Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Til gamans gert um áramót

Margir telja nauð­syn­legt að gera eitt­hvað alveg sér­stakt til hátíða­brigða um ára­mót. Sumir dusta rykið af dans­skónum sínum og fagna nýju ári með gleði og gamni, aðrir kjósa að safna um sig vinum og ætt­ingjum og gleðj­ast saman og sumir vilja helst taka það rólega. Hvað sem þú kýst eru hér nokkrar skemmti­legar leiðir til að gera ára­mótin eft­ir­minni­leg.

Til gamans gert um áramót

Mjög margir taka upp kampa­víns­flösku klukkan tólf að mið­nætti og skála fyrir nýju ári. Ef þið viljið reyna eitt­hvað nýtt má nudda barm glass­ins með app­el­sínu- eða sítrónusafa og þrýsta glas­inu síðan ofan í syk­ur­karið. Sykurinn situr þá eftir á barm­inum og gefur skemmti­legt yfir­bragð svo má skreyta glasið með app­el­sínu- eða sítrón­u­sneið. Kampavín blandað ýmsum líkjörum er einnig mjög gott. Kirsu­berja­líkjör og kampa­vín er kokk­teill­inn Kír en eins má blanda ferskju­brandíi, peru­líkjör eða yfir­leitt hvaða ávaxta­líkjör sem er saman við freyði­vínið til að gera það bragð­sterkara og til að fá á það nýjan lit. Hlut­föllin eru 1 hluti af líkjör á móti 2 hlutum af kampa­víni.

Ef þið ætlið að halda sam­kvæmi er kjörið að létta lund gest­anna með því að fara í alls konar sam­kvæm­is­leiki. Þeir eru margir til og flestir kunna nokkra. Einn er ákaf­lega vel til fund­inn um ára­mót en hann er þannig að ljósin eru slökkt þegar klukkan byrjar að slá á mið­nætti og áður en tólfta slagið heyr­ist verða allir að vera búnir að grípa í ein­hvern og sá hinn sami verður sá fyrsti sem þú óskar gleði­legs árs með kossi að sjálf­sögðu.

Breytið á ein­hvern hátt út af venj­unni og gerið eitt­hvað sem þið eruð alls ekki vön. Fyrir þá sem nota and­lits­farða er gaman að gera eitt­hvað nýtt. Notið gylltan eða silf­ur­litan glitr­andi augnskugga, eldrauðan vara­lit eða glimmerma­sk­ara.

Safnið saman þeim lögum sem þið teljið að hafi sett svip á árið sem er að líða og haft áhrif á líf ykkar. Reynið að kom­ast yfir að spila þau öll áður en klukkan slær tólf.

Leitið ráð­legg­inga að handan. Spyrjið rúnir hvað muni ger­ast á nýja árinu, leitið til spá­konu, farið í anda­glas eða inn á vef­inn facade.com/Occult/tarot og látið spá fyrir ykkur. Sumir nota tæki­færið einmitt nú og ráðg­ast við miðil um líf sitt. Tímamót sem þessi eru líka til þess að gera upp for­tíð­ina og losa sig við öll gömul leið­indi úr for­tíð­inni og líta bjart­ari augum til fram­tíðar. Ef fólk er hjá­trú­ar­fullt má benda á að ýmsir litir eru lík­legri til að bera með sér gæfu en aðrir. Kín­verjar segja að rautt sé gæfu­litur og í Kína klæð­ist brúður rauðu á heið­urs­degi sínum. Ef lukkan sem fylgir litnum er látin liggja milli hluta eru rauð­klæddar konur yfir­leitt glæsi­legar og draga að sér augu allra nálægra karl­manna.

Takið upp þann sið að halda dag­bók og byrjið á gamlárs­kvöld. Gerið það í þeim til­gangi að muna betur það góða sem ger­ist í lífi ykkar og til að festa ykkur betur í minni ýmsar lex­íur sem þið lærið á hverjum degi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi