Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sjarmerandi illvirki og ógeð

Borg­ar­leik­húsið frum­sýnir Ríkharð III eftir Shakespe­are laug­ar­dag­inn 29. des­em­ber og fer Hjörtur Jóhann Jónsson með hlut­verk hans en um er að ræða eitt stærsta karl­hlut­verk leik­list­ar­sög­unnar.

Sjarmerandi illvirki og ógeð
|

„Ég hef aldrei áður feng­ist við svona stórt hlut­verk,“ segir Hjörtur Jóhann, „enda eru fá hlut­verk svona stór. Ég þarf svo­lítið á öllu mínu að halda. Maður reynir að nálg­ast þetta af öllum sínum lífs- og sál­ar­kröftum.“

Talið er að Shakespe­are hafi skrifað verkið Ríkharð III í kringum 1593 sem verður frum­sýnt 29. des­em­ber í Borg­ar­leik­hús­inu í leik­stjórn Bryn­hildar Guð­jóns­dóttur. Hjörtur Jóhann Jónsson fer með hlut­verk Ríkharðs III sem er eitt stærsta karl­hlut­verk leik­list­ar­sög­unnar. Um er að ræða nýja þýð­ingu Krist­jáns Þórðar Hrafns­sonar.

„Ég hef aldrei áður feng­ist við svona stórt hlut­verk,“ segir Hjörtur Jóhann, „enda eru fá hlut­verk svona stór. Ég þarf svo­lítið á öllu mínu að halda. Maður reynir að nálg­ast þetta af öllum sínum lífs- og sál­ar­kröftum. Ég þurfti að kynna mér brag­ar­hátt­inn sér­stak­lega mikið og sömu­leiðis fór ég í lík­am­lega vinnu sem teng­ist fötlun Ríkharðs III – ég þarf að hafa styrk til að bera til að ég meiði mig ekki og svo er Rík­harður með kryppu.

Ég þurfti að kynna mér brag­ar­hátt­inn sér­stak­lega mikið og sömu­leiðis fór ég í lík­am­lega vinnu sem teng­ist fötlun Ríkharðs III.

Ég las mikið um Shakespe­are, Ríkharð sjálfan, fræði­rit og fleira og nálg­að­ist þetta úr öllum áttum. Ég hef gert mikið af radd- og önd­unaræf­ingum en Shakespe­are-textar eru oft með sér­lega löngum setn­ingum. Það er til dæmis ein setn­ing í fyrstu ræð­unni sem er 14 línur. Það væri fárán­legt að flytja hana alla án þess að anda að sér en hugs­unin þarf þó að vera þannig og þá er önd­unin hluti af því.“

Spennandi, skemmtileg og krefjandi

Rík­harður III er að sögn Hjartar Jóhanns eitt fræg­asta ill­menni leik­bók­mennt­anna. „Hann er rosa­lega mik­ill dólgur og grimmd­ar­seggur. Í verk­inu er hann kall­aður villi­göltur, sóða­svín og afskræmdur fyr­ir­buri og alls konar við­bjóður sagður um hann. En hann hefur á sama tíma ein­hvern sjarma og aðdrátt­ar­afl og hann hefur oft á tíðum mik­inn húmor og glettni. Hann er brjál­æð­is­lega klár og hefur mik­inn drif­kraft og vilja. Hann setur sér mark­mið og svo eirir hann engu þangað til hann hefur náð þeim mark­miðum.

Hann er rosa­lega mik­ill dólgur og grimmd­ar­seggur.
„Ég finn að maður lærir svo ótrú­lega margt af því að takast á við svona safa­ríkt hlut­verk.“ Mynd / Íris Dögg Ein­ars­dóttir

Það sem gerir hann skemmti­legan er að þó að hann sé svika­hundur þá segir hann í upp­hafi allt sem hann ætlar að gera. Hann er full­kom­lega hrein­skil­inn við áhorf­endur. Hann seg­ist ætla að verða versti þrjótur allra tíma, ráð­gera hitt og þetta og kvæn­ast ákveð­inni konu. Þetta er eitt­hvert afdrátt­ar­leysi sem er heill­andi. Það er eitt­hvert afl í honum og orka sem dregur fólk að honum.“

Það er gaman að koma að verk­efnum þar sem maður hugsar … hvernig í ósköp­unum á maður að gera þetta?

Hjörtur Jóhann segir að þetta hlut­verk skipti hann miklu máli af því að sér finnst það vera svo spenn­andi, skemmti­legt og krefj­andi. „Ég finn að maður lærir svo ótrú­lega margt af því að takast á við svona safa­ríkt hlut­verk. Það er líka búið að vera ynd­is­legt að vinna með Bryn­hildi leik­stjóra. Manni finnst maður stækka um nokkur númer við að takast á við svona. Það er gaman að koma að verk­efnum þar sem maður hugsar … hvernig í ósköp­unum á maður að gera þetta? og finna svo leið­ina. Það er það sem stækkar mann – bæði í vinn­unni og líf­inu.“

Allt litrófið

Hjörtur Jóhann segir að honum finn­ist almennt vera gaman að gera sem ólík­ustu hluti þegar kemur að hlut­verkum.

„Mér finnst gaman að prófa allt lit­rófið. Ég veit að ég er voða­lega orku­mik­ill; stundum um of. Ég er oft beð­inn um að draga úr mér sem mér finnst fínt. Mér finnst gaman að gera of mikið og þá er hægt að draga úr. Maður prófar til dæmis ýmis­legt í æfinga­ferl­inu og það er skemmti­legt að lita með stórum sveiflum og prófa alla lit­ina í kass­anum. Þá er alltaf hægt að pilla úr.“

Hjörtur Jóhann hefur vakið athygli bæði í upp­setn­ingum leik­húss­ins og víðar. Hann fer með hlut­verk í Ellý, í kvik­mynd­inni Lof mér að falla og í sjón­varps­þátt­unum Flat­eyj­ar­gát­unni. Þá leikur hann einnig í Ófærð og í Héraðinu, nýrri mynd Gríms Hákon­ar­sonar.

Hann er spurður hvað leik­list sé í huga sínum. „Samtal. Samtal við áhorf­endur, við sam­fé­lagið, við sög­una, list­ina, lífið og dauð­ann.“

Aðalmynd/ Sigurjón Ragnar
Texti / Svava Jóns­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi