Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Munu flugmiðar snarhækka?

Neyt­enda­sam­tökin greindu frá því í á mánu­dag­inn að verð á flug­miðum hjá WOW air og Icelandair til fjög­urra algengra staða hefði hækkað að með­al­tali um 35% eftir að til­kynnt var um fyr­ir­hug­aðan sam­runa félag­anna í byrjun nóv­em­ber.

Munu flugmiðar snarhækka?
|

Líklega hefur fátt verið eins góð búbót fyrir Íslend­inga og þegar flug­fé­lagið Iceland Express hóf árið 2003 að bjóða upp á flug til London og Kaup­manna­hafnar í sam­keppni við Icelandair. Með því snar­lækk­aði verð á flug­miðum til þess­ara áfanga­staða. Icelandair var hins vegar dæmt árið 2007 til þess að greiða 192 millj­ónir króna í sekt fyrir að hafa mis­notað sér mark­aðs­ráð­andi stöðu sína. „Eftir að Iceland Express hóf áætl­un­ar­flug lækk­aði Icelandair verð á við­skiptaf­ar­gjöldum um allt að 41% á flug­leið­inni milli Kefla­víkur og Kaup­manna­hafnar og 43% á flug­leið­inni milli Kefla­víkur og London,“ segir í umfjöllun um meinta mis­notkun.

Þó verð á flug­miðum muni eitt­hvað breyt­ast á næst­unni verður þó að telja ólík­legt að Icelandair kom­ist aftur í þá mark­aðs­ráð­andi stöðu sem félagið var í áður en Iceland Express, for­veri WOW air, kom inn á mark­að­inn.

Síðasta föstu­dag til­kynnti WOW air um upp­sögn á 111 starfs­mönnum og að flug­vélum yrði fækkað úr 20 niður í 11. Síðar var til­kynnt um að Indigo Partners muni leggja 75 millj­ónir doll­ara, and­virði 9,3 millj­arða króna, inn í WOW air. Kaupin eru háð ákveðnum skil­yrðum. Indigo muni kaupa ótil­greindan fjölda hluta­bréfa í WOW air auk þess sem banda­ríska félagið leggur til fjár­magn til að koma að end­ur­reisn félags­ins.

Hvernig mun rekstur WOW air breytast?

Líkt og Mannlíf hefur áður sagt frá hefur launa­kostn­aður verið tölu­vert lægri hjá WOW air en Icelandair. Það sést vel í úttekt sem hag­fræði­deild Lands­bank­ans gerði á félög­unum tveimur. Þar kom fram að launa­kostn­aður sem hlut­fall af tekjum væri 19% hjá WOW air en 33% hjá Icelandair.

Áhuga­vert verður að sjá hvernig sam­keppn­is­staða WOW air og Icelandair verður á kom­andi ári. Mynd/Isavia

Með inn­komu Indigo Partners sem hlut­hafa hjá WOW air má búast við því að félagið verði í tölu­vert betri stöðu til að veita Icelandair sam­keppni. Þar mun miklu ráða hvernig verður samið um kjör við flug­menn og flug­freyjur WOW air. Er þar nefnt að starfs­fólk verði ráðið í gegnum svo­kall­aðar starfs­manna­leigur. Spurn­ingin er hins vegar hversu langan tíma fjár­hags­leg og rekstr­ar­leg end­ur­skipu­lagn­ing mun taka hjá WOW air. Vegna stærðar sinnar getur Indigo Partners lík­lega fært WOW air tölu­vert betri kjör á flestum aðföngum. Þá hefur verið nefnt að félagið muni ein­beita sér að styttri flug­leiðum.

Einnig verður að telj­ast lík­legt að Icelandair geri frek­ari breyt­ingar á starf­semi sinni. Það sem Icelandair vantar lík­lega er hins vegar annað hvort nýr erlendur for­stjóri eða erlendur hlut­hafi sem hefur alþjóð­lega reynslu af flug­rekstri. Ekki er hægt að segja að íslenskir líf­eyr­is­sjóðir sem eru stærstu hlut­hafar Icelandair búi yfir slíkri reynslu. Því þykir áhuga­vert að sjá hvernig sam­keppn­is­staða WOW air og Icelandair verður á kom­andi ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi