geri eitt­hvað gott fyrir aðra líður mér vel og langar að gera meira af því. Það skiptir líka máli að bera virð­ingu fyrir öllum í okkar sam­fé­lagi, sama hvar þeir eru staddir hverju sinni. Svo kem ég bara heim á gamla­árs­kvöld í súper­góðu skapi og tek fagn­andi á móti nýju ári í faðmi fjöl­skyld­unnar.“

Texti / Svava Jóns­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi