Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gert á skoplegan og ýktan Chaplin-ískan hátt

Gert á skoplegan og ýktan Chaplin-ískan hátt
|

Þjóð­leik­húsið frum­sýndi á annan í jólum Ein­ræð­is­herr­ann eftir Charlie Chaplin. Sigurður Sig­ur­jóns­son verður í aðal­hlut­verk­unum – ann­ars vegar í hlut­verki flæk­ings­ins og hins vegar í hlut­verki Hinkels (Hitlers) en flæk­ing­ur­inn verður ein­ræð­is­herra fyrir röð mis­taka þar sem þeir Hinkel eru svo líkir. Sigurður segir að þótt við­fangs­efnið sé um þá skelfi­legu hluti sem tengj­ast síð­ari heims­styrj­öld­inni þá sé þetta gert á skop­legan hátt eins og búast má við í verki eftir Chaplin.

„Þetta er dönsk leik­gerð af þess­ari bíó­mynd Chaplins, Ein­ræð­is­herr­anum, og bár­ust okkur spurnir af henni en hún var sett upp í Kaup­manna­höfn og lukk­að­ist vel,“ segir Sigurður Sig­ur­jóns­son. Um er að ræða leik­gerð Nikolajs Cederholms en hún sló í gegn á síð­asta leik­ári hjá Nørrebro-leik­hús­inu. Hingað til lands komu þeir sem stóðu að þeirri upp­færslu og er Nikolaj einnig leik­stjóri upp­færsl­unnar í Þjóð­leik­hús­inu.

„Kvik­myndin, Ein­ræð­is­herr­ann, er mjög merki­leg. Hún varð gerð árið 1939 og fjallar um síð­ari heims­styrj­öld­ina; Hitler, gyð­inga­of­sóknir og alla þessa skelfi­legu hluti. Þetta er í raun­inni háal­var­leg saga sem fjallar um þessa skelfi­legu atburði og upp­gang nas­ism­ans í Þýska­landi en Chaplin gerði það auð­vitað á sinn hátt – á skop­legan hátt til að nið­ur­lægja þessi ill­menni og eins og búast má við í verki eftir Chaplin. Þetta er gert á skop­legan og ýktan Chaplin-ískan hátt. Það er und­ir­liggj­andi drama­tík og það gengur mikið á.“

Sigurður verður í aðal­hlut­verk­unum – ann­ars vegar í hlut­verki flæk­ings­ins og hins vegar í hlut­verki Hinkels (Hitlers) en flæk­ing­ur­inn verður ein­ræð­is­herra fyrir röð mis­taka þar sem þeir Hinkel eru svo líkir. „Þeir líta alveg eins út nema að Hinkel er vondur maður á meðan flæk­ing­ur­inn er gegn­um­góður.“

Aðrir leik­arar í sýn­ing­unni eru Ilmur Krist­jáns, Pálmi Gests, Ólafía Hrönn, Gói, Þröstur Leó, Hall­grímur Ólafsson, Sigurður Þór og Oddur Júl­í­us­son.

„Við gerum þetta að leik­hús­verki með stórum staf. Þetta er mjög sýni­legt leik­hús ef ég má orða það þannig og það er margt gert fyrir opnum tjöldum þannig að leik­húsið er svo­lítið að sýna bak­dyra­megin. Það finnst mér vera mjög skemmti­legt leik­hús. Allir leik­arar eru á svið­inu allan tím­ann þannig að þetta er mjög skemmti­legt að því leyt­inu til. Þetta er mjög frjáls­leg sýn­ing og það er allt leyfi­legt. Leikarar fram­kvæma öll leik­hljóð fyrir augum áhorf­enda og það er ekk­ert spilað af seg­ul­bandi heldur verður þarna píanó­leik­ari. Tón­listin er í Chaplin-stíl; þetta er þöglu­myndar-tón­list.“

Djúpur og réttsýnn

Sigurður segir að fyrstu kynni sín af kvik­myndum Chaplins teng­ist því þegar hann fór í sal grunn­skól­ans sem hann var í þar sem sýnd var stutt­mynd eftir meist­ar­ann. „Það voru frjálsir tímar og þá var farið á sal og maður fékk að sjá stuttar Chaplin-myndir. Það er mín fyrsta minn­ing um Chaplin.“

Sigurður við­ur­kennir að hann líti nú Chaplin öðrum augum en áður. „Maður hefur núna stúd­erað hann að vissu leyti en ég svo sem vissi ýmis­legt um ævi hans og allt það. Þegar ég kynnt­ist þess­ari sögu þá finnst mér hann hafa verið svo merki­legur vegna þess hvað hann hefur verið djúp­vitur og rétt­sýnn maður. Ég geri mér fylli­lega grein fyrir því núna. Hann var stór lista­maður,“ segir Sigurður með áherslu. „Ég held að það hljóti að vera draumur allra leik­ara að prufa að leika hlut­verk Chaplins. Það er þó alltaf erfitt að feta í fót­spor snill­ings en maður reynir.“ Þetta verður ekki í fyrsta skipti sem Sigurður leikur Hitler. „Ég lék hann í sýn­ingu Þjóð­leik­húss­ins sem hét „Svejk í seinni heims­styrj­öld“ þannig að ég hef smá­reynslu af honum. Það er bara að herma eftir Hitler á ýktan hátt. Það er stíll­inn okkar.“

Sigurður seg­ist halda að með þessu verki hafi Chaplin verið að leggja áherslu á að fólk eigi að vera gott hvert við annað. „Það kemur í ljós aftur og aftur að við erum það ekki. Þess vegna þurfum við að hamra svo­lítið á þessu við okkur sjálf og við hvert annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi